

Handknattleiksdeild Vals staðfesti í dag að markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson væri á leið til Svíþjóðar.
Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Fjölnis, segir að félögin geti ráðstafað peningnum frá ÍSÍ eins og þau vilja en Fjölnir var það íþróttafélag sem fékk hæsta styrkinn frá ÍSÍ vegna áhrifa COVID-19.
Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson rifjuðu upp frægt jafntefli Hauka við Barcelona í Seinni bylgjunni.
Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson rifjuðu upp stórleik Bjarna Frostasonar fyrir Hauka gegn Sporting í Lissabon 2001.
Gullmoli dagsins í Sportinu í dag var til heiðurs Seinni bylgjunni í kvöld en í Seinni bylgjunni í kvöld verður farið yfir gullaldarskeið Hauka í handbolta.
Nýráðinn þjálfari Stjörnunnar er með þriggja ára áætlun til að gera Stjörnuna samkeppnishæfa á toppi Olís deildarinnar í handbolta.
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson ræddi framtíð íslenska handboltalandsliðsins hjá Henry Birgi Gunnarssyni í liðinni viku.
Patrekur Jóhannesson, sem tekur við handboltaliði karla hjá Stjörnunni 1. júní, vill að farin verði sama leið í Garðabæ og á Selfossi með því að koma á fót handboltaakademíu.
Sigurgeir Guðlaugsson er nýr formaður Stjörnunnar en mikið hefur gustað um félagið undanfarnar vikur. Sigurður Bjarnason hætti sem formaður á aðalfundi í gær eftir að nokkrir aðrir stjórnarmenn hefðu gengið út úr stjórninni í síðasta mánuði.
Boltaball Aftureldingar fyrir tuttugu árum fékk skemmtilega kynningu hjá íþróttafréttamanninum Valtýr Birni Valtýssyni.
Bikarúrslitaleikur ÍBV og Stjörnunnar reyndist síðasti leikur handboltamannsins Sigurbergs Sveinssonar á ferlinum.
Handboltaparið Rut Jónsdóttir og Ólafur Gústafsson leika fyrir norðan næstu tvö árin.
Handboltaparið Rut Jónsdóttir og Ólafur Gústafsson leika á Akureyri á næsta tímabili.
Vísir bað fjóra álitsgjafa um að svara því hver tæki við fyrirliðabandinu hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta.
Valur hefur styrkt sig fyrir átök næsta vetrar í Olís deild karla en Þorgeir Bjarki Davíðsson mun leika með Valsmönnum á næstu leiktíð.
Sebastian Alexandersson, nýráðinn þjálfari Fram, segir verkefnið verðugt en hann ætlar sér að koma liðinu í úrslitakeppni Olís deildar karla að ári liðnu.
Rætt var við Andra Heimi Friðriksson, nýráðinn spilandi aðstoðarþjálfara ÍR, í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld.
Handknattleiksmaðurinn Andri Heimir Friðriksson verður spilandi aðstoðarþjálfari ÍR næstu tvö árin.
„Auðvitað á að vera kvennalið í Breiðholti, annað er bara rugl,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, leikmaður ÍR í handbolta, en þeirri ákvörðun að leggja liðið niður hefur nú verið snúið og ÍR leikur því í Grill 66-deildinni á næstu leiktíð.
Eyjamenn áttu allra flottustu tilþrif handboltavetrarins að mati sérfræðinga Seinni bylgjunnar en ýmsir fleiri sýndu mögnuð tilþrif á tímabilinu.
„Ég er búinn að sjá liðið taka nokkur mikilvæg framfaraskref og mér finnst mjög gaman að vera hluti af þessu, og þess vegna hef ég áhuga á því að halda áfram,“ segir Guðmundur Guðmundsson sem á í viðræðum við HSÍ um framlengingu á samningi sínum sem landsliðsþjálfari karla í handbolta.
Guðjón Valur Sigurðsson leggur handboltaskóna á hilluna sem einn besti íþróttamaður sem Ísland hefur átt en hvaða annað íþróttafólk á heima á lista yfir það allra besta hér á landi frá upphafi?
Gullaldarleikur KA og Vals síðan í bikarúrslitunum 1995 var endursýndur á dögunum og það bauð upp á tækifæri til að taka saman athyglisverða tölfræði úr þessum goðsagnakennda bikarúrslitaleik.
Handknattleiksdeild ÍR hratt af stað frumlegri söfnun á Karolinafund til að bæta fjárhagsstöðuna eftir að hafa farið fram úr sér í rekstrinum á síðustu misserum.
Framarar hafa ekki bara verið að bæta við sig leikmönnum fyrir næstu handboltaleiktíð heldur er félagið nú búið að ganga frá ráðningu nýs þjálfarateymis hjá karlaliðinu.
Stjarnan ætlar sér stóra hluti í Olís-deild karla á næstu leiktíð og heldur áfram að bæta markamaskínum í sinn hóp.
Það fer vel um Olís-deildar lið FH í handbolta en leikmenn liðsins tóku klefann hjá sér í gegn í vetur. Það voru ekki sjálfboðaliðar sem komu að verkinu heldur tóku leikmenn höndum saman í samkomubanninu og umbreyttu klefanum svo úr varð algjör bylting.
Evrópska handknattleikssambandið hefur ákveðið að aflýsa síðustu fjórum umferðunum í undankeppni EM kvenna 2020.
Landsliðsþjálfarinn kveðst ánægður með að HM-sætið sé í höfn. Hann segir að góður árangur á EM 2020 hafi komið sér vel.
Ákveðið hefur verið að hætta keppni í Áskorendabikar Evrópu og EHF-bikarnum í handbolta. Meistaradeild Evrópu, bæði karla og kvenna, verður hins vegar kláruð.