Jarðakaup útlendinga

Grófu fyrir laxahrognum í tíu stiga gaddi
Einn umfangsmesti gröftur hrogna Norður-Atlantshafslaxins sem um getur fór fram nýverið í Selá. Veiðiklúbburinn Strengur gróf milljónir hrogna í tíu stiga gaddi undir handleiðslu Hafrannsóknastofnunar.

Frumvarpið gangi gegn ákvæðum stjórnarskrár
Veiðifélagið Strengur, sem er að stærstum hluta í eigu breska auðkýfingsins Jims Ratcliffe, gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um lax- og silungsveiði.

Segir Ratcliffe ekki ásælast Laxá í Aðaldal
Talsmaður breska auðkýfingsins Jims Ratcliffe segir ekkert til í því að hann ætli sér að eignast veiðiréttindi í Laxá í Aðaldal. Hann sé ekki eigandi félagsins Dylan Holding sem hafi eignast félag sem eigi jarðir með veiðirétt í ánni.

Corbyn sagði Ratcliffe umhverfissóða í ræðu sem hrellt hefur breska auðkýfinga
Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, beindi spjótum sínum að auðkýfingum í fyrstu ræðu sinni í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir í Bretlandi.

Hvorki stjórnarskrá né EES koma í veg fyrir hömlur á jarðakaup
Forsætisráðherra segir hvorki stjórnarskrá né samninginn um Evrópska efnahagssvæðið setja stjórnvöldum skorður í lagasetningu varðandi eignarhald á jörðum.

Metnaðarfull aðgerðaráætlun í jarðarmálum
Eitt af forgangsmálum þingflokks Framsóknar á þessi þingi er þingsályktun um aðgerðaráætlun í jarðarmálum.

Tilgangur Jim Ratcliffe sagður bara einn
Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe vinnur nú að uppbyggingu lax og lífríkis í ám á Norðausturlandi. Talsmaður hans segir Íslendinga ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur af fyrirætlunum hans því verkefnið sé bara eitt. Að bjarga laxastofninum á svæðinu.

Samstaða um að mótmæla vígvæðingu á norðurslóðum
Á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem fer nú fram á Hótel Skaftafelli í Öræfum var aukinni vígvæðingu í Norðurhöfum og á norðurslóðum mótmælt einróma.

Mýrdælingar óhressir með sinn auðkýfing
Rudolp Walther Lamprecht strýkur fólkinu í Mýrdal öfugt með skiltum sínum. Oddvitinn vill þau niður.

Ein aðalástæðan fyrir jarðarkaupum Ratcliffes er að vernda íslenska laxinn
Fulltrúi breska auðjöfursins Jim Ratcliffes segir eina aðal ástæðu þess að hann fjárfesti í jörðum hér á landi, að vernda íslenska laxastofninn og umhverfi hans.

Vinna að því að kortleggja eignarhald á jörðum
Ríkisstjórnin vinnur að því að kortleggja eignarhald á jörðum hér á landi og er það liður í stefnumótun stjórnvalda. Þetta segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra

Víðtæk áhrif á Atlantshafslax af áformum Ratcliffes ólíkleg
Formaður Landssambands veiðifélaga telur ekki ólíklegt að fyrirhugaðar framkvæmdir Jims Ratcliffe gætu haft jákvæð áhrif í þeim ám sem framkvæmdirnar snúa að. Hins vegar geri þær lítið fyrir stofninn í heild sinni. Sveitarstjórnarrráðherra undrast seinagang í stjórnsýslunni og vill lagafrumvarp í haust.

Yfirgnæfandi stuðningur við frekari hömlur á jarðakaup
Mikill stuðningur er við að stjórnvöld setji frekari skorður við jarðakaupum erlendra aðila samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Fréttablaðið. Þannig segjast tæp 84 prósent mjög eða frekar sammála frekari skorðum en aðeins fimm prósent eru því ósammála. Andstaðan við jarðakaup eykst með aldri.

Jarðamál ekki enn þá rædd innan SÍS
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að vafalaust verði jarðamál skoðuð þegar fulltrúar snúa til baka úr sumarfríum.

Fyrr og síðar
Þeirri vegsemd fylgir ábyrgð að eiga sæti í samstarfinu á norrænum vettvangi, EFTA/EES, NATO, Sameinuðu þjóðunum o.s.frv. með rétt til afstöðu í víðtækasta skilningi.

Segir að stýra þurfi því hvernig landið er nýtt
Forsætisráðherra segir það stórt hagsmunamál almennings að löggjöf verði hert um jarðarkaup auðmanna á Íslandi

Horfir til Norðmanna og Dana þegar kemur að lagasetningu um kaup auðmanna á jörðum
Ekki hefur verið ráðist í breytingar á lögum um jarðakaup hér á landi vegna ósamstöðu fyrri ríkistjórna segir samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Í sitjandi ríkistjórn ríki hins vegar samstaða og ráðherra boðar herta löggjöf um jarðakaup auðmanna.

Segir ótækt að fólk sem vilji hefja búskap skuli vera í samkeppni við auðkýfinga um jarðakaup
Jafna þarf samkeppnisstöðu ungra bænda til að geta keypt jarðir hér á landi að mati formanns ungra bænda. Ótækt sé að fólk sem hefja vilji búskap sé í samkeppni við auðkýfinga um kaupin.

Búið að fela sérfræðingi að gera lagabreytingatillögur um stórtæk jarðakaup
Katrín Jakobsdóttir segir breiðan pólitískan vilja hér á landi til að herða löggjöf um jarðakaup auðmanna á Íslandi.

Óæskilegir jarðeigendur
Jarðakaup útlendinga, ekki síst erlendra auðrisa, hafa farið fyrir brjóstið á mörgum sem sjá þeim flest til foráttu og telja óæskilega jarðeigendur.

Íbúar vilja að Ratcliffe byggi sundlaug
Oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps seldi jörð sína til breska auðkýfingsins James Ratcliffe.

Svíi að selja 17 þúsund hektara á Vestfjörðum
Einn af auðjöfrunum sem hafa verið að kaupa upp jarðir hér á landi fyrir laxveiði er með sínar fjórar jarðir á Vestfjörðum til sölu. Áhuginn á jörðunum, sem eru gjöfular laxveiðiár, er mestur erlendis.með meirihluta í veiðifélaginu á staðnum. Árið 2016 komu 311 laxar á land.

Segir aumingjaskap að hefta ekki jarðakaup útlendinga
Einn helsti forystumaður bænda á Austurlandi segir það aumingjaskap stjórnmálamanna að koma ekki taumhaldi á stórfelld jarðakaup útlendinga.

Ráðherra veitt níu undanþágur til útlendinga
Ráðherra er heimilt að veita erlendum ríkisborgurum, sem ekki eru með lögheimili á Íslandi eða njóta réttar samkvæmt EES, EFTA eða Hoyvíkur-samningnum, sérstakt leyfi til jarðakaupa.

Ósátt við ágang eins ríkasta manns heims: „Eru augljóslega að reyna að ná Hafralónsá“
Breski iðnjöfurinn Jim Ratcliffe reynir að kaupa jarðir við laxveiðiperluna Hafralónsá – til viðbótar við stóran hluta Grímsstaða á Fjöllum og jarðir í Vopnafirði. Heimamenn lýsa þungum áhyggjum og segja hart gengið fram.

Nýi eigandi Grímsstaða: Umdeildur huldumaður með vasa fulla af seðlum
Jarðakaup breska iðnjöfursins Jims Ratcliffe vekja spurningar um undirliggjandi ástæður þeirra. Vernd villta laxastofnsins á Íslandi segir hann sjálfur. Utan Íslands er fyrirtæki hans gagnrýnt vegna umhverfismála.

Tortryggja jarðakaup Nubos á Svalbarða
Ósk Kínverjans Huangs Nubo að kaupa hluta af Svalbarða vekur tortryggni í Noregi. Þar hafa bæði stjórnmálamenn og Kínasérfræðingar varað við sölunni.

Jarðalýðskrumið
Fréttablaðið hefur undanfarið birt flokk fréttaskýringa um eignarhald á jörðum á Íslandi. Hugmyndin að honum vaknaði og vinnan hófst þegar Huang Nubo sóttist fyrst eftir að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Afraksturinn lítur fyrst nú dagsins ljós, enda kom á daginn að erfitt og flókið reyndist að nálgast upplýsingar um íslenzkar jarðeignir, sem er umhugsunarefni út af fyrir sig. Umfjöllunin hittir þó á ágætan tímapunkt, þar sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur nýverið lagt fram frumvarpsdrög þar sem lagt er til að þrengt verði mjög að rétti útlendinga til að kaupa jarðir á Íslandi.

Jarðakaup Kínverja dæmd ólögmæt
Dómstóll á Nýja-Sjálandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að kínverskum fjárfestum sé óheimilt að kaupa þarlendar bújarðir í stórum stíl.

Nú er horfið Norðurland...
Ekki var Hagstofan fyrr búin að birta Þjóðhagsspá (yfirsjón hjá Davíð á sínum tíma að leggja hana ekki niður) þar sem segir að á árinu 2011 verði hagvöxtur í fyrsta sinn frá hruni – sem er mikill sigur fyrir Steingrím J. – en Ögmundur Jónasson brást snarlega við, hrifsaði til sín frétt vikunnar og tilkynnti að kínverski auðmaðurinn og ljóðskáldið Huang Nubo fengi ekki undanþágu frá lögum um fjárfestingar aðila utan Evrópska efnahagssvæðisins til kaupa á Grímsstöðum á Fjöllum. Ákvörðunin hafði auðvitað legið lengi fyrir en tilkynningartíminn augljóslega vandlega valinn. Í góðsemi vegur þar hver annan…