Landhelgisgæslan

Fjármálaráðuneytið ráðist gegn flugmönnum Landhelgisgæslunnar
Síðan 31. janúar 2019 hafa flugmenn Landhelgisgæslunnar verið án kjarasamnings. Í ályktun frá stéttinni segir að þeir séu nánast í vonlausri stöðu vegna fjármálaráðuneytisins.

Veifuðu í þyrluna og fengu hjálp við að losa bíl
Þeir voru heppnir, vegfarendurnir sem höfðu pikkfest bíl þeirra á vegaslóða í nágrenni Hólahóla á Snæfellsnesinu í vikunni.

„Ekki hægt að kalla neitt annað en einelti“
Varðskipið Þór stöðvaði í morgun skipið Amelía Rose, sem er í eigu Sea Trips Reykjavík, þegar það var að sigla með ferðamenn í hvalaskoðun. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar komu um borð í Amelíu Rose, tóku yfir stjórn skipsins og sigldu henni í land. Þegar þangað kom tóku lögreglumenn á móti farþegum og töldu upp úr skipinu.

Samþykkja kauptilboð í Tý og Ægi
Ríkiskaup hafa samþykkt kauptilboð í varðskipin Tý og Ægi. Kaupandinn er íslenskur og kaupir hann bæði skipin en nafn hans hefur ekki verið gefið upp.

Fjórða alvarlega skíðaslysið á Tröllaskaga á innan við mánuði
Slysið sem varð í Svarfaðardal í gær var fjórða alvarlega slysið á Tröllaskaga á innan við mánuði sem tengist skíðamönnum. Björgunarsveitarmaður hvetur skíðamenn til að umgangast svæðið af varkárni.

Lést í snjóflóðinu í gær
Karlmaður lést í snjóflóðinu sem féll í Svarfaðardal í nágrenni Dalvíkur í gærkvöldi. Þrír lentu í flóðinu en um er að ræða bandaríska ferðamenn sem allir fæddust árið 1988. Allir hlutu þeir alvarlega áverka í slysinu og var einn þeirra látinn þegar að var komið.

Allir þrír sem lentu í snjóflóðinu af erlendu bergi brotnir
Þrír menn lentu í snjóflóði í Svarfaðardal í nágrenni Dalvíkur um klukkan sjö í kvöld. Þeir eru allir af erlendu bergi brotnir. Tveir þeirra eru slasaðir, annar var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Sjúkrahúsið á Akureyri og hinir tveir með sjúkrabílum á sjúkrahúsið.

Sóley ráðin í stöðu aðalsamningamanns í fiskveiðisamningum
Sóley Kaldal hefur verið ráðin í stöðu aðalsamningamanns í fiskveiðisamningum hjá matvælaráðuneytinu. Síðustu ár hefur hún leitt alþjóðasamskipti hjá Landhelgisgæslunni.

Þyrlan sótti skíðamann í Karlsárdal
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út síðdegis í dag til að flytja skíðamann sem slasaðist í fjöllunum inn af Karlsá, norðan Dalvíkur.

Tímasetning heræfingar á Íslandi ekki sögð tengjast Úkraínustríði
Herskip frá fimm NATO-ríkjum taka þátt í heræfingunni Norður-Víkingi sem fram fer á Íslandi og í hafinu við landið í fyrri hluta næsta mánaðar. Sérfræðingur um varnarmál telur engar líkur á að æfingin tengist spennu vegna Úkraínustríðsins.

Meðferð á dóttur Írisar fjarstýrt frá Reykjavík
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum greinir frá persónulegri reynslu sinni af því þegar nauðsynlegt var að koma dóttur sinni undir læknishendur en það reyndist ekki hlaupið að því.

Þyrlan sótti skipverja sem féll fyrir borð
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í kvöld eftir að skipverji á íslensku loðnuveiðiskipi rétt fyrir utan Reykjanestá hafði fallið fyrir borð.

Landhelgisgæsluna til Suðurnesja án tafar
Vegna hernaðar Rússlands gegn Úkraínu hefur Atlantshafsbandalagið gert viðeigandi ráðstafanir, viðbragðsstaða hefur verið aukin og varnarviðbúnaður styrktur.

Ferðamaðurinn að Fjallabaki ófundinn: Þyrlan kölluð út
Ferðamaðurinn sem kallaði eftir aðstoð á Mælifellssandi við Fjallabak er enn ófundinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út og umfangsmikil leit stendur nú yfir.

Ferðamennirnir á leið af Vatnajökli til Reykjavíkur
Ferðamennirnir sem leitað var að á Sylgjujökli í vestanverðum Vatnajökli eru komnir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar heilir á húfi. Hjálparbeiðni barst frá fólkinu um miðjan dag, það hafði fallið í vatn og blotnað og var orðið mjög kalt.

Þyrlan og varðskipið Þór kölluð út til aðstoðar veikum sjómanni
Landhelgisgæsla Íslands var í dag kölluð út til aðstoðar grænlensku fiskiskipi, sem var á veiðum djúpt vestur af Ísafjarðardjúpi, vegna veikinda hjá skipverja um borð. Bæði varðskip Gæslunnar og þyrla hennar voru kölluð út.

Landhelgisgæslan sótti alvarlega slasaðan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að sækja sjómann sem slasast hafði alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi. Skipverjinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Alvarlegar athugasemdir gerðar við þyrluskutl Gæslunnar með Áslaugu Örnu
„Ferðir ráðherra eða annarra einstaklinga með flugvélum, þyrlum eða skipum sem Landhelgisgæslan hefur til umráða, í einkaerindum, eru alvarlega athugunarverðar.“

Freyja dregur norskt loðnuveiðiskip í höfn
Varðskipið Freyja hefur síðan í gærkvöld haft norskt loðnuskip í togi sem fékk veiðarfæri í skrúfuna.

Útkall barst gæslunni mínútu eftir að þyrlan tók á loft
Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið að Gullfossi að sækja slasaðan einstakling. Þyrlan var nýtekin á loft til æfinga þegar útkall barst.

Barnið komið upp úr sprungunni og aðgerðir afturkallaðar
Betur fór en á horfðist þegar barn féll í sprungu nærri Hakinu, þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum, á öðrum tímanum í dag. Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks var kallað út og þyrla Gæslunnar ræst út.

Allir hinir látnu fundnir: Sóttu líkin með kafbáti vegna erfiðra aðstæðna
Aðstæður til köfunar í Þingvallavatni þóttu of erfiðar köfurum í dag vegna mikils kulda og ísmyndunar á Þingvallavatni. Því var smákafbátur með myndavélabúnaði og griparm notaður til að sækja lík þeirra sem létust í flugslysinu í síðustu viku.

Aðgerðum frestað þangað til aðstæður leyfa
Búið er að fresta aðgerðum á Þingvallavatni, þar sem stefnt var að því að ná líkum þeirra sem létust í flugslysinu á vatninu, þangað til aðstæður leyfa. Óvíst er hvenær hægt er að reyna aftur.

Ís á vatninu hamlar aðgerðum í hörkufrosti á Þingvöllum
Fresta hefur þurft aðgerðum á Þingvallavatni þar sem freista átti þess að ná líkum þeirra sem létust í flugslysunu þar í síðustu viku. Ís á vatninu hamlar aðgerðum.

Tuttugu og tveir kafarar taka þátt
Ríflega tuttugu kafarar koma að því að ná þeim sem fórust með flugvélinni í Þingvallavatni og flugvélinni sjálfri upp á yfirborðið. Aðgerðin sem hefst í fyrramáli er mjög flókin þar sem kafarar geta ekki athafnað sig nema í örfáar mínútur á svo miklu dýpi og kulda.

Ryðja, tjalda og koma upp þyrlulendingarstað við Þingvallavatn
Gert er ráð fyrir að fimmtíu til sextíu manns muni taka þátt í aðgerðum við Þingvallavatn á morgun. Um tuttugu manns vinna nú að því að setja upp vinnubúðir og aðstöðu við vatnið og er áætlað að aðgerðir hefjist klukkan níu í fyrramálið ef veður leyfir.

Fluttu slasaðan vélsleðamann á Landspítalann
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna vélsleðaslyss á Arnarstapa á sunnanverðu Snæfellsnesi á fjórða tímanum í dag.

Forgangsatriði að ná hinum látnu upp á yfirborðið
Vont veður og erfiðar aðstæður við Þingvallavatn valda því að ólíklega verður hægt að hífa flugvélina sem fannst í gær upp úr vatninu fyrr en seint í næstu viku. Til skoðunar er þó hvort hægt verði að sækja þá látnu úr brakinu fyrr.

Ná í fyrsta lagi í vélina seint í næstu viku
Miðað við fyrirliggjandi veðurspá er útlit fyrir að veðurskilyrði til þess að hefja aðgerðir við að ná flugvélinni sem fannst á botni Þingvallavatns í nótt upp á yfirborðið verði ekki til staðar fyrr en í seinni hluta næstu viku.

Þurfa tveggja sólarhringa veðurglugga til þess að ná vélinni á land
Sérsveit ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslan þurfa minnst tvo sólarhringa af hagstæðum veðurskilyrðum til þess að ná flaki vélarinnar sem fannst í nótt á botni Þingvallavatns upp á yfirborðið. Aðgerðinni fylgja umtalsverðar hættur fyrir björgunarliðið.