Dauði George Floyd

Fimm hundruð minnast Floyd í Houston
Jarðarför George Floyd, svarts Bandaríkjamanns sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í Minneapolis, hófst klukkan fimm.

George Floyd borinn til grafar í Houston
Útför Bandaríkjamannsins George Floyd fer fram í heimabæ Floyd í Houston í Texas í dag þar sem hann verður jarðaður við hlið móður sinnar.

„Hann féll hraðar en honum var hrint“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, telur mögulegt að 75 ára gamall maður sem slasaðist alvarlega þegar lögregluþjónar hrintu honum í jörðina í Buffaloborg sé útsendari Antifa og að um sviðsetningu hafi verið að ræða.

„Snýst ekki um að fara á hnén heldur að gefa fólki þau tækifæri sem á það skilið“
Raheem Sterling, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, vonast til þess að fá fleiri menn sem eru dökkir að hörund í forystustöður hjá enska knattspyrnusambandinu.

CrossFit Reykjavík segir skilið við CrossFit nema að það verði afgerandi breytingar
CrossFit íþróttin stendur á krossgötum eftir kynþáttafordóma framkvæmdastjórans og íslenskar CrossFit stöðvar eru nú komnar í þann hóp sem heimta breytingar hjá höfuðstöðvunum í Bandaríkjunum.

Heimsmeistari kvenna hótar því að hætta að keppa í CrossFit
Ástralinn og þrefaldi heimsmeistarinn Tia-Clair Toomey hefur hótað því að hætta að keppa á CrossFit mótum í framtíðinni taki forysta CrossFit samtakanna ekki betri ákvarðanir á næstunni.

Sara tjáir sig líka: CrossFit samfélagið er miklu sterkara en orð eins manns
Sara Sigmundsdóttir sendi frá sér bæði hjarta og pistil á Instagram þar sem hún segir að CrossFit samfélagið eigi ekki að láta rasísk orð eins manns vera tákn um það sem CrossFit fólk heimsins stendur fyrir.

Lögreglumaðurinn þarf að reiða fram meira en 165 milljónir til að losna
Dómari í Minnesota hefur ákveðið að Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis á dögunum og olli í kjölfarið einhverjum mestu mótmælum í Bandaríkjunum í áratugi, geti losnað úr varðhaldi, reiði hann fram 1,25 milljónir Bandaríkjadala.

Þúsundir minnast George Floyd
Búist er við að þúsundir sæki minningarathöfn um George Floyd, Bandaríkjamann sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í Minneapolis í síðasta mánuði. Lögregluþjónninn mætti fyrir dóm í dag.

Reebok segir bless við CrossFit vegna rasískra ummæla framkvæmdastjórans um George Floyd
Framtíð heimsleikana í CrossFit gæti verið í uppnámi eftir að stærsti styrktaraðili þeirra í tíu ár ákvað óvænt að slíta samstarfinu.

Vilja auka eftirlit og breyta verkferlum lögreglu
Demókratar á bæði fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem þeir eru í meirihluta, og öldungadeildinni ætla að leggja fram frumvarp sem snýr að umfangsmiklum breytingum á eftirliti með störfum lögreglu og verkferlum.

Keyrði inn í þvögu mótmælenda og skaut einn
Maður í bandarísku borginni Seattle í Washington-ríki hefur verið handtekinn eftir að hann ók inn í þvögu mótmælenda og skaut minnst einn. Myndband náðist af atvikinu.

Katrín Tanja: Skammast mín ákaflega mikið
Íslenska CrossFit drottningin Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur ekki aðeins verið tilbúin að tjá sig um og styðja réttindabaráttu svartra heldur var hún einnig tilbúin að gagnrýna harðlega forystu CrossFit samtakanna fyrir þeirra rasísku viðbrögð.


Mitt Romney á meðal mótmælenda í Washington
Mitt Romney, öldungardeildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi Repúblikana, var einn af um þúsund mótmælendum sem marseruðu í átt að Hvíta húsinu í morgunsárið í Washington í Bandaríkjunum.

Rifu niður umdeilda styttu af þrælasala og hentu henni í höfnina
Mótmælendur í Bristol í Bretlandi rifu niður styttu af Edward Colston, þrælasala sem uppi var á átjándu öldinni, og hentu henni í höfnina í borginni.

„I can't breathe“
Mótmælin sem nú standa yfir í Bandaríkjunum eiga sér langan aðdraganda og eru nýjasti þátturinn í langri sögu réttindabaráttu svartra Bandaríkjamanna.

Bindur enda á útgöngubann í New York
Borgarstjóri New York-borgar, Bill de Blasio, hefur ákveðið að afnema útgöngubann í borginni, einum degi á undan áætlun.

Dómsmálaráðherrann segir Trump aldrei hafa beðið um að hermenn yrðu sendir til að kveða niður mótmæli
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, William Barr, segir Bandaríkjaforseta ekki hafa gengið það langt að óska eftir því að tíu þúsund hermenn verði kallaðir út til þess að aðstoða lögreglu við að kveða niður óeirðir og mótmæli í bandarískum borgum.

Rifu niður styttu af hershöfðingja Suðurríkjanna
Lítill hópur mótmælanda reif niður styttu af suðurríkjaleiðtoganum Williams Carter Wickham hershöfðingja sem stóð í borginni Richmond í Virginíu.

Vantreysta lögreglunni og óttast hana
Doktor í afbrotafræði segir að svart fólk í Bandaríkjunum verði ekki eingöngu fyrir óhóflegri valdbeitingu af hendi lögreglunnar heldur teygi misréttið anga sína til réttarkerfisins. Rannsóknir sýni að svart fólk treystir ekki lögreglunni í Bandaríkjunum og óttast hana.

Bush á meðal repúblikana sem ætla ekki að kjósa Trump
Nokkrir áhrifamenn í Repúblikanaflokknum ætla annað hvort ekki að kjósa Donald Trump í forsetakosningunum í haust eða jafnvel greiða Joe Biden, frambjóðanda demókrata, atkvæði sitt. George W. Bush, fyrrverandi forseti, er á meðal þeirra sem ætlar ekki að styðja Trump til endurkjörs.

Vara við smithættu eftir fjölmenn samstöðmótmæli á Bretlandi
Heilbrigðisráðherra Bretlands segir að fjölmenn mótmæli gegn kynþáttahyggju í gær hafi „vafalaust“ aukið hættu á kórónuveirusmitum. Tugir þúsunda manna tóku þátt í samstöðumótmælum eftir dráp lögreglu í Bandaríkjunum á blökkumanni. Til einhverra átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í London.

Fjölmennustu mótmælin í Washington-borg til þessa
Mótmæli gegn lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju héldu áfram í mörgum borgum Bandaríkjanna í gær. Þau eru sögð hafa farið að mestu friðsamlega fram. Í Washington-borg mótmælu um tíu þúsund manns í stærstu mótmælunum í borginni til þessa.

Lýsa sig saklausa af því að hafa hrint eldri borgara
Lögreglumennirnir tveir sem ákærðir hafa verið líkamsárás gegn 75 ára gömlum vegfarenda í mótmælum í Buffalo i New York ríki Bandaríkjanna á dögunum lýstu sig saklausa af ákærum í málinu.

Þúsundir mótmæla í Washington
Þúsundir mótmælenda marsera nú um götur Washington, höfuðborgar Bandaríkjanna, til þess að mótmæla lögregluofbeldi og kynþáttafordómum.

Íþróttafólk heldur áfram að senda skýr skilaboð í baráttunni gegn kynþáttafordómum
Íþróttafólk heldur áfram að berjast gegn kynþáttafordómum sem hafa verið mikið í umræðunni eftir dauða George Floyd en Floyd lést eftir baráttu við lögreglumann undir lok síðasta mánaðar.

Notkun táragass sætir gagnrýni
Ekki síður í ljósi þess að táragas er flokkað sem efnavopn sem bannað er að nota í stríði.

Búast við fjölmennum mótmælum í Washington
Yfirvöld í Washington-borg búa sig undir fjölmenn mótmæli þar í dag á sama tíma og ákveðið hefur verið að afvopna þjóðvarðliða og senda hermenn heim frá borginni. Samstöðumótmæli vegna dauða óvopnaðs blökkumanns í haldi lögreglu fóru fram í Ástralíu og Asíu í dag.

Goodell viðurkennir að NFL hafi gert mistök
Einn óvinsælasti maður bandarískra íþrótta, Roger Goodell, framkvæmdastjóri NFL, hefur viðurkennt að deildin hafi gert mistök í meðhöndlun sinni á mótmælum leikmanna deildarinnar gegn kynþáttahatri og lögregluofbeldi síðustu ár.