Fjármálafyrirtæki

Skora á lánastofnanir að veita Grindvíkingum fullt greiðsluhlé
Níu samtök launafólks skora á lánastofnanir að veita Grindvíkingum fullt greiðsluhlé næstu þrjá mánuði og falli frá vöxtum og verðbótum á sama tímabili. Samtökin segja mikilvægt að Grindvíkingar fái fjárhagslegt svigrúm til að takast á við þau áföll sem þau hafa orðið fyrir síðustu daga í kjölfar náttúruhamfara í bænum.

Friðrik fyrsti forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka
Friðrik Ársælsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðiráðgjafar Arion banka og er um nýja stöðu að ræða innan bankans. Lögfræðiráðgjöf heyrir undir nýjasta svið bankans, rekstur og menningu.

Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum óbreyttum á vaxtaákvörðunardegi næstkomandi miðvikudag. Stýrivextir eru nú 9,25 prósent, en peningastefnunefnd ákvað síðast að halda vöxtunum óbreyttum.

Geymsluhólf Landsbankans í Grindavík flutt úr bænum
Geymsluhólf sem voru í útibúi Landsbankans í Grindavík voru seinnipartinn í gær flutt í útibú bankans í Mjódd. Um 150 geymsluhólf var að ræða og verða þau aðgengileg fyrir viðskiptavini frá og með morgundeginum.

Geymsluhólfum Landsbankans í Grindavík enn ekki bjargað
Starfsfólki Landsbankans í Grindavík var snúið við á grundvelli áhættumats þegar það hugðist flytja geymsluhólf úr bankanum í gærmorgun. Geymsluhólfunum hefur því ekki verið bjargað úr bænum.

Ásmundur segir tilboðið frá bönkunum móðgun við Grindvíkinga
Ásmundur Friðriksson Sjálfstæðisflokki er meðal þeirra sem steig í pontu í dagskrárliðnum störf þingsins. Hann gerði fasteignalán til Grindvíkinga að umtalsefni.

Krefst tafarlausrar frystingar lána Grindvíkinga vaxtalaust
Grindvíkingurinn Sigríður María Eyþórsdóttir, kirkjuvörður í Grindavíkurkirkju, skrifar viðhorfspistil þar sem hún krefur meðal annarra lánastofnanir og Alþingi til að nýta sér ekki neyð Grindvíkinga.

Tvöfaldar hörmungar Grindvíkinga
Falsörlætis tilboð bankanna um að frysta húsnæðislán Grindvíkinga eru gagnsæ blekking til að nýta sér hörmungar sem nú dynja yfir heilt sveitarfélag og skara eld að sinni köku . Við höfum öll sem komin eru vits og ára staðið frammi fyrir hruni , en nú eru Grindvíkingar á öllu verri stað þar sem eigur þeirra, húsnæði og lífsafkoma er í hættu og í mörgum tilvikum eru fasteignir verlausar með öllu, skemmdar, óseljanlegar vegna staðasetningar og náttúruvár hættu.

Krefja Grindvíkinga ekki um afborganir í bili
Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum allir upp á frystingu húsnæðislána vegna þeirrar stöðu sem uppi er í bænum. Fryst húsnæðislán safna þó vöxtum og verðbótum.

Sálumessa um spillinguna
„Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“.

Árni Oddur fær samþykkta greiðslustöðvun
Hlutabréf í Marel hafa fallið um ríflega sextíu prósent á tveimur árum. Arion banki gerði því veðkall í hlutabréf forstjórans sem hætti í kjölfarið. Hann segir bankann ekki hafa farið að lögum því hann hafi lagt fram nægar tryggingar. Fráfarandi forstjóri hefur nú fengið samþykkta greiðslustöðvun.

Marel lækkaði um rúm sex prósent
Gengi bréfa í Marel lækkaði um 6,42 prósent í Kauphöllinni í dag. Í gærkvöldi var greint frá því að forstjóri félagsins væri hættur eftir tíu ára starf.

Arion banki tjáir sig ekki um mál Árna Odds
Engar skýringar fást á því frá Arion banka hvers vegna bankinn leysti til sín hlutabréf Árna Odds Þórðarsonar sem lét í gær af störfum sem forstjóri Marels. Þetta kemur fram í svörum frá bankanum.

Árni Oddur hættir hjá Marel vegna deilna við Arion
Árni Oddur Þórðarson er hættur sem forstjóri Marel eftir tíu ára starf. Það gerði hann vegna réttaróvissu eftir að Arionbanki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, stórum hluthafa í Marel.

Aur gefur út debetkort með endurgreiðslu
Aur, sem er í eigu Kviku, hefur opnað nýja bankaþjónustu og fullyrðir bankinn að boðið sé upp á bestu kjörin á debetkortum. Debetkortin eru án allra gjalda og þau fyrstu með endurgreiðslu, að því er segir í tilkynningu frá Kviku. Neytendur njóta ávinningsins af lítilli yfirbyggingu og snjöllum tæknilausnum, segir forstjóri Kviku.

Sigríður Hrefna hættir eftir sex ára starf í bankanum
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka, hefur sagt starfi sínu lausu.

Vilja seðlabankastjóra burt og neyðarlög um lækkun vaxta
Þingmaður Flokks fólksins og formaður VR krefjast þess að seðlabankastjóra verði vikið úr embætti fyrir meint mistök í vaxtamálum sem hafi aukið byrðar heimilanna í landinu. Þá verði stjórnvöld nú þegar að setja neyðarlög sem keyri vextina niður svo heimilin verði ekki ein látin bera ábyrgð á því að koma verðbólgunni niður.

Kristján er nýr regluvörður Kviku banka
Kristján Valdimarsson hefur verið ráðinn í starf regluvarðar Kviku banka. Kristján tekur við starfinu af Ernu Heiðrúnu Jónsdóttur sem hefur tekið við sem ritari stjórnar bankans og mun starfa á lögfræðisviði. Regluvörður heyrir undir forstjóra bankans.

Kvika hagnast um tæpa fjóra milljarða
Hagnaður Kviku banka fyrir skatta nam 3.742 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2023. Heildareignir námu 328 milljörðum og eigið fé samstæðunnar voru 80 milljarðar króna.

Eftirbátar annarra norrænna banka í arðsemi sem hafa stóraukið vaxtatekjurnar
Stærstu bankarnir á hinum Norðurlöndunum hafa séð vaxtatekjur sínar aukast að jafnaði um liðlega helming á milli ára sem ræður hvað mestu um að þeir eru nánast undantekningalaust að skila verulega betri arðsemi en íslensku bankarnir. Á meðan vaxtamunur bankanna hér á landi hefur haldist á svipuðum stað síðustu tólf mánuði þá hefur hann aukist nokkuð hjá öðrum norrænum bönkum samhliða hækkandi vaxtastigi, einkum vegna meiri vaxtamunar þeirra á innlánum.

Styður héraðsdómur þjóðarmorð?
Í dag fer fram málflutningur í Héraðsdómi Reykjavíkur sem snýst um hvort íslenskt þjóðfélag sé svo gegnumsýrt af hernaðarhyggju að það teljist hér eðlilegt að ræna matarpeningum af einstaklingum sem eiga um sárt að binda vegna hernaðaraðgerða sem þeir eru ekki þátttakendur í eða geta haft nein áhrif á.

Nýr forstöðumaður hjá Arion kemur frá Landsbankanum
Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður fasteigna og innviða hjá fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Hún kemur til Arion frá Landsbankanum.

Annmarkar á vörnum allra stóru bankanna gegn peningaþvætti
Fjármálaeftirlit Seðlabankans hefur talið vera annmarka á vörnum allra stóru viðskiptabankanna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka eftir að það framkvæmdi vettvangsathugun hjá bönkunum á liðnu ári. Arion banki hefur nýlega óskað eftir því að ljúka málinu gagnvart fjármálaeftirlitinu með sátt.

Segja Seðlabankann vilja neyða neytendur í fang bankanna
Neytendasamtökin hafa skrúfað saman ályktun þar sem fordæmt er að seljendur geti hafnað því að taka við reiðufé þegar vara er keypt.

Íslandsbanki gæti verið sektaður fyrir ónægar varnir gegn peningaþvætti
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands telur nokkra annmarka hafa verið á umgjörð og eftirliti Íslandsbanka í tengslum við varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem bankanum ber að framfylgja samkvæmt lögum. Íslandsbanki hefur ekki mótmælt niðurstöðum fjármálaeftirlitsins en líklegt er að málinu muni ljúka með samkomulagi um sátt og stjórnvaldssekt.

„Við erum ekki að taka meiri áhættu,“ er sagt um hraustlegan vöxt Varðar
Iðgjöld Varðar, tryggingafélags Arion banka, jukust um 18,6 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Stjórnendur segja að vöxturinn stafi ekki af aukinni áhættutöku heldur sé verið að dreifa áhættu með því að stækka á meðal fyrirtækja. Áður hafi áherslan verið á einstaklinga.

Barbara Inga ráðin regluvörður Íslandsbanka
Barbara Inga Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Regluvörslu Íslandsbanka.

Arion banki skilaði 6,1 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi
Arion banki hagnaðist um 6.131 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2023, í samanburði við 5.008 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á þriðja ársfjórðungi
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 var 22,4 milljarðar króna, þar af 7,9 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi.

Stóru viðskiptabankarnir þrír lokaðir á morgun
Landsbankinn og Íslandsbanki munu loka útibúum sínum um allt land vegna kvennaverkfallsins á morgun. Fyrr í dag var greint frá því að Arion banki myndi loka af sömu ástæðu. Þar af leiðandi verða útibú stóru viðskiptabankanna þriggja lokuð.