Þingkosningar í Danmörku

Pia Kjærsgaard hættir í pólitík
Danska þingkonan Pia Kjærsgaard hefur tilkynnt að hún muni ekki sækjast eftir endurkjöri í næstu kosningum og muni hún þá láta af afskiptum af stjórnmálum. Kjærsgaard hefur setið á danska þinginu óslitið í fjörutíu ár, lengst af fyrir Danska þjóðarflokkinn.

Mette Frederiksen sögð hafa tekið kröftuga hægri beygju
Ný þriggja flokka ríkisstjórn Mette Frederiksen, leiðtoga jafnaðarmanna, tók við völdum í Danmörku í dag. Stjórnarskiptin þykja söguleg þar sem þetta er í fyrsta sinn í 44 ár sem Danir fá ríkisstjórn yfir miðjuna í samstarfi vinstri, miðju og hægri flokka.

Løkke verður utanríkisráðherra
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, kynnti ráðherrana í nýrri ríkisstjórn Jafnaðarmannaflokksins, hægriflokksins Venstre og miðjuflokksins Moderaterne í morgun.

Afnema einn frídag og setja kolefnisskatt á landbúnaðinn
Ný ríkisstjórn Danmerkur hyggst vinna að fjölgun starfa og afnema einn frídag til að fá Dani til að vinna meira. Þá stendur til að setja á sérstakan kolefnisskatt á landbúnaðinn.

Mette myndar ríkisstjórn með Venstre og Moderaterne
Jafnaðarmannaflokkurinn, hægriflokkurinn Venstre og miðjuflokkurinn Moderaterne hafa myndað ríkisstjórn með Mette Frederiksen í forystu. Frederiksen fundaði með drottningunni fyrr í kvöld.

Ellemann-Jensen opnar á stjórnarsamstarf með Jafnaðarmönnum
Jakob Ellemann-Jensen, formaður danska hægriflokksins Venstre, opnaði í gær á að mynduð verði ríkisstjórn með Jafnaðarmannaflokki Mette Frederiksen forsætisráðherra. „Kannski,“ sagði Ellemann-Jensen í samtali við TV2 í gær.

Segir af sér sem formaður Radikale Venstre
Sofie Carsten Nielsen hefur sagt af sér sem formaður miðjuflokksins Radikale Venstre.

Talningingaklúðrið hafði ekki áhrif á skiptingu þingsæta
Skipting þingsæta breytist ekki eftir endurtalningu í kjördæminu Frederikshavn í Danmörku þar sem klúður varð í talningu atkvæða í dönsku þingkosningum í gær.

Talningaklúður í Danmörku: Mörg hundruð atkvæða færast frá rauðu blokkinni til bláu
Röng niðurstaða var kynnt í kjördæminu Frederikshavn í Danmörku eftir að ljóst varð að talningamenn í Sæby höfðu ruglast á bunkum og talið atkvæði Danmerkurdemókrata sem atkvæði Einingarlistans.

Mette gengur á fund drottningar klukkan tíu
Mette Frederiksen, formaður danskra Jafnaðarmanna og forsætisráðherra, mun ganga á fund Margrétar Þórhildar Danadrottningar klukkan tíu að íslenskum tíma. Þar munu þær ræða niðurstöður þingkosninganna sem fram fóru í Danmörku í gær.

Mette með pálmann í höndunum eftir sviptingar á ögurstundu
Mette Frederiksen og Jafnaðarmannaflokkur hennar styrktu stöðu sína í þingkosningunum í Danmörku í kvöld. Afar mjótt var á munum og leit í fyrstu út fyrir að Moderaterne yrðu í lykilstöðu við myndun ríkisstjórnar. Nú er ljóst að Frederiksen getur myndað meirihlutastjórn með vinstri flokkum.

Lars Løkke í lykilstöðu
Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, er í lykilstöðu við myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku. Jafnaðarmannaflokkurinn er enn langstærstur en hvorki vinstri- né hægriblokk munu takast að mynda ríkisstjórn án Moderaterne.

Mette nær ekki að mynda meirihluta án Moderaterne
Mette Fredriksen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, heldur ekki meirihluta samkvæmt fyrstu útgönguspám. Erfitt verður að mynda ríkisstjórn án Moderaterne, samkvæmt nýjustu tölum.

Drottning veitir Mette sennilega umboð til myndunar nýrrar stjórnar
Formaður Norræna félagsins telur líklegt að Margrét önnur Danadrottning muni veita Mette Frederiksen forsætisráðherra fyrstri umboð til myndun nýrrar stjórnarað loknum þingkosningum í Danmörku í dag. Enda hafi leiðtogi nýs miðjuflokks opnað á samstarf við vinstriflokkana.

Kosið í Danmörku: Løkke líklegur til að verða í lykilstöðu
Danir ganga að kjörborðinu í dag til að kjósa sér nýtt þing. Spennan er mikil og benda kannanir til að forsætisráðherrann fyrrverandi, Lars Løkke Rasmussen, muni verða í lykilstöðu þegar búið er að telja upp úr kjörkössunum.

Færeyingar kjósa nýja þingmenn sína á danska þinginu
Þingkosningar fara fram í Danmörku á morgun. Færeyingar munu þó kjósa um sína tvo fulltrúa á danska þinginu þegar í dag. Stjórnvöld í Færeyjum óskuðu eftir að kjósa sína fulltrúa á danska þinginu á öðrum degi en 1. nóvember þar sem um sé að ræða dag þar sem Færeyingar minnast látinna sjómanna.

Nýir flokkar hrista hressilega upp í danska stjórnmálalandslaginu
Það stefnir í spennandi þingkosningar í Danmörku eftir rúma viku og benda kannanir til að tveir nýir flokkar muni hrista hressilega upp í hinu pólitíska landslagi.

Frederiksen boðar til þingkosninga 1. nóvember
Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 1. nóvember næstkomandi. Frá þessu greindi forsætisráðherrann á blaðamannafundi klukkan 11 í morgun.

Boðaði ekki til þingkosninga
Danska þingið var sett í morgun eftir sumarhlé en fyrirfram bjuggust margir við að forsætisráðherrann Mette Frederiksen myndi nýta tækifærið í stefnuræðu sinni og boða til þingkosninga. Ekkert varð þó úr því.

Lygasjúki þingmaðurinn skilur við eiginmann sinn
Formaður danska Íhaldsflokksins, Søren Pape Poulsen, er að skilja við eiginmann sinn Josue Medina Vasquez. Poulsen hefur síðustu ár verið staðinn að ítrekuðum lygum um Vasquez og hét því nýlega að einungis segja sannleikann héðan í frá.

Inger Støjberg stofnar Danmerkurdemókrata
Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála og varaformaður Venstre, hefur tilkynnt að hún hafi stofnað nýjan flokk – Danmerkurdemókrata.

Fór á fund drottningar
Hin nýja danska stjórn hefur birt átján blaðsíðna stjórnarsáttmála þar sem loftslagsmálin vega einna þyngst.

Mette Frederiksen fer fyrir nýmyndaðri minnihlutastjórn jafnaðarmanna
Mette Fredriksen, formaður danska jafnaðarmannaflokksins, mun fara fyrir nýmyndaðri minnihlutastjórn Danmerkur.

Tekur við starfi þingforseta af Piu
Henrik Dam Kristensen verður kjörinn nýr forseti danska þingsins á morgun.

Hinn 27 ára Vanopslagh nýr formaður Frjálslynda bandalagsins
Alex Vanopslagh tekur við formannsembætti af Anders Samuelsen sem missti þingsæti sitt í nýafstöðnum þingkosningum.

Frederiksen ræddi loftslagsmál við fulltrúa líklegra samstarfsflokka
Leiðtogi danskra Jafnaðarmanna kveðst ánægð með ganginn í stjórnarmyndunarviðræðum hennar við fulltrúa annarra flokka á vinstri vængnum.

Súrsætur sigur jafnaðarmanna í Danmörku
Logi Einarsson telur fylgisaukningu danskra jafnaðarmanna dýru verði keypta.

Mette Frederiksen komin með umboð til stjórnarmyndunar
Margrét Þórhildur Danadrottning hefur veitt Mette Fredriksen, formanni jafnaðarmanna, stjórnarmyndunarumboð og fær hún því að reyna fyrir sér fyrst allra formanna. Þrátt fyrir öruggan meirihluta vinstriflokkanna eru snúnar stjórnarmyndunarviðræður framundan.

Mette boðar stjórn Jafnaðarmanna: „Þið hafið beðið um nýja ríkisstjórn“
Útlit er fyrir að Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, verði næsti forsætisráðherra Danmerkur.

Viðurkennir ósigur bláu blokkarinnar en vill halda forsætisráðherrastóli
Forsætisráðherra viðurkennir ósigur bláu blokkarinnar og heldur á fund drottningar á morgun til að biðjast lausnar.