Netflix

Netflixvæðing skaðar ekki sjónvarpsáhorf
Áhorf á útsendingar hefur ekki dregist saman þrátt fyrir aukið framboð af afþreyingarefni í gegnum efnisveitur eins og Netflix að sögn talsmanna sjónvarpsstöðvanna. Sjónvarpsstjóri 365 segir afkomuna í ár stefna í að verða betri en í fyrra.

Netflix íhugar að framleiða eigin kvikmyndir
Fyrirtækið Netflix mun hugsanlega framleiða sínar eigin kvikmyndir í framtíðinni og deila þeim á vefnum. Á þessu ári hófu þeir að framleiða þætti, til dæmis Orange Is The New Black og House Of Cards, sem slógu í gegn.

Hagnaður Netflix jókst um rúmlega 24 milljónir dala á milli ára
Á þriðja fjórðungi ársins skilaði Bandaríska streymisveitan Netflix rúmlega 32 milljóna dala hagnaði sem samsvarar 3,8 milljörðum íslenskra króna. Gengi hlutabréfa fyrirtækisins hafa rokið upp á árinu.

Áhorfendur vilja hafa stjórnina
Leikarinn Kevin Spacey segir afþreyingarveituna Netflix vera framtíðina í miðlun sjónvarpsþátta og kvikmynda. Hann segir söguþráðinn vera það sem skipti máli en ekki miðillinn.

Áskrifendum Netflix fjölgar um 630 þúsund í Bandaríkjunum
Áskrifendum afþreyingarfyrirtækisins Netflix hefur fjölgað um 630 þúsund í Bandaríkjunum á þessu ári og hafa hlutabréf fyrirtækisins tvöfaldast um leið.

Netflix tapar nær 1.800 myndum og þáttum
Afþreyingarveitan Netflix mun tapa rétt tæplega 1.800 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum í þessum mánuði. Ástæðan er að samningar sem Netflix hefur við MGM, Universal og Warner Bros. renna út fyrir mánaðarmótin.