

Indverskt rottuhlaup hefur átt endurkomu í íslenska fjölmiðla þökk sé nýkjörnum formanni KKÍ, Kristni Albertssyni.
Eins og það er erfitt að verða fórnarlamb ráns eða stuldar hefur fyrirbærið sífellt orðið glamúriseraðra í alþjóðlegri poppmenningu undanfarin ár.
Kanadamaðurinn geðþekki Craig Pedersen hefur nú komið íslenska karlalandsliðinu í körfubolta á þrjú Evrópumót og var einu skoti frá því að koma því á heimsmeistaramót. Samt er tilfinningin að hann ætti að vera í meiri metum hjá íslensku þjóðinni en hann er.
Víkingar spila heimaleik í Helsinki í dag og Ísland spilar heimaleik í Murcia í næsta mánuði. Hverjum ber að þakka fyrir þessa ömurlegu stöðu í vallarmálum hér á landi, innan- sem utanhúss?
Jæja, nýtt ár og nýtt stórmót í handbolta. Strákarnir hefja leik á heimsmeistaramótinu á fimmtudaginn. Að baki eru tveir vináttulandsleikir gegn Svíþjóð en hvar stendur íslenska liðið eftir þá, svona korteri í mót?
Sléttur áratugur er þar til heimsmeistaramót karla fer fram í Sádi-Arabíu. Það hefst að líkindum í desember 2034. En hvernig kom þetta til? Hvað gengur á hjá Sádum annars vegar og FIFA hins vegar? Hvernig getur verið að Sádar fái mótið án mótframboðs? Tilraun er gerð til að svara helstu spurningum sem málinu viðkoma hér að neðan.
Tilviljanirnar í þessu lífi eru oft á tíðum ansi ótrúlegar. Því komst undirritaður meðal annars að eftir leik Íslands og Svartfjallalands í Þjóðadeild UEFA í Niksic á laugardaginn síðastliðinn. Lífslexía segi ég en einnig fallegur vitnisburður um íslenskan fótbolta og tengingarnar sem geta myndast út frá honum.
Grípa, upp, skjóta og BÚMM! Aftur og aftur og aftur. Stundum er fegurðin fólgin í því frumstæða, handboltanum í sinni hráustu mynd. Þorsteinn Leó Gunnarsson minnti okkur á það í gær.
Breiðablik vann sjö af síðustu átta leikjum sínum í Bestu deild karla og koma á fljúgandi ferð inn í úrslitakeppnina. Ein stærsta ástæðan fyrir góðu gengi Blika að undanförnu er frammistaða fyrirliða liðsins.
Stórfurðulegt mál frá Ólympíuleikunum í París er skyndilega eitt það umtalaðasta er varðar íþróttir kvenna í áraraðir. Sjaldan hafa samfélagsmiðlar blásið eins mikið upp í kringum einvígi á íþróttavelli sem stóð í 46 sekúndur. Og umræðan að stóru leyti byggð á ranghugmyndum og ósannindum.
Englendingum gæti vart virst meira sama um æfingaleik liðsins við Ísland í aðdragandanum. Leikurinn var formsatriði og aðrir hlutir skiptu meira máli. Það er ekki svo í dag.
Stundum er sagt að góðu gaurarnir komi síðastir í mark. Það á þó ekki alltaf við eins og sannaðist þegar Valur vann EHF-bikarinn á laugardaginn.
Ef það er eitthvað sem maður saknar ekki frá covid-tímanum eru það fjarfundirnir. Reyndar saknar maður einskis frá covid-tímanum en það er önnur saga.
Ef það er eitthvað sem einkennir þetta tímabil í Keflavík þá er það magnaður hæfileiki karlaliðsins til að takast á við mótlæti. Þeir sýndu það enn á ný í gær með því að tryggja sér oddaleik um laust sæti í úrslitaeinvíginu í Subway deild karla í körfubolta.
Einn umdeildasti einstaklingur síðustu áratuga, OJ Simpson, er fallinn frá. Magnaður íþróttamaður og morðingi í hugum flestra.
Glópalán ræður alveg óþolandi miklu varðandi það hvaða Evrópuþjóðir komast í lokakeppnir stórmóta í fótbolta, í gegnum þær umspilsleiðir sem nú er notast við. Þetta hefur bitnað á Íslandi með ömurlegum hætti.
Manchester United vann 4-3 sigur á Liverpool í framlengdum leik þegar liðin mættust á Old Trafford í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í gær, sunnudag. Má með sanni segja að leikurinn hafi haft allt sem góður fótboltaleikur þarf að hafa.
Þeir sem valdið hafa hjá Knattspyrnusambandi Íslands eru ekki í öfundsverðri stöðu vegna andstæðings karlalandsliðsins í komandi umspili fyrir Evrópumótið. Ekki stendur til að sniðganga leikinn við Ísrael og það hefur ekki einu sinni komið til umræðu hjá sambandinu.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta berst í dag fyrir sæti sínu í A-deild undankeppni næsta Evrópumóts en íslensku stelpurnar hafa verið fastagestir í úrslitakeppni EM undanfarin fimmtán ár.
Íslenska körfuboltalandsliðið byrjaði undankeppni EM mjög vel í gærkvöldi með endurkomusigri á Ungverjum. Það voru margir að skila til liðsins í gær og því ekki auðvelt að velja mann leiksins. Það var þó andlegur styrkur eins manns sem mér fannst standa upp úr.
Margir frábærir framherjar hafa spilað í íslensku deildinni og einn þeirra er kominn yfir hundrað mörk. Tímamót hjá þeim markahæsta kallar á vangaveltur um hver sé sá besti.
Það er janúar. Handboltamánuðurinn mikli þar sem gjörsamlega allt snýst um strákana okkar. Sama hvernig gengur. Allir elska að tala um liðið og allir hafa skoðanir. Strákarnir okkar sameina þjóðina betur en flest annað.
Átján leikmenn eru mættir til Þýskalands til að spila fyrir Íslands hönd á EM í handbolta 2024. Hverjar eru væntingar til þeirra fyrir mótið? Hér er reynt að svara því.
Með allar líkur sér í óhag og eftir að hafa fengið mótlætisstorm í fangið vann Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt magnaðasta íþróttaafrek Íslandssögunnar. Þess vegna er hann verðskuldaður Íþróttamaður ársins 2023.
Við kveðjum ekki aðeins árið 2023 þessa dagana heldur einnig tvo litríkustu þjálfara Bestu deildar karla í fótbolta.
Valur og Tindastóll hafa háð tvö mögnuð einvígi um Íslandsmeistaratitilinn undanfarin ár. Í bæði skiptin hafa úrslitin ráðist í blálokin á oddaleik fyrir framan troðfullu íþróttahúsi á Hlíðarenda.
Íslenska karlalandsliðið er nú aðeins tveimur sigurleikjum frá því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi næsta sumar.
Lokaþáttur Skagans, heimildaþátta um sigurgöngu fótboltaliðs Skagamanna á tíunda áratugnum, fór í loftið á mánudaginn var og það má hrósa þeim sem að honum stóðu fyrir skemmtilega og fróðlega þætti.
Aðdáundarvert hefur verið að fylgjast með því hversu þétt íþróttahreyfingin hefur staðið við bakið á Grindvíkingum vegna ástandsins þar í bæ.
Frammistaða íslenska karlalandsliðsins í handbolta í fyrstu leikjunum undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar lofaði góðu. Handbragðs hans er strax farið að gæta á leik Íslands.