Vindhviður gætu náð allt að 35 m/sek Í dag má reikna með hvössum vindi með suðurströndinni. Vinhviður gætu náð 30-35 m/sek í Mýrdal og undir Eyjafjöllum um og upp úr hádegi. Sama gildir um Öræfi skammt austan Skaftafells. Veður 21. ágúst 2024 07:46
Gul viðvörun á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðausturlandi klukkan ellefu í hádeginu á morgun. Hún verður í gildi í tíu klukkutíma, til klukkan níu um kvöldið. Innlent 20. ágúst 2024 16:44
Léttskýjað og allt að fimmtán stig á Suður- og Vesturlandi Í dag er útlit fyrir norðlæga golu á landinu, en ákveðnari vindur austast. Dálítil rigning norðaustantil og svalt á þeim slóðum. Það verður yfirleitt léttskýjað og fallegt veður á Suður- og Vesturlandi með hita að 15 stigum þegar best lætur. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 20. ágúst 2024 07:13
Frost í Reykjavík í nótt Hitastigið fór niður í mínus 0,9 gráður í Víðidal í Reykjavík klukkan sex í morgun. Mælt er í tveggja metra hæð og líklega hefur verið enn kaldara niðri við jörð. Innlent 19. ágúst 2024 13:00
Kaldi eða stinningskaldi en bjart fyrir sunnan og vestan Spáð er kalda eða stinningskalda með vætu norðan- og austanlands í dag en björtu sunnan- og vestantil. Úrkomusvæði kemur að suðausturströndinni síðdegis og fer norður yfir austanvert landið í kvöld og nótt. Veður 19. ágúst 2024 08:38
Svöl norðlæg átt næstu daga Norðaustur af landinu er 980 mb lægð sem hreyfist lítið og verður fremur svöl norðlæg átt á landinu í dag og næstu daga. Veður 18. ágúst 2024 09:18
Kuldakastinu muni fylgja töluverð úrkoma Sjaldséð snjókoma er í kortunum í fjöllum Norðanlands á morgun. Veðurfræðingar telja nokkuð ljóst að úr þessari spá rætist. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir allt eðlilegt í íslensku veðurfari en viðurkennir þó að það sé frekar óvanalegt að fá svona kuldakast í ágúst. Rætt var við Harald í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Veður 17. ágúst 2024 19:56
„Ekki sést á þessari öld“ Veðurspákort fyrir morgundaginn eru landanum ekki náðug eins og svo oft áður þetta rigningarsumar. Hins vegar er það ekki rigning sem búist er við á morgun. Spáð er slyddu og snjókomu á morgun vestantil á Norðurlandi og á Hornströndum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir svona spá ekki hafa sést á þessum árstíma á þessari öld. Veður 17. ágúst 2024 15:53
Víða bjart og fallegt sunnanlands í dag Létta á til sunnanlands með morgninum og víða er spáð björtu og fallegu veðri þar. Á norðanverðu landinu er spáð norðvestan- og norðangolu eða kalda og rigningu eða súld með köflum. Snjóað gæti í fjöll fyrir norðan á sunnudag. Veður 16. ágúst 2024 08:18
Lægð yfir landinu og skúradembur norðan- og austantil Alldjúp og hægfara lægð er nú yfir norðanverðu landinu. Henni fylgir vestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi og rigning víða um land. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það dragi úr vætu norðvestantil þegar líður á daginn. Veður 15. ágúst 2024 07:26
Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum Heildarakstur í þjóðvegakerfinu á Íslandi nærri tvöfaldaðist á tímabilinu 2002 til 2023. Heildarakstur í þjóðvegakerfinu utan héraðsvega árið 2023 er áætlaður um 3.181 milljón ekinna kílómetra en var árið 2002 áætlaður um 1.781 milljón ekinna kílómetra. Innlent 14. ágúst 2024 08:36
Lægð nálgast landið úr suðvestri Lægð nálgast landið úr suðvestri nú í morgunsárið. Það gengur í austan- og suðaustankalda með rigningu sunnanlands, en dregur úr vindi síðdegis. Yfirleitt hægari og bjart með köflum fyrir norðan, en dálítil væta seinnipartinn. Veður 14. ágúst 2024 07:13
Lægð við austurströnd en allt að 18 stig norðaustantil Lægð er nú stödd við austurströnd landsins og þokast norður á bóginn. Þá snýst smám saman í suðvestangolu og dregur úr úrkomu. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að skýjað verði í dag og víða dálítil væta af og til, milt veður. Veður 13. ágúst 2024 07:12
Djúp lægð fer yfir landið Alldjúp lægð nálgast nú landið úr suðri. Í dag fer að rigna í norðaustan kalda eða stinningskalda, en hvassviðri suðaustantil seinnipartinn og er gul viðvörun í gildi fyrir það svæði frá klukkan 14 til 21 í kvöld. Í viðvörun Veðurstofunnar segir að veðrið verði varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Veður 12. ágúst 2024 07:23
Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Gul viðvörun vegna veðurs hefur verið gefin út fyrir Suðausturland á morgun vegna hvassviðris þegar lægð nálgast landið síðdegis. Viðvörunin gildir frá klukkan 14 til 21 á mánudag og spáir Veðurstofan norðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu í landshlutanum. Veður 11. ágúst 2024 23:38
Skúrir síðdegis í dag Veðurstofan spáir suðaustlægri og breytilegri átt í dag. Skúrir verða allvíða, sérstaklega síðdegis. Talið er að hiti verði átta til fimmtán stig. Veður 11. ágúst 2024 08:09
Vara við gasmengun við upptök Skálmar og Múlakvíslar Rafleiðni hefur farið hækkandi í Skálm og Múlakvísl frá seinnipartinum í gær en vatnshæðin hefur haldist nokkuð stöðug. Innlent 10. ágúst 2024 10:08
Mildast sunnan heiða Veðurstofan spáir hægum vindi á landinu í dag, en segir að þó muni blása aðeins úr norðvestri við norðausturströndina þar sem muni þó lægja smá saman. Þá verði súld eða dálítil rigning norðvestantil og einnig norðaustanlands í fyrstu. Annars verður skýjað með köflum og stöku skúrir inn til landsins síðdegis. Veður 10. ágúst 2024 08:48
Myndi fara stystu leið upp í sveit Hægviðri er í kortunum víða um landið um helgina. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að útlitið sé „bara þokkalegt.“ Hann myndi fara stystu leið upp í sveit um helgina. Innlent 9. ágúst 2024 23:45
Hæglætisveður um helgina Um helgina verður hæglætisveður um helgina. Það verður skýjað með köflum og lítilsháttar væta af og til í flestum landshlutum og milt. Norðan til á landinu verður hins vegar fremur þungbúið og svalt í dag, en það ætti að birta til og hlýna þar á morgun. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 9. ágúst 2024 07:12
Milt veður fram að og um helgi en svo tekur djúp lægð við Það verður hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og á morgun. Það verður fremur þungbúið norðan- og austanlands og svalt, en bjartara sunnan heiða og mildara. Hiti er á bilinu 7 til 17 stig. Þetta kemur frami hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 8. ágúst 2024 09:55
Ísland gæti kólnað þrátt fyrir hlýnun á heimsvísu Undanfarið hafa margir eflaust velt því fyrir sér hvernig standi á því að sumarið hafi verið svo alíslenskt í Reykjavík í ár og víðar fyrst hnötturinn okkar hlýnar. Til að mynda var heimshitamet slegið þann 22. júlí síðastliðinn og svo aftur daginn eftir en áhrifa þessarar hlýnunar virðist ekkert gæta hér á landi. Veður 7. ágúst 2024 15:43
Myndaveisla: Loksins lét sú gula sjá sig Veðrið hefur leikið landsmenn grátt í sumar, víðast hvar skýjað dag eftir dag eftir dag. Á vestan- og sunnanverðu landinu lét sólin þó loksins sjá sig þó margir séu farnir aftur til vinnu eftir sumarfrí. Gleðin skein úr hverju andliti í höfuðborginni í dag þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari fréttastofunnar fór á stúfana. Lífið 7. ágúst 2024 15:37
Lokað vegna linnulausrar rigningar Tjaldsvæðinu í Reykholti hefur verið lokað vegna mikilla rigninga. Framkvæmdastjóri segir þetta gert til að verja grasið og jarðveginn en nær linnulaus væta hefur verið þar að undanförnu. Innlent 7. ágúst 2024 12:47
Útlit fyrir rólegt veður fram á föstudag Spáð er hægu og rólegu veðri á landinu í dag og á morgun. Hiti á Suður- og Suðvesturlandi, þar sem verður bjartara yfir en annars staðar á landinu, gæti náð allt að átján stigum þar sem best lætur í dag. Veður 7. ágúst 2024 07:22
Rólegra veður en líkur á síðdegisskúrum Spáð er rólegra veðri í dag en undanfarna daga með hægri austlægri eða breytilegri átt. Bjart verður með köflum en líkur á síðdegisskúrum allvíða. Áfram er þó spáð leiðinlegu veðri á Suðausturlandi með norðaustan kalda eða strekkingi og rigningu öðru hverju. Veður 6. ágúst 2024 07:26
Dregur úr vindi með morgninum Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, í Breiðafirði, Ströndum, Norðurlandi vestra, Faxaflóa og á Austfjörðum. Spáð er norðaustan 10 - 18 m/s, hvassast norðvestan til, og talsverðri eða mikilli rigningu á Austfjörðum og Ströndum. Veður 5. ágúst 2024 07:37
Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Búist er við talsverðri rigningu í kvöld á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Það styttir upp snemma í fyrramálið á frídegi verslunarmanna. Innlent 4. ágúst 2024 19:05
Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum Gular veðurviðvaranir ganga í gildi víða á Suður- og Austurlandi síðdegis í dag og í kvöld. Búist er við norðaustan hvassviðri eða storm syðst á landinu síðdegis með snörpum vindhviðum við fjöll. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hvetur ferðalanga til að fylgjast vel með veðri og aðstæðum áður en lagt er af stað. Þá er búist er við úrhellis rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum á morgun með tilheyrandi skriðuhættu. Sumarið hefur verið mjög blautt og jarðvegur víða mettaður sem eykur lýkur á skriðuföllum að sögn sérfræðings. Innlent 4. ágúst 2024 13:56
Leiðindaveður um allt land vegna djúprar lægðar Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða rigningar taka gildi á landinu sunnan- og austanverðu í dag. Djúp lægð stefnir að landinu og veldur leiðindaveðri um landið allt Veður 4. ágúst 2024 08:17