EM 2022 í Englandi

Grátlegt: Meiddist nokkrum dögum fyrir EM og missir af mótinu
Norska landsliðskonan Lisa Naalsund hefur spilað frábærlega með Brann undanfarin ár og var ætlað stórt hlutverk í norska kvennalandsliðinu á EM í fótbolta. Ekkert verður þó af því að Lisa fari með til Englands.

Aldrei fleiri mæður á EM: „Eitthvað sem ætti að hvetja allar konur áfram“
Aldrei áður hafa jafn margar mæður tekið þátt í Evrópumeistaramótinu í fótbolta en munu taka þátt á EM í Englandi sem hefst eftir tæpar tvær vikur. Ísland er sú þjóð sem er með flestar mæður í sínum leikmannahóp, eða fimm talsins.

Segir þjálfarateymi Real ætlast til að leikmenn spili þó þeir séu meiddir
Sænski framherjinn Kosovare Asllani segir umhverfi kvennaliðs Real Madríd óheilbrigt og hættulegt. Þjálfarateymið hlusti ekki á sjúkraþjálfara né lækna félagsins og ætlist til að leikmenn spili þó meiddir séu.

Fjórtán dagar í EM: „Ég á sjö frabær systkini“
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn og harðhausinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er næst í röðinni.

Stelpurnar sendar með stæl á EM | Eins og Rihanna væri komin til Barbados
Það var stórkostleg stemning á Laugardalsvelli í gær er stelpurnar okkar tóku sína síðustu æfingu á Íslandi fyrir EM.

Myndaveisla: Gríðarleg stemning á opinni æfingu Stelpnanna okkar
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er á leiðinni á EM á Englandi. Liðið er á leið til Póllands á mánudag í næsta fasa undirbúningsins. Íslenska liðið var með opna æfingu á Laugardalsvelli í dag.

Fimmtán dagar í EM: Er að læra taugafræði í Harvard og elskar mjólkurgraut með súru slátri og rúsínum
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Ungstirnið Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks og nemandi við Harvard háskóla, er næst í röðinni.

Stelpurnar okkar bjóða alla velkomna á æfingu í dag
Þeir Íslendingar sem vilja hitta Sveindísi, Söru Björk, Glódísi og aðra leikmenn íslenska landsliðsins í fótbolta geta mætt á opna æfingu í dag, í aðdraganda þess að hópurinn heldur af landi brott vegna Evrópumótsins í Englandi.

Mikil bjartsýni á meðal sérfræðinganna fyrir EM
Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum eru fullir bjartsýni fyrir hönd íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta sem hefur leik á EM í Englandi 10. júlí.

„Þær eru smá dramadrottningar“
Sérfræðingar Bestu markanna rýndu í mótherja Íslands á EM kvenna í fótbolta í sérstökum upphitunarþætti sínum fyrir EM á Stöð 2 Sport á miðvikudagskvöld.

Sextán dagar í EM: Elskar fisk og hefur unnið söngvakeppni Kópavogs
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn, og leikmaður Bayern München, Glódís Perla Viggósdóttir er næst í röðinni.

„Ef að Sara getur byrjað þá byrjar hún“
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur ekki verið í byrjunarliði í fótboltaleik síðan í mars árið 2021 en sérfræðingar Bestu markanna telja engu að síður að hún verði í byrjunarliði Íslands á EM í Englandi.

Sú markahæsta óvænt til Mexíkó og ekki með á EM
Spænska landsliðið hefur orðið fyrir miklu höggi í aðdraganda Evrópumótsins sem fram fer í Englandi í júlí. Stórstjarnan Jennifer Hermoso verður ekki með liðinu á mótinu og það sem meira er, hún yfirgefur stórlið Barcelona fyrir lið í Mexíkó.

„Ekki þannig að við séum að skilja leikmann eftir“
Þó að vissulega geri fleiri leikmenn tilkall til þess að komast í EM-hóp Íslands þá höfðu sérfræðingarnir í Bestu mörkunum ekkert út á val Þorsteins Halldórssonar landsliðsþjálfara að setja.

„Myndi vilja sjá okkur fara upp úr riðlinum“
„Ótrúlega gaman, erum allar búnar að vera bíða eftir þessu og ég held að það séu allar mjög spenntar,“ sagði Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður Eintracht Frankfurt og íslenska landsliðsins, um undirbúning íslenska landsliðsins fyrir EM í fótbolta sem fram fer í júlí.

Gaf mikið að sjá íslensku skrúðgönguna og ein úr henni komst í landsliðið
Harpa Þorsteinsdóttir segir aðra stemningu í kringum íslenska landsliðið í fótbolta fyrir EM kvenna í Englandi í næsta mánuði heldur en var fyrir síðasta stórmót, EM í Hollandi 2017.

KSÍ fékk aukamiða á EM
Knattspyrnusamband Íslands hefur tilkynnt að hægt sé að fá miða á Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Englandi. Fékk sambandið nokkuð óvænt fleiri miða upp í hendurnar.

„Íslenska leiðin er ekkert þannig lengur“
Harpa Þorsteinsdóttir segir að það eigi ekki lengur við íslenska kvennalandsliðið í fótbolta að liggja bara í vörn gegn sterkum mótherjum. Hún telur Ísland eiga að geta stjórnað leikjunum gegn Belgíu og Ítalíu á EM í næsta mánuði.

Sautján dagar í EM: „Spilaði á þverflautu frá sex ára aldri út fyrsta árið í Verzló“
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Næst í röðinni er hin lunkna Agla María Albertsdóttir sem leikur með BK Häcken í Svíþjóð.

Stelpurnar okkar gætu mest unnið 290 milljónir króna
Innan við tvær vikur eru í að flautað verði til leiks á EM kvenna í fótbolta og þar er eftir mun hærri fjárhæðum að slægjast en nokkru sinni í sögu mótsins.

„Mögulega frábært fyrir landsliðið að fólk sé að setja þessa pressu á hana“
„Ég held að hún sé einn mest spennandi leikmaður mótsins,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir um Sveindísi Jane Jónsdóttur, í sérstökum EM-upphitunarþætti Bestu markanna.

Átján dagar í EM: Næringarfræðingurinn fær fjölskylduna á fjórða stórmótið
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Eyjakonan Elísa Viðarsdóttir er sú sjötta í röðinni.

Átján dagar í EM: Á besta stuðningsliðið og borðar ekki smjör
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München, fær þann heiður að vera fimmta í röðinni.

Nítján dagar í EM: Púllari sem vann sem endurskoðandi og hlustar á gospel-tónlist
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Varnarmaðurinn Guðrún Arnardóttir er önnur í röðinni.

Nítján dagar í EM: Finnst sveppir ógeðslegir, elskar að prjóna og er sprenglærð
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham United, er þriðja í röðinni.

Spánarferðir, frí án kvaða og skrepptúrar á EM í pásunni löngu
Í gær kom íslenska kvennalandsliðið í fótbolta saman til æfinga fyrir Evrópumótið í Englandi. Það þýðir jafnframt að nú er komið frí í Bestu deildinni og því lýkur ekki fyrr en 28. júlí. Mismunandi er hvernig liðin í deildinni nýta hléið.

Sveindís Jane: Getum farið eins langt og við viljum
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, telur að íslenska landsliðið getur farið eins langt á EM og liðinu langar. Hún telur möguleikana mikla fyrir landsliðið.

Sara Björk: Steini ekki búinn að ákveða fyrirliðabandið
„Nei nei,“ svarði Sara Björk og hló, aðspurð að því hvort henni finnst ekki skrítið að bera ekki fyrirliðabandið hjá íslenska landsliðinu í viðtali við Stöð 2.

BBC skrifar um íslenska landsliðið
BBC birti í vikunni umfjöllum um íslenska landsliðið í fótbolta í aðdraganda Evrópumótsins á Englandi í sumar.

Tuttugu dagar í EM: „Dagný er seinust í 95 prósent tilvika“
Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Grindvíkingurinn Ingibjörg Sigurðardóttir er önnur í röðinni.