

„Þetta var í rauninni ákvörðun stjórnar knattspyrnudeildar KR í gær, að segja honum upp,“ segir Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar í samtali við Vísi.
Gregg Ryder var látinn fara sem þjálfari KR í Bestu deild karla í knattspyrnu fyrr í dag. Pálmi Rafn Pálmason mun stýra liðinu en Óskar Hrafn Þorvaldsson, nýráðinn ráðgjafi knattspyrnudeildar félagsins, mun ekki taka við liðinu að svo stöddu.
KR hefur sagt Gregg Ryder upp. „Ástæða uppsagnar er óviðunandi árangur liðsins það sem af er sumri,“ segir í yfirlýsingu KR.
Viktor Karl Einarsson tryggði Blikum 2-1 sigur á KA í lokaleik tíundu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í gær.
KA situr á botni deildarinnar eftir 10. umferðir í bestu deild karla. Liðið tapaði í kvöld á útivelli gegn Breiðabliki eftir að hafa byrjað síðari hálfleikinn vel og jafnað metin. Hallgrímur Mar, sóknarmaður KA, var svekktur eftir leikinn.
Breiðablik vann 2-1 gegn KA í lokaleik 10. umferðar Bestu deildar karla. Eftir sigurinn er Breiðablik aðeins einu stigi frá toppliði Víkings. Gestirnir í KA sitja sem fastast á botni deildarinnar.
Knattspyrnudeild Vestra hefur tilkynnt ummæli til KSÍ sem leikmaður liðsins varð fyrir af hálfu andstæðings síns í leik gegn Fylki í gær. Í yfirlýsingu Vestra segir að leikmaðurinn hafi orðið fyrir kynþáttaníði.
Það stefnir í að örlög Greggs Ryder, þjálfara KR í Bestu deild karla, ráðist á stjórnarfundi knattspyrnudeildar KR síðar í dag.
Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjö öll mörkin úr þeim hér inn á Vísi.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Vals þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Víking í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta að Hlíðarenda í kvöld. Gylfi Þór sagði leikinn hafa verið skemmtilegan og jafntelfi sanngjarna niðurstöðu.
Ingvar Jónsson, markvörður Víkings, var dæmdur brotlegur þegar Valur fékk vítaspyrnu í 2-2 jafntefli liðanna í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld. Ingvar var á því að ekki hafi verið um vítaspyrnu að ræða.
Hafnfirðingar gerðu slæma ferð yfir hraunið til nágranna sinna í Garðabæ. Þar tók Stjarnan á móti FH í leik þar sem bæði lið þurftu sigur til að komast á sigurbraut. Leiknum lauk með sannfærandi 4-2 sigri Stjörnunnar í markaleik.
ÍA vann í kvöld góðan 2-1 sigur gegn KR á heimavelli í Bestu deild karla. Mörkin létu bíða eftir sér en að lokum gerðu skagamenn tvö en gestirnir aðeins eitt. Fyrsti sigur ÍA á KR í efstu deild síðan 2016 raunin.
Valur og Víkingur skildu jöfn, 2-2, þegar liðin mættust í toppslag í 11. umferð Bestu deildar karla á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Val stig með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins.
Stjarnan vann góðan 4-2 sigur á FH á Samsung vellinum í kvöld. Leikurinn var var í nokkru jafnvægi framan af endaði á algjörri flugelda sýningu þar sem mörkunum var raðað inn.
Skagamenn unnu góðan 2-1 heimasigur á erkifjéndum sínum í KR í Bestu deild karla á Akranesi í kvöld. Skagamenn höfðu ekki unnið KR í efstu deild síðan árið 2016. Viktor Jónsson, framherji ÍA var mjög sáttur í leikslok.
HK vann endurkomusigur gegn Fram á Lambhagavellinum í Bestu deild karla í fótbolta fyrr í kvöld. Lokatölur 1-2 þar sem Framarar leiddu í hálfleik.
HK kom til baka eftir að lenda undir gegn Fram í 10. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Hvorugu liði hafði tekist að vinna deildarleik síðan í maí.
Stjarnan lagði FH 4-2 í 10. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Með sigrinum fór Stjarnan upp fyrir gestina úr Hafnafirði.
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var sársvekktur eftir 3-2 tap gegn Fylki í kvöld. Niðurstaða leiksins átti hlut að máli en aðrir, verri hlutir vógu þyngra. Hann segir leikmenn Fylkis hafa beitt sína menn kynþáttaníði.
Fylkir vann gríðarlega torsóttan en mikilvægan sigur á nýliðum Vestra í fyrsta leik 10. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Uppgjör og viðtöl væntanleg.
Valur tekur á móti Íslandsmeisturum Víkings í gríðarlega mikilvægum leik í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Nicolaj Hansen, fyrrverandi leikmaður Vals, segist elska að skora á móti sínu gamla félagi.
Spila leikmenn gróft í Bestu deildinni? Sænski knattspyrnumaðurinn Moutaz Neffati hefur þá tilfinningu eftir lánsdvöl sína hjá KR.
Valsmenn voru með skemmtilegan blaðamannafund klukkan 13.00 þar sem hitað var upp fyrir leik Vals og Víkings í Bestu-deildinni.
Breiðablik og Valur eru með hæsta meðalaldur liða í Bestu deildar karla í fótbolta.
Danijel Djuric, leikmaður Víkings, segist hafa lært mikið af atviki sem átti sér stað eftir leik liðsins á Kópavogsvelli þann 30. maí. Hann var í kjölfarið dæmdur í tveggja leikja bann.
Danijel Dejan Djuric, leikmaður Víkings í Bestu deild karla, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann og félagið sektað fyrir „vítaverða og hættulega“, „alvarlega og óíþróttamannslega“ hegðun eftir leik gegn Breiðablik á Kópavogsvelli.
Knattspyrnudeild KR greindi frá því í hádeginu að Óskar Hrafn Þorvaldsson hefði verið ráðinn til starfa hjá félaginu. Óskar Hrafn mun verða deildinni innan handar en þó ekki í starfi aðalþjálfara karlaliðs félagsins eins og hefur verið hvíslað um undanfarnar vikur. Óskar sjálfur segist ekki vera ógn við núverandi þjálfara karlaliðs félagsins, Gregg Ryder.
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur tekið við störfum hjá Knattspyrnudeild KR.
Leikdagurinn er nýr þáttur sem er framleiddur af Recmedia fyrir Bestu deildina. Í þættinum fáum við að skyggnast bakvið tjöldin og sjá hvernig dagur í lífi leikmanna í Bestu deildinni lítur út á leikdegi.