Norski boltinn

Áfram heldur dramatíkin hjá Íslendingaliðinu
Það hefur stormað um norska liðið Strømsgodset undanfarnar vikur en með liðinu leika Íslendingarnir Ari Leifsson og Valdimar Þór Ingimundarson.

Þjálfari Íslendingaliðs hættur vegna ásakana um rasisma
Daninn Henrik Pedersen er hættur þjálfun norska úrvalsdeildarliðsins Strømsgodset vegna ásakana um rasisma.

Leikmenn Íslendingaliðs krefjast þess að stjórinn verði rekinn
Samkvæmt heimildum TV 2 í Noregi krefjast nokkrir leikmenn Strømsgodset að danska þjálfaranum Henrik Pedersen verði tafarlaust sagt upp störfum.

Þjálfari Ara og Valdimars í funheitu sæti eftir rasísk skilaboð
Henrik Pedersen, þjálfari Strømsgodset í norsku úrvalsdeildinni, er í kastljósi fjölmiðla þennan föstudaginn en hann er sakaður um kynþáttafordóma innan veggja norska liðsins.

Drama hjá meistaraliðinu: Samherji Alfonsar yfirgaf hótelið án þess að láta neinn vita
Alfons Sampsted er með íslenska landsliðinu að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Liechenstein á morgun en það er dramatík í herbúðum félagsliðs hans, Bodø/Glimt.

Bönnuðu Viðari ekki að fara í landsleikina
Vålerenga bannaði Viðari Erni Kjartanssyni ekki að fara í landsleiki Íslands í undankeppni HM 2022 í þessum mánuði. Þetta segir yfirmaður íþróttamála hjá norska félaginu.

Norðmenn seinka fótboltadeildunum sínum fram í maí
Nýtt tímabil í norska fótboltanum byrjar ekki á réttum tíma vegna kórónuveirunnar. Norska knattspyrnusambandið hefur tekið þá ákvörðun að seinka byrjun mótanna.

Brynjólfur til Noregs eftir EM: Leikmaður sem stuðningsmenn gætu dýrkað
Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur Andersen Willumsson er orðinn leikmaður Kristiansund en norska félagið er sagt kaupa Brynjólf fyrir metfé.

Brynjólfur sagður stinga sér til Kristiansunds fyrir metfé
Norska úrvalsdeildarfélagið Kristiansund hefur náð samkomulagi við Breiðablik um kaup á knattspyrnumanninum unga Brynjólfi Andersen Willumssyni.

Karlrembukveðja á vegg þjálfarans blasti við í sjónvarpsviðtali
Norðmenn eru mjög hneykslaðir á forráðamönnum knattspyrnufélagsins Brann vegna skilaboða sem norska þjóðin fékk í gegnum sjónvarpið með morgunmatnum sínum.

Ingibjörg og norsku meistararnir úr leik eftir vítakeppni
Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur hennar í Vålerenga eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap fyrir Brøndby í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum keppninnar í dag.

Alfons og allir í meistaraliði Bodö/Glimt í sóttkví
Titilvörn norsku meistarana í Bodö/Glimt fer ekki nógu vel af stað. Liðið er reyndar ekki byrjað að spila en gengur illa að æfa þökk sé kórónuveirufaraldursins.

Lærisveinn Jóhannesar mætti smitaður í lyftingasal félagsins
Leikmaður norska Íslendingaliðsins Start hefur viðurkennt að hafa brotið gróflega sóttvarnarreglur í síðasta mánuði.

Vildu ekki fá gervigras á völlinn sinn
Það er ekki auðvelt að halda við grasvelli í Bergen og því langskynsamlegast að skipta yfir í gervigras. Yfirmönnum norska fótboltafélagsins Brann tókst þó ekki að sannfæra sitt fólk.

Molde staðfestir komu Björns
Björn Bergmann Sigurðarson er genginn í raðir Molde frá Lillestrøm. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag.

Mega hvorki spila á heimavelli né nota nýja íslenska leikmanninn sinn
Ingibjörg Sigurðardóttir og félagar hjá Noregsmeisturum Vålerenga eru búnar að missa heimaleik sinn í 32 liða úrslitum Meistaradeildarinnar vegna kórónuveirunnar.

Mættur til norsku meistaranna samkvæmt Tinder
Noregsmeistarar Bodö/Glimt í fótbolta eru að landa sænska miðjumanninum Axel Lindahl en hann kemur til félagsins frá sænska félaginu Degerfors. Það kom í ljós í stefnumótaappinu Tinder að Lindahl væri mættur til Noregs.

Björn í eitt besta lið Noregs því að peningar tala
Knattspyrnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er á leið til síns gamla félags Molde frá Lilleström ef fað líkum lætur, þrátt fyrir að hafa sýnt því mikinn áhuga að vera áfram hjá Lilleström. „Ég fékk tilboð sem ég gat ekki hafnað,“ segir Björn.

Emil klár í „skítverkin“ hjá Sarpsborg
Knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson hefur söðlað um í norsku úrvalsdeildinni og er orðinn leikmaður Sarpsborg eftir að hafa leikið með Sandefjord árin sín þrjú í atvinnumennsku hingað til.

Guðbjörg fékk veiruna og finnur enn enga lykt
Guðbjörg Gunnarsdóttir þarf ekki að fara í sóttkví við komuna til síns nýja knattspyrnufélags Arna-Björnar í Noregi, frá Svíþjóð, vegna þess að hún smitaðist af kórónuveirunni um miðjan nóvember.

Ótrúlega stolt að hafa fætt tvö börn og fengið strax samning hjá nýju félagi
Innan við ári eftir að hafa fætt tvíbura í Stokkhólmi hefur landsliðsmarkmaðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir nú skrifað undir samning við nýtt félag, norska úrvalsdeildarfélagið Arna-Björnar.

Liðsfélagi Alfons keyptur til Englands eftir frábært tímabil
Frábær árangur norska meistaraliðsins Bodo/Glimt hefur ekki farið fram hjá knattspyrnufélögum í stærri deildum Evrópu.

Emil á förum frá Sandefjord
Íslenski knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson er í leit að nýju félagi eftir að hafa leikið með norska liðinu Sandefjord undanfarin þrjú ár.

Pabbi Ødegaards nýr stjóri Viðars og mögulega Emils
Hans Erik Ødegaard er væntanlega mest þekktur fyrir að vera pabbi Martins Ødegaard. Hann er hins vegar nýr stjóri Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni.

Lokaumferðin í Noregi: Viðar Örn og Matthías felldu Start, markalaust í Íslendingaslagnum
Alls fóru fimm leikir fram í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Viðar Örn Kjartansson skoraði er Vålerenga felldi Start og tryggði sér 3. sæti deildarinnar. Þá gerðu Sandefjord og Rosenborg markalaust jafntefli.

Amanda til norsku meistaranna
Hin bráðefnilega Amanda Andradóttir hefur samið við Noregsmeistara Vålerenga. Hún kemur til þeirra frá Nordsjælland í Danmörku.

Alfons og félagar kláruðu tímabilið með glæsibrag - Valdimar og Ari lausir við falldrauginn
Alfons Sampsted og félagar hans í norska úrvalsdeildarliðinu Bodo/Glimt voru langbestir í Noregi á leiktíðinni sem nú er að ljúka.

Noregs- og bikarmeistarinn Ingibjörg í liði ársins | Myndband
Landsliðsmiðvörðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir var valin í lið ársins í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá fréttastofunni NTB.

Ingibjörg hógvær þrátt fyrir að hafa unnið allt sem hægt var að vinna
Á sínu fyrstu tímabili í Noregi varð Ingibjörg Sigurðardóttir Noregs- og bikarmeistari ásamt því að vera kosin leikmaður ársins. Hún segist hafa vitað liðið væri gott en árangurinn hafi vissulega komið á óvart.

Ingibjörg á forsíðu íþróttablaðs Verdens Gang
Ingibjörg Sigurðardóttir er á forsíðu íþróttablaðs norska dagblaðsins Verdens Gang í dag þar sem hún fagnar bikarmeistaratitli Vålerenga.