Viðskipti

Óskar hættur hjá Og Vodafone
Samkomulag hefur orðið á milli Óskars Magnússonar, forstjóra Og Vodafone (Og fjarskipta hf.), og stjórnar félagsins um að Óskar láti af störfum forstjóra. Viðar Þorkelsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Og Vodafone, mun gegna starfi forstjóra tímabundið.

Með breiðþotu til Frisco
Flugleiðir ætla að hefja áætlunarflug til San Francisco næsta vor. Flugleiðir munu samhliða því taka í notkun breiðþotu af gerðinni Boeing-767 sem tekur 270 farþega. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða segir þessa útvíkkun leiðakerfisins marka ákveðin tímamót.

Íslandsbanki með 90%
Íslandsbanki hefur fengið samþykki yfir nítíu prósenta hluthafa í norska bankanum Kredittbanken. Þetta þýðir að innlausnarskylda hefur myndast og aðrir hluthafar þurfa að ganga að yfirtökutilboði Íslandsbanka.

Engin ógn af uppgreiðslu lána
Uppgreiðsla lána Íbúðalánasjóðs ógnar ekki stöðu sjóðsins, að sögn Halls Magnússonar, sérfræðings hjá Íbúðalánasjóði.

Þarf samþykki Fjármálaeftirlitsins
Samþykki Fjármálaeftirlitsins þarf til þess að kaup Straums á ríflega fjórtán prósenta hlut í Íslandsbanka standist. Deilt er um hvað liggur að baki viðskiptunum, ýmist er talað um að Landsbankamenn ætli sér bakdyrameginn inn í Íslandsbanka eða að þeir séu að breiða yfir vandræðagang vegna misheppnaðra tilrauna til að ná þar yfirráðum.
Algengt gigtarlyf tekið af markaði
Í ljós hefur komið að gigtarlyfið Vioxx getur valdið aukinni hættu á hjarta- og æðabilun. Framleiðandi lyfsins tilkynnti í gær að hætt yrði að selja lyfið. Á bilinu eitt þúsund og fimm hundruð og tvö þúsund Íslendingar taka lyfið Vioxx reglulega.

6,1 milljarðs halli á ríkissjóði
6,1 milljarðs króna halli varð á rekstri ríkissjóðs á síðasta ári samanborið við 8,1 milljarðs króna halla árið á undan. Þetta kemur fram í niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2003 sem birtar voru í dag. Tekjur ársins urðu 275 milljarðar króna en gjöldin námu 281 milljarði króna.

Samkeppni við Google harðnar
Bóksalinn Amazon opnaði fyrir skömmu nýja leitarvél á slóðinni a9.com. Leitin þar byggist á svipaðri tækni og Google. Viðmótið er einfalt en til viðbótar upplýsingum í textaformi sýnir leitarvél Amazon einnig þær myndir sem vélin finnur á vefnum og geta tengst leitinni.

Halli vöruskipta 6,7 milljarðar
Halli á vöruskiptum við útlönd heldur áfram að vaxa hröðum skrefum og nam 6,7 milljörðum króna í síðasta mánuði en var aðeins átta hundruð milljónir í sama mánuði í fyrra. Hann er því um það bil sjö sinnum meiri núna.

KB hefur eignast FIH
KB banki hefur eignast danska bankann FIH og þar með meira en tvöfaldað stærð efnahagsreiknings síns. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að kaupverðið, 7292 milljónir danskra króna, hafi verið greiddar Swedbank, seljanda bankans.

Hagnaðurinn yfir tíu milljarðar
Íslandsbanki birti óvænt í dag tölur yfir hagnað sinn fyrstu átta mánuði ársins. Hagnaður bankans var 10,6 milljarðar króna samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri. Bankaráð Íslandsbanka ákvað á fundi sínum í gær að auka hlutafé bankans um 200 milljónir króna að nafnvirði, ríflega tvo milljarða að markaðsvirði.

Sjónvarpsstjóra í hvern sófa
Íslenska fjarskiptafyrirtækið Industria stendur fyrir ráðstefnu um fjarskiptamál í næstu viku. Í sjónmáli eru miklar breytingar á því hvernig fólk getur notfært sér sjónvarp, síma og Internet. Spádómar tæknifrömuða í lok síðustu aldar eru handan við hornið. </font /></b />

Reglum Kauphallarinnar breytt?
Forstjóri Kauphallar Íslands segir að samkvæmt verklagsreglum hafi verið opnað á ný fyrir viðskipti með hlutabréf Kaldbaks á fimmtudag, þrátt fyrir að endanleg niðurstaða lægi ekki fyrir um sameiningu fyrirtækisins og Burðaráss.

Líflegt á hlutabréfamarkaði
Líflegt var á hlutabréfamarkaði í dag en veltan nam 13,8 milljörðum króna. Þar af voru stór viðskipti með bréf Kaldbaks og Samherja sem tengjast sameiningu Burðaráss og Kaldbaks að því er segir í tilkynningu greiningardeildar Landsbankans.

Samson hagnaðist um 600 milljónir
Samson Holding, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga, hagnaðist um tæpar sex hundruð milljónir króna í viðskiptum með bréf í Kaldbaki í gær. Kaupfélag Eyfirðinga varð um leið af hagnaði sem nam sömu fjárhæð.

Útvörður Norðlendinga farinn
Norðlendingar stýra ekki lengur neinu stóru fjárfestingarfélagi eftir að Kaldbakur rann inn í Burðarás í gær, en Kaldbakur hafði verið einskonar útvörður Norðlendinga á þessu sviði.

Stjórnin einhuga um Símann
Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir stjórnarflokkana einhuga um hvernig standa skuli að sölu Símans. Hann lítur svo á að sú ákvörðun, að heppilegast sé að selja fyrirtækið í einu lagi, standi óhögguð. Auglýst verður eftir ráðgjafa vegna sölunnar um eða eftir helgi.

Stimpilgjald hvergi eins og hér
Samtök atvinnulífsins hafa látið kanna stimpilgjöld í nágrannalöndum okkar. Íslendingar eru í sérflokki þegar litið er til þessa skatts og bitnar gjaldið á einstaklingum og smærri fyrirtækjum.

Handbók um sérleyfisfyrirtæki
Út er komin handbók um stofnun og rektur sérleyfisfyrirtækja. Emil B. Karlsson, verkefnastjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu, ritaði bókina og afhenti Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fyrsta eintakið á þriðjudag.

Íslendingar vinna lengi
Hærra hlutfall karlmanna á aldrinum 55 til 64 ára er á vinnumarkaði á Íslandi en nokkurs staðar annars staðar í OECD-ríkjunum. Um 95 prósent manna í þessum hópi eru þátttakendur í atvinnulífinu hér en næstmest er atvinnuþátttakan í Japan, tæplega 85 prósent.

Kærir mbl.is fyrir samkeppnisbrot
Frétt ehf. sem á og rekur vefsetrið visir.is hefur sent Samkeppnisstofnun formlegt erindi vegna meintra brota Morgunblaðsins á samkeppnislögum. Frétt ehf. telur að fullyrðingar í auglýsingum sem birst hafa í Morgunblaðinu vegna vefseturs blaðsins, brjóti í bága við 21. grein samkeppnislaga.

Bréf Big Food Group féllu
Hlutabréf í bresku verslanakeðjunni Big Food Group, sem Baugur íhugar að kaupa, féllu um 4,25 pens á markaði í gær eða niður í 98,5 pens. Bréfin höfðu hækkað í verði vegna fyrirhugaðra kaupa Baugs á 110 pens fyrir hvern hlut.

Fjárfestar trúa á OZ
Fyrirtækið Oz gekk í gær frá samningi um kaup Vantagepoint Venture Partners á hlutabréfum í OZ fyrir um tvo milljarða króna. Oz er afsprengi Oz.com sem miklar vonir voru bundnar við, en fyrirtækið varð gjaldþrota eftir að netbólan sprakk.

Kvartað til Samkeppnisstofnunar
Fréttavefurinn vísir.is sendi í gær formlega kvörtun til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga mbl.is, þar sem fullyrt er að mbl.is "sé stærsti smáauglýsingavefurinn". Visir.is telur að með fullyrðingunni sé brotið í bága við 21. gr. samkeppnislaga, enda sé villt um fyrir neytendum með fullyrðingu sem ekki eigi við rök að styðjast.

Hækkar vexti óverðtryggðra lána
KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með deginum í dag. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynninga Seðlabankans um hækkun stýrivaxta að því er segir í tilkynningu frá KB banka.

15 ný störf KB banka á Akureyri
Störfum á Akureyri fjölgar um allt að fimmtán þegar KB banki færir bakvinnslu sína norður. KB banki á Akureyri tekur við allri bakvinnslu, þeirri starfsemi sem fer fram á bak við, og ekki fyrir augum viðskiptavina bankans.

Lækka verðtryggða vexti
Landsbankinn hefur ákveðið að lækka verðtryggða útláns- og innlánsvexti sína frá og með morgundeginum. Verðtryggðir útlánsvextir bankans lækka um 0,25 prósentustig.
Lítil áhrif á lánin
Vaxatahækkanir Seðlabankans munu ekki hafa mikil áhrif á lánakjör einstaklinga. Einna helst er líklegt að vextir á skammtímalánum, svo sem eins og yfirdráttar- og kortalán, muni hækka í takt við ákvarðanir Seðlabankans. Ný íbúðalán bankanna breytast líklega ekki þótt Seðlabankinn hækki stýrivexti sína.
Strandhögg víkinganna
"Hvaða víkingur gerði strandhögg á Íslandi árið 2004? Svar: Baugur." Þannig leggur einn af pistlahöfundum viðskiptadagblaðsins Financial Times út af áhuga Baugs á Big Food Group, sem á meðal annars smásölufyrirtækið Iceland.
Yfirtaka hjá Baugi?
Vangaveltur eru um það í bresku viðskiptalífi að Baugur stefni að yfirtöku í bresku verslunarkeðjunni Big Food Group, en fregnir ytra herma að breska fyrirtækið eigi þegar í viðræðum um hugsanlegt tilboð.