Gefa nýja plötu Hjálma Hjálmar sendu frá sér nýja plötuna Órar í vikunni. Ef þú hefur áhuga á að eignast plötuna án þess að borga krónu fyrir er heppnin með þér. Tónlist 3. nóvember 2011 11:56
Tilnefnd til dönsku tónlistarverðlaunanna "Þetta er ótrúlega skemmtilegt og mikil viðurkenning,“ segir Anna María Björnsdóttir, meðlimur norrænu spunahljómsveitarinnar IKI sem tilnefnd er til dönsku tónlistarverðlaunanna í flokki danskra djassraddlistamanna. Verðlaunin verða afhent í Kaupmannahöfn á laugardaginn við hátíðlega athöfn. Tónlist 3. nóvember 2011 09:00
Hita upp fyrir veigamestu jazzveislu Íslendinga erlendis Hljómsveit gítarleikarans Ómars Guðjónssonar heldur tónleika á Jazzklúbbnum Múlanum í Norræna húsinu í kvöld. Tilefnið er að hita upp fyrir tónleika sveitarinnar á London Jazzfestival í næstu viku. Þar mun hljómsveitin koma fram ásamt þremur öðrum íslenskum böndum. Tónlist 2. nóvember 2011 13:00
Coldplay var dáleidd Coldplay-liðar, sem voru að gefa út nýja plötu, hafa viðurkennt að þeir hafi reynt að semja fyrir nýju plötuna í dáleiðslu. Þetta kom fram í spjalli BBC við bassaleikarann Guy Berryman. Platan, Mylo Xyloto, hefur fengið misjafnar viðtökur og fékk meðal annars eingöngu tvær stjörnur í Poppinu, fylgiriti Fréttablaðsins. Tónlist 28. október 2011 12:00
Fersk hljómsveit eftir átta ára hvíld Fyrsta plata hljómsveitarinnar Náttfara kemur út á morgun, en sveitin var endurvakin í fyrra eftir átta ára pásu. Trommari Náttfara segir að frelsun hafi verið fólgin í því að taka upp gömlu lögin á ný. Tónlist 27. október 2011 13:00
Rokkprófið - Björgvin Halldórsson vs. Erpur Eyvindarson Megatöffararnir Björgvin Halldórs og Erpur Eyvindar kljást í hinum klassíska bardaga, rokkprófinu. Hvenær voru þeir síðast handteknir? Hvað með óskilgetnu afkvæmin? Hvað er málið með Helga Björns? Harmageddon 27. október 2011 12:00
Jóhanna Guðrún: Fimm bestu Led Zeppelin lögin Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona velur fimm bestu Led Zeppelin lögin að sínu mati. Harmageddon 27. október 2011 08:00
Sykur þróar stílinn á nýrri plötu "Það var margt sem bjátaði á við gerð plötunnar,“ segir Halldór Eldjárn úr hljómsveitinni Sykri. Sykur hefur sent frá sér plötuna Mesópótamía, sem fylgir eftir frumburði sveitarinnar, Frábært eða frábært, sem kom út árið 2009. Harmageddon 27. október 2011 07:30
Tilraunir á nýrri plötu "Þetta er langbesta platan,“ segir Guðmundur Kristinn Jónsson, best þekktur sem Kiddi í Hjálmum, um nýja plötu hljómsveitarinnar sem átti að koma út í dag en tafðist í framleiðslu og kemur út 1. nóvember. Platan heitir Órar og er sú fimmta í röðinni, ef frá eru taldar safn- og tónleikaplötur. Harmageddon 27. október 2011 07:00
Q-verðlaunin afhent Breska tónlistartímaritið Q stendur fyrir verðlaunahátíð á hverju ári. Hátíðin fór fram á dögunum og Popp lét sig að sjálfsögðu ekki vanta. Harmageddon 27. október 2011 06:30
Setti ljóðabækurnar upp í Excel Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir , Lay Low, hefur sent frá sér sína þriðju plötu, Brostinn streng, þar sem hún syngur eigin lög við ljóð íslenskra skáldkvenna. Kjartan Guðmundsson spjallaði við Lovísu um gerð plötunnar, sem hún segir kraftmeiri en þær fyrri. Tónlist 23. október 2011 21:30
Austurrískur ásláttarleikari heillaði Björk Austurríski ásláttarleikarinn Manu Delago hefur spilað með Björk á Biophilia-tónleikum hennar í Hörpu að undanförnu. Hljóðfærið sem hann er þekktastur fyrir nefnist Hang og er aðeins tíu ára gamalt. Tónlist 22. október 2011 06:00
Stóns á Gauknum laugardagskvöld Rolling Stones heiðrunarsveit Íslands sem kalla sig Stóns halda heljarinnar tónleika til heiðurs stærstu og bestu rokkhljómsveit mannkynsögunnar að þeirra mati á Gauk á Stöng á morgun laugardag, 22.oktober... Tónlist 21. október 2011 17:00
John Grant vill vinna með GusGus Biggi Veira úr hljómsveitinni GusGus hitti bandaríska tónlistarmanninn John Grant þegar hann var hér á landi vegna tónleika sinna á Airwaves-hátíðinni. Grant er mikill GusGus-aðdáandi eins og kom fram í viðtali við hann í Fréttablaðinu. Tónlist 21. október 2011 11:00
Coldplay segir ástarsögu Fimmta hljóðversplata Coldplay, Mylo Xyloto, kemur út um næstu helgi. Textarnir snúast um tvær manneskjur í leit að ástinni. Enska hljómsveitin Coldplay gefur eftir helgi út sína fimmtu hljóðversplötu, Mylo Xyloto. Textarnir fjalla um raunirnar sem tvær manneskjur ganga í gegnum í leit að ástinni. Tónlist 20. október 2011 06:00
Stone Roses snýr aftur á næsta ári Breska rokksveitin The Stone Roses ætlar að koma saman á tvennum tónleikum í heimaborg sinni Manchester á næsta ári. Í framhaldinu ætlar hún í tónleikaferð um heiminn. Tónleikarnir í Manchester verða haldnir í Heaton Park fyrir framan 80 þúsund manns. Tónlist 19. október 2011 21:00
Partíþokan fer af stað FM Belfast, Prinspóló, Sin Fang og Borko eru á leiðinni í tónleikaferðalagið Partíþokuna sem hefst á laugardaginn á Græna hattinum á Akureyri. Af því tilefni eru FM Belfast og Prinspóló búin að endurgera lagið Partíþokan, sem kom út fyrir tveimur árum á safnplötunni Hitaveitunni í flutningi Prinspóló og Skakkamanage. "Við ætlum að fara norður, vestur og austur og halda tónleika og vera með stuð og sprell,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson úr Prinspóló. Lagið Partíþokan er fáanlegt á Gogoyoko.com. - fb Tónlist 19. október 2011 14:00
Rolling Stone hrífst af Biophilia Fyrstu Biophilia-tónleikar Bjarkar í Hörpu af níu talsins fá mjög góða dóma á heimasíðu bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Tónlist 19. október 2011 14:00
Nýtt lag frá Todmobile Todmobile hefur sent frá sér lagið Sjúklegt sjóv. Það er eftir gítarleikarann Þorvald Bjarna og textinn eftir Andreu Gylfadóttur. Lagið verður á sjöundu plötu hljómsveitarinnar, 7, sem kemur út 10. nóvember. Andrea og Eyþór Ingi Gunnlaugsson skipta söngnum á plötunni á milli sín og þeir Benedikt Brynleifsson og Ólafur Hólm, sem hefur lengi spilað með Nýdönsk, sjá báðir um trommuleikinn. Föstudagskvöldið 18. nóvember leikur Todmobile í fyrsta sinn í Hörpu, eða í Eldborgarsalnum, og er miðasala hafin á þá tónleika. Tónlist 15. október 2011 05:30
40 hljómsveitir á Dillon Skemmtistaðurinn Dillon við Laugaveg spýtir aldeilis í lófana nú á Airwaves hátíðinni en frá því á miðvikudag og fram á sunnudag koma fram tæplega 40 hljómsveitir á staðnum. Tónlist 14. október 2011 16:00
Gott að semja með kærastanum „Ég er ótrúlega spennt. Ég hlakka svo mikið til,“ segir Bryndís Jakobsdóttir sem spilar í Kaldalónssal Hörpunnar á laugardagskvöld. Tónlist 14. október 2011 07:00
Fær fullt hús eða fjórar stjörnur Björk Guðmundsdóttir hefur fengið frábæra dóma í erlendum fjölmiðlum fyrir nýjustu plötuna sína, Biophilia. Tónlist 13. október 2011 22:00
Samstarf við Hammond Rokksveitin The Vaccines, með Árna Hjörvar Árnason á bassanum, gefur út nýja smáskífu 4. desember. Þar verður lagið Wetsuit af fyrstu plötu sveitarinnar, What Did You Expect From The Vaccines?, og einnig Tiger Blood sem var tekið upp í samvinnu við Albert Hammond Jr., gítarleikara The Strokes. Tónlist 13. október 2011 15:00
Idol-stjarna vinsælust í Bandaríkjunum Síðasti sigurvegari American Idol, Scotty McCreery, er nú í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum. Nýjasta plata hans ber heitið Clear as Day. Tónlist 13. október 2011 13:57
Spears fær falleinkunn í Svíþjóð Poppprinsessan Britney Spears fær skelfilega dóma hjá dönskum og sænskum fjölmiðlum eftir tónleika sína þar í vikunni. Það var á mánudaginn sem Spears tróð upp í Herning í Danmörku og sögðu danskir gagnrýnendur hana vera jafn kynþokkafulla á sviði og „strætóstoppistöð í rigningu“. Tónlist 13. október 2011 12:00
Herra Ísland Mugison er viðkunnanlegasti tónlistarmaður landsins, kann ekki að gefa út lélegar plötur og fyllir tónleikastaði um allt land. Oft. Hann er herra Ísland og gleðst yfir því að eldri konur séu byrjaðar að mæta aftur á tónleikana hans, en þær vildu ekki sjá pungsveitt rokkið af plötunni Mugiboogie. Nýja platan Haglél er ljúfsár og angurvær og er mest selda plata landsins um þessar mundir. Harmageddon 13. október 2011 10:30