

Fréttamaður
Jón Ísak Ragnarsson
Jón Ísak er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.
Nýjustu greinar eftir höfund

Rafmagnið sló út víða um land
Rafmagnslaust var á Vestfjörðum og hluta Austfjarða um skamma stund vegna bilunar í dreifikerfi Landsnets. Búið er að gera við bilunina og rafmagn víða komið aftur á.

Handtóku einn til viðbótar
Lögreglan á Suðurlandi hefur lagt fram kröfu um gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem handtekinn var í gærkvöld. Einnig hefur verið lögð fram krafa um framlengingu gæsluvarðhalds yfir þremur einstaklingum vegna rannsóknar á manndrápsmálinu í Gufunesi.

Þröng á þingi og þriggja tíma ferð vegna þrjátíu prósenta afsláttar
Mikil örtröð hefur verið í Bónus í Naustahverfi á Akureyri í dag, þar sem boðið var upp á 30 prósent afslátt á öllum vörum í eins konar rýmingarsölu vegna fyrirhugaðra breytinga.

Tveir bílar og hestakerra skullu saman við Selfoss
Árekstur varð milli tveggja bíla og hestakerru á Suðurlandsvegi rétt austan við Selfoss. Fimm voru í bílunum og eru meiðsl talin minniháttar.

Fólk á góðum launum ráði ekki við erfið verkefni
Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að skólar eigi að vera griðastaður barna, en ekki vettvangur daglegs ofbeldis árum saman. Hann gerði ofbeldisvandann í Breiðholtsskóla að umtalsefni á Alþingi í dag, en hann segir að fullorðið fólk á góðum launum í stjórnsýslunni ráði ekki við erfið mál og kasti þeim frá sér.

Svefnlyf ávanabindandi og auki hættu á heilabilun
Heilbrigðisráðuneytið hefur sett á laggirnar nýja vefsíðu til að stuðla að vitundarvakningu um skaðsemi svefnlyfja. Markmiðið segja þau vera að fræða fólk um virkni og margvíslegar aukaverkanir svefnlyfja, og stuðla að skynsamlegri notkun þeirra.

Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“
Daníel Már Þorsteinsson bílamálari varð fyrir því óláni í nótt að stuðaranum var stolið af bíl hans fyrir utan heimili hans í Árbæ. Hann kveðst ekkert vita um það hver gæti hafa verið að verki og segir leiðinlegt að lenda í svona ráni.

„Núna reynir auðvitað á Rússa“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það mikið gleðiefni að Úkraínumenn hafi fallist á tillögu Bandaríkjanna um 30 daga vopnahlé í Úkraínu. Núna sé boltinn hjá Rússum og þeir þurfi að sýna að þeir hafi raunverulegan vilja til friðar.

Úkraína samþykkir tillögu um vopnahlé
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Úkraínumenn hafi samþykkt tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé og séu tilbúnir að ganga til viðræðna um að stöðva átökin og stuðla að langvarandi friði.

Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar
Lögregla handtók í gær átta manns vegna gruns um að tengjast andláti karlmanns sem fannst látinn í Grafarvogi í Reykjavík í gær. Áverkar á hinum látna benda til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þremur var sleppt að yfirheyrslum loknum sem stóðu fram á nótt. Tekin verður ákvörðun um gæsluvarðhald síðar í dag.