
Akstursíþróttir

Snjókross á Skjá Einum í vetur
Mótorsport verslunin Mótormax, sem er afurð sameiningar Gísla Jónssonar (Ski-doo umboðið) og Yamaha umboðs P.Samúelssonar, stendur í viðræðum við Skjá Einn um kostun og sýningu á öllum mótum Snjókross í vetur. Um er að ræða allt að 10 þátta seríu af fjórum Íslandsmótum og einu bikarmóti.

Beltabúnaður fyrir torfæruhjól á markað
Verslunin Nitro hefur hafið innflutning á beltabúnaði fyrir torfæruhjól. Búnaðinn má koma fyrir á flestum tegundum torfæruhjóla og gagnast í snjó, sandi og hverskonar torfærum jarðvegi. Hægt er að fá nagla í beltið og skíði á framdekkið og breyta þannig hjólinu í snjósleða!

Dusty Klatt ekki brotinn
"Þetta lítur betur út en á horfðist" segir Dusty Klatt um byltuna sem hann átti í annari umferð í minni flokknum í Anaheim síðastliðina helgi. Dusty Klatt sem var gríðarlega sterkur í tímatökum og átti eina hröðustu hringina datt þegar þegar hann var í svokölluðum þvottabretta-kafla.

Gylfi Freyr í axlaraðgerð
Gylfi Freyr Guðmundsson, núverandi Íslandsmeistari í Mótorkrossi, gekkst nýverið undir aðgerð á öxl, en Gylfi átti við þrálát meiðsl að stríða undir lok síðasta keppnistímabils. Aðgerðin heppnaðist vel og reiknar Gylfi með að geta beitt sér að fullu í sumar.

Ragnar Ingi áfram hjá KTM
Ragnar Ingi Stefánsson, nífaldur Íslandsmeistari í Mótorkrossi, mun keppa fyrir KTM í sumar. Ragnar ók KTM 525 keppnishjóli s.l. sumar og átti ágætt tímabil en reiknar með því að aka nýrri týpu, KTM 505 í sumar en það er útboruð keppnisútgáfa af hinu vinsæla 450 hjóli frá KTM.

James Stewart sigraði í Anaheim
James Stewart vann í þriðju umferð í supercrossinu í Anaheim. Annar varð Ricky Carmichael og Chad Reed þriðji. Í minni flokknum var það hinn ungi og efnilegi Ryan Villopoto sem sigraði. Annar var Christophe Pourcel en þriðji varð Jason Lawrance.

Josh Grant með marið lunga
Sobe/Samsung Honda ökumaðurinn ungi Josh Grant kláraði ekki keppni í 125 flokknum í Anaheim. Josh meiddist á æfingu og var fluttur á slysadeild þar sem hann var greindur með marið lunga.

Ivan Tedesco komin á ról
Team Suzuki/Makita ökumaðurinn Ivan Tedesco er farinn að keyra og æfa af krafti eftir slæmnt handleggsbrot í desember. Ivan lenti í árekstri við James Stewart á æfingum fyrir fyrsta Supercross mótið í Toronto.

Dusty Klatt hlakkar til Anahaim
Dusty Klatt segist fyrst og fremst líða mjög vel hjá Yamaha, en hann skipti yfir í Star Racing/Yamaha ekki alls fyrir löngu eftir að hafa verið hjá Blackfoot/Honda í nokkur ár.
Marco Dubé sigraði Supercross í Munchen
Kanadamaðurinn Marco Dupré #23 sigraði overall flokkinn í supercrossinu í Munchen nú á dögunum.
Ryan Villopoto maður ársins hjá SPEED
Ungstirnið Ryan Villopoto #51 sem ekur fyrir Monster Energy/Kawasaki hlaut viðurkenninguna "Athlete of the year award" frá SPEED.
Ricky Carmichael efstur
Suzuki ökumaðurinn Ricky Carmichael #4 er nú efstur að stigum þegar 3ja umferð AMP Mobile heimsmeistaramótsins í supercross fer fram í Anaheim, Kaliforníu 6 Janúar.