
Palestína

Um hernámsveldi og hryðjuverkamenn
Það vill gleymast í umfjöllun fjölmiðla og áhorfenda um fjöldamorðin á hernumdu svæðunum í Palestínu, að Gaza, þar sem fórnarlömbin eru að stærstum hluta óbreyttir borgarar, konur og börn, er í raun flóttamannabúðir.

Tugir særðir eftir átök við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem
Ísraelskar öryggissveitir beittu gúmmíkúlum og blossasprengjum gegn Palestínumönnum fyrir utan al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í gær, aðeins hálfum degi eftir að vopnahléssamningar voru samþykktir bæði af Ísraels- og Palestínumönnum.

Erfið enduruppbygging framundan á Gasa
Vopnahlé tók gildi í morgun eftir ellefu daga átök Ísraelshers og Hamas-samtakanna. Rauði krossinn á Íslandi hefur safnað þrjátíu milljónum króna sem munu nýtast í mannúðaraðstoð á svæðinu.

Vopnahlé hefur tekið gildi
Vopnahléssamningur milli Ísraelsmanna og Hamas-samtakanna tók gildi nú klukkan 23 á íslenskum tíma. Greint var frá því fyrr í kvöld að ríkisstjórn Ísraels hefði ákveðið að ganga að samningnum en óljóst var hvenær hann myndi taka gildi.

Samþykkja vopnahlé á Gasa
Ísraelar hafa ákveðið að samþykkja vopnahléssamning en hafa enn ekki ákveðið hvenær hann á að taka gildi. Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú hefur fundað um vopnahlé frá klukkan fimm í dag.

Kærir Útlendingastofnun fyrir að svipta Palestínumann mat og húsnæði
Lögmaður palestínsks flóttamanns hefur kært ákvörðun Útlendingarstofnunar um að svipta hann húsnæði og fæði til kærunefndar útlendingamála. Lögmaðurinn segir framferði stofnunarinnar með öllu ólögmætt.

Fjórtán hafa misst þjónustu fyrir að gangast ekki undir Covid-próf
Fjórtán einstaklingar hafa misst þjónustu á vegum Útlendingastofnunar eftir að hafa neitað að fara í Covid-19 próf þegar til stóð að senda þá úr landi. Þeir hafa nú misst húsnæði og fæðisgreiðslur á vegum Útlendingastofnunar. Stofnunin neitar því að aðgerðirnar brjóti gegn mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Bjartsýnn á að samið verði um vopnahlé á næstu dögum
Háttsettur meðlimur í Hamas-samtökunum segist bjartsýnn á að tilraunir til að koma á vopnahléi á Gasasvæðinu muni bera árangur á næstu dögum.

Eygja möguleika á vopnahléssamningi á föstudag
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, virðist ekki ætla að verða við ákalli Bandaríkjaforseta Joe Bidens um að draga verulega úr loftárásum á Gasa-svæðið. Þvert á móti gaf hann það út eftir samtal þeirra í dag að hann myndi gefa í árásirnar.

Lágmarksréttindi
Þó að þjóð A hafi ofsótt þjóð B veitir það þjóð B ekki leyfi til að sölsa undir sig land þjóðar C.

Biden þrýsti á Netanjahú og sagðist vænta færri árása
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, býst við töluverðum samdrætti í árásum Ísraelsmanna á Gasa-ströndinni í dag. Þetta sagði hann í samtali við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í dag.

Flóttafólk svelt til hlýðni
„Nú eru tíu umsækjendur um alþjóðlega vernd komnir á götuna eftir að Útlendingastofnun henti þeim út og svipti þá framfærslu. Skítt með mannúð og mannréttindi, það á að svelta þetta flóttafólk til hlýðni þannig að sé hægt að pína það aftur í óboðlegar aðstæður í gríska hæliskerfið,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata á Alþingi í dag.

Segja ekkert vopnahlé á borðinu
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekkert vopnahlé til umræðu á milli Ísraela og Hamas-samtakanna. Enn geisa hörð átök og á þriðja hundrað hafa farist í loftárásum á Gasasvæðið.

Paul Pogba gekk með palestínska fánann um Old Trafford eftir leik
Manchester United leikmennirnir Paul Pogba og Amad Diallo gerðust báðir mjög pólitískir eftir leik Manchester United og Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Ísland með mannréttindum?
Fyrir tæplega tíu árum síðan viðurkenndi Ísland Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Nú þegar svívirðileg mannréttindabrot eru að eiga sér stað þar í landi er vitaskuld hávært ákall um aðgerðir íslenskra stjórnvalda til stuðnings Palestínu.

Þrýstingur um vopnahlé fer vaxandi
Þrýstingur alþjóðasamfélagsins um vopnahlé á Gasa-svæðinu fer nú vaxandi en Egyptar segjast nú vilja koma vopnahléi á strax á morgun.

Ekkert útlit fyrir vopnahlé í bráð
Ekkert útlit er fyrir að vopnahlé náist í bráð milli Ísraels og Hamas-samtakanna á Gasa. Það er þrátt fyrir aukinn alþjóðlegan þrýsting á að vopnahléi verði komið á. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að árásir Ísraelshers hafi komið verulega niður á starfsemi Hamas.

Íslenskir ráðamenn þrýstu á Blinken um lausn fyrir botni Miðjarðarhafs
Íslenskir ráðmenn þrýstu á Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum með honum í dag að gera allt sem í hans valdi stæði til að stöðva átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Hann er sammála stefnu íslenskra stjórnvalda um að tveggja ríkja lausn í samskiptum Ísraels og Palestínu sé besta skrefið varðandi framtíð ríkjanna.

Ísraelsstjórn mótmælt víða um heim
Fjölmenn mótmæli voru víða gegn loftárásum Ísraela á Gasasvæðið í dag. Ekkert lát er á árásunum né eldflaugaskotum Hamas-samtakanna á ísraelskar borgir.

Palestínumanni vísað á götuna eða til Grikklands
Palestínumaður, sem hefur verið synjað um hæli hér á landi, segist vilja búa á Íslandi með fjölskyldu sinni sem er enn á Gaza. Til stendur að senda hann aftur til Grikklands þar sem lögmaður segir aðstæður vera óboðlegar og mun verri en áður en faraldurinn skall á.

Katrín: Mikil valdabarátta í aðdraganda fundarins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist merkja mikla valdabaráttu í aðdraganda fundar Norðurskautsráðsins á morgun. Þjóðirnar séu að marka sér stöðu. Þetta sagði Katrín í viðtali við fréttastofu að loknum fundi hennar með Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Styðja ekki yfirlýsingar sem séu ekki vænlegar til árangurs
Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs komu sannarlega við sögu á blaðamannafundi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Íslands í Hörpu í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafnar því að þjóð hans standi í vegi fyrir að friði verði komið á. Bandaríkin styðji þó ekki aðgerðir sem ekki séu vænlegar til árangurs.

„Við verðum að standa með mannréttindum og eigin samvisku“
Einn forsvarsmanna mótmælanna við Hörpu í morgun segir að nú þurfi íslensk stjórnvöld að sýna Palestínumönnum stuðning í verki og setja viðskiptabann á Ísrael. Þá sé stuðningi Bandaríkjanna við hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna gegn Palestínu harðlega mótmælt.

Tekið á móti Blinken með Palestínufánum
Hópur fólks er saman kominn fyrir utan Hörpu í miðbæ Reykjavíkur með Palestínuskilti á lofti. Markmiðið er að minna utanríkisráðherra Bandaríkjanna á málstað frjálsrar Palestínu í skugga árása Ísraelshers á landið.

Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við vopnahlé á Gasa
Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í nótt að hann styðji kröfur um vopnahlé á Gasa-svæðinu þar sem ísraelski herinn hefur nú látið sprengjum rigna yfir íbúðabyggð í átta daga og Hamas-liðar hafa sent eldflaugar yfir til Ísraels á móti.

Ræðir Palestínu og Ísrael við Blinken og Lavrov
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun hvetja utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands til þess að beita sér fyrir friðsamlegri lausn á átökum Ísraels og Palestínu á fundi þeirra í vikunni.

Eldflaugaárásum svarað með einum hörðustu loftárásunum til þessa
Leiðtogi vopnaðrar sveitar Palestínumanna er sagður hafa fallið í hörðum loftárásum Ísraela á Gasaströndina í nótt. Ísraelar segja árásirnar hafa beinst að leiðtogum Hamassamtakanna eftir að vopnaðar sveitir Palestínumanna skutu eldflaugum að borgum í sunnanverðu Ísrael.

Sýndu Palestínu stuðning í bikarfögnuðinum á Wembley
Þegar Hamza Choudhury og Wesley Fofana gengu um Wembley-leikvanginn á laugardaginn, sem nýkrýndir bikarmeistarar í enskum fótbolta með liði Leicester, héldu þeir fána Palestínu á lofti.

Gærdagurinn sá mannskæðasti til þessa
Leiðtogar Palestínumanna á Gasa-svæðinu segja að gærdagurinn hafi verið sá mannskæðasti til þessa eftir að Ísraelar hófu árásir á svæðið fyrir um viku. Fullyrt er að fjörutíu og tvö hafi látið lífið í árásum Ísraelshers, þar á meðal voru sextán konur og tíu börn.

Sér ekki fram á að árásum linni
Forsætisráðherra Ísrael segir árásir Ísraelshers halda áfram og að hann sjái ekki fram á að þeim linni í bráð. Ísrael sé einungis að verjast árásum Hamas og markmiðið sé að fella liðsmenn samtakanna, sem að hans mati séu að nota óbreytta borgara sem skildi.