Almannavarnir

Varð vitni að því þegar allt fór af stað: „Byrjar að flæða alveg ótrúlegt magn“
Leiðsögumaður sem var við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall í dag varð vitni að því að þegar gífurlegt magn af hrauni braust út í miklum hraunstraumi. Svæðið var rýmt í morgun vegna hraunstraumsins en töluverður fjöldi fólks var við gosstöðvarnar í dag. Meðal annars mátti sjá ferðalanga klöngrast upp á hrauninu í beinni útsendingu í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Aflétta óvissustigi vegna Skaftárhlaups
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta óvissustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá. Hlaupið er yfirstaðið.

Hlaup hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði
Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði en upptakakvíslar hennar koma undan norðanverðum Hofsjökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra. Íbúi á Úlfsstöðum nærri Varmahlíð segist ekki muna eftir haustflóðum í sinni tíð.

Aflétta hættustigi vegna Skaftárhlaups
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta hættustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá.

Gamla brúin hangir enn uppi og stóðst þriðja stórhlaupið
Verulega hefur dregið úr hlaupinu í Skaftá í dag og er minni hætta talin á því að vatn flæði yfir hringveginn. Mesta furðu vekur að gamla brúin yfir Eldvatn skuli enn hanga uppi.

Óvissustig vegna landriss í Öskju
Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi Eystra lýsir yfir óvissustigi vegna landriss í Öskju. Síðustu vikur hafa mælst hraðar landbreytingar í Öskju, bæði á GPS-mælitæki staðsett þar og eins með nákvæmri úrvinnslu gervitunglamynda.

Hlaupið sópaði veginum frá eystri brúnni til Skaftárdals
Hlaupið í Skaftá hefur náð hámarki og er byrjað að sjatna í árfarveginum. Þótt hlaupið sé minna en menn spáðu, telst það engu að síður mjög stórt.

Árnar á Eskifirði hamdar með steyptum stokkum
Fimm ár sem renna í gegnum Eskifjarðarbæ eru að missa náttúrulega farvegi sína og flæða í framtíðinni um steypta stokka, með framkvæmdum sem kosta vel á þriðja milljarð króna. Tilgangurinn er að verja byggðina fyrir ofanflóðum.

Skaftá að komast í ham til að flæða yfir hringveginn
Rennsli í Skaftá fór hratt vaxandi við Sveinstind eftir hádegi og er verið að loka hálendisvegum á svæðinu og rýma fjallaskála. Búist er við að hlaupið nái hámarki í byggð eftir tvo sólarhringa og eru líkur taldar á að hringvegurinn í Eldhrauni geti lokast um tíma.

Reikna með hlaupvatni við Sveinstind á allra næstu tímum
Starfsmenn Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hlaupvatns úr Eystri Skaftárkatli verði vart við Sveinstind á allra næstu klukkustundum. Þegar það gerist mun taka um átta tíma fyrir hlaupvatnið að ná niður að þjóðveginum við Eldvatn.

Sennilegt að Skaftárhlaup nái að þjóðveginum á morgun
Óttast er að vatnshæðin í Skaftá rísi verulega þegar hlaup úr eystri Skaftárkatli ratar niður ána á morgun. Vera kann að loka þurfi þjóðveginum við Eldhraun og bændur eru uggandi yfir langtímaafleiðingum ef til hamfarahlaups kemur.

Engin lífshætta nema fólk lendi í sérstökum aðstæðum
Gera má ráð fyrir að það taki upp undir sólarhring fyrir vatnið sem nú hleypur úr Eystri Skaftárkatli að ná að jökuljaðrinum. Hlaupið hófst seint í gærkvöldi. Jarðeðlisfræðingur segir hlaupið eiga að ná hámarki á einum til tveimur sólarhringum. Hann segir enga beina lífshættu stafa af hlaupinu.

Hlaup hafið í Eystri-Skaftárkatli
Hlaup er hafið úr Eystri-Skaftárkatli, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Hlaupið kemur í kjölfar hlaups úr vestari katlinum, sem nú er sagt í rénun. Ef fram heldur sem horfir er útlit fyrir að hlaupvatn nái þjóðveginum annað kvöld.

Ástæða til að taka atburðarás við Öskju alvarlega
Ástæða er til að taka landris í kringum Öskju alvarlega að mati jarðeðlisfræðings. Landið hefur risið um nokkra sentímetra eftir að hafa sigið stanslaust í 40 ár og vísbendingar eru um aukna jarðskjálftavirkni á svæðinu.

Rennslið fer minnkandi í Skaftá
Rennsli hefur farið hægt minnkandi í Skaftá við Sveinstind síðustu klukkustundir. Rennslið 412 rúmmetrar á sekúndu klukkan 14.30 í dag. Rennslið náði hámarki á miðnætti aðfaranótt 2. september og var þá um 520 rúmmetrar á sekúndu.

Hafa litlar áhyggjur af Skaftá á meðan stóri ketill hleypur ekki
Hlaupið í Skaftá virðist hafa náð hámarki og veldur bændum í Skaftártungu litlum áhyggjum. Öðru máli gegnir um ef eystri sigketillinn í Skaftárjökli hleypur í kjölfarið.

Vara við því að kveikja eld vegna þurrka
Almannavarnanefnd Austurlands hefur varað við því að opnir eldar verði kveiktir. Þá eru íbúar hvattir til að fara varlega í notkun gas- og kolagrilla auk verkfæra sem geta gefið frá sér neista.

Fyrsta Skaftárhlaup sem nýja brúin yfir Eldvatn fær á sig
Hlaupið sem hófst í Skaftá í gær er það fyrsta sem dynur á nýju brúnni yfir Eldvatn hjá Ásum, eftir að hún var opnuð umferð fyrir tæpum tveimur árum. Hún var reist í stað gömlu brúarinnar sem eyðilagðist í Skaftárhlaupi haustið 2015. Hlaupið núna er þó vart talið verða nema um fjórðungur af stærð hamfarahlaupsins fyrir sex árum.

Hlaupið gæti hafa náð hámarki sínu
Ekki er ólíklegt að hlaupið í Skaftá hafi náð hámarki sínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni en þar segir að rennslið hafi verið nokkuð stöðugt síðustu klukkustundir og mælist nú um 520 rúmmetrar á sekúndu.

Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaups
Vísbendingar eru um að hlaup sé hafið í Skaftá. Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvo sólarhringa og vatnshæð árinnar við Sveinstind aukist síðustu klukkustundir. Einnig hafa borist tilkynningar um brennisteinslykt í nágrenni Skaftár og Hverfisfljóts.

„Við tengjumst örugglega ekki jákvæðum minningum hjá mjög mörgum“
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum finnur ekki fyrir dvínandi trausti almennings í garð stofnunarinnar til að takast á við kórónuveirufaraldurinn. Nýlegar mælingar benda til þess að traust til almannavarna og heilbrigðisyfirvalda sé minna en áður. Víðir telur að ágreiningur um aðgerðir geti spilað þar inn í.

Allt gengið vel þrátt fyrir fimm mánaða eldgos í bakgarðinum
Eftir fimm mánaða eldgos í útjaðri Grindavíkur segir formaður bæjarráðs það standa upp úr hvað allt hafi gengið vel, þrátt fyrir miklar hættur og gríðarlegt álag. Jarðvísindamaður segir það einkenna gosið hvað það sé stöðugt og máttlítið.

Segja áfallaþol og órofinn rekstur grundvöll öryggis ferðaþjónustufyrirtækja
Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Leiðsögn segja ljóst að töluverðar líkur séu á að Covid-19 smit geti haft neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækja á næstu vikum og mánuðum á meðan faraldurinn gengur yfir samfélagið, með stýrðum hætti eins og kostur er, þar til hjarðónæmi er náð meðal þjóðarinnar.

Áhyggjur af skriðuföllum á Sauðárkróki
Kallað hefur verið eftir því að hættumat verði gert eins fljótt og auðið er fyrir Varmahlíð vegna aurskriðanna sem féllu þar í júní. Þá eru einnig áhyggjur um skriðuföll á Sauðárkróki og hefur sveitarstjóri Skagafjarðar lagt fram formlega beiðni um að hættumat verði gert á ákveðnum svæðum þar.

Rakningarteymið nær ekki lengur að sinna öllum
Svo margir greinast nú daglega með kórónuveirusmit að smitrakningarteymið nær ekki að hringja í alla þá sem eiga að fara í sóttkví. Nú eru þeir sem smitast beðnir að hafa sjálfir samband við þá sem þeir hafa verið í návígi við og sendir rakningarteymið aðeins á þá SMS með áminningu um að þeir séu komnir í sóttkví.

Gjörbreytt landslag hjá smitrakningarteyminu
Yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna segir teymið nú vinna í allt öðru landslagi en áður; hátt bólusetningarhlutfall hafi sitt að segja. Það sé þó mikið að gera, ljóst að veiran hafi dreift sér víða og ekki búið að ná utan um faraldurinn. Í þessari bylgju hafi einn smitaður mest sent upp undir fimmtíu í sóttkví.

Hættustigi aflétt á Norðurlandi eystra vegna vatnavaxta
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra ákveðið að aflétta hættustigi vegna vatnavaxta í ám og vötnum á Norðurlandi eystra.

Rýmingu í Varmahlíð aflétt
Rýmingu á öllum húsum í Varmahlíð í Skagafirði hefur verið aflétt. Þetta ákvað almannavarnanefnd Skagafjarðar á fundi sem hófst klukkan 19 í kvöld. Rýming hefur verið í gildi fyrir húsin við Laugaveg 15 og 17 síðan á þriðjudag þegar aurskriða féll á húsin.

Aflétta rýmingu á enn einu húsi í Varmahlíð
Almannavarnanefnd Skagafjarðar fundaði í dag og tók ákvörðun um að rýmingu á húsi við Norðurbrún 7 í Varmahlíð skyldi aflétt frá og með klukkan 21 í kvöld. Rýming er þó enn í gildi fyrir Laugaveg 15 og 17 en aurskriða féll á húsin tvö í fyrradag.

Hættustigi vegna vatnavaxta á Norðurlandi eystra lýst yfir
Gífurlegir vatnavextir eru í ám og vötnum á svæðinu.