Hernaður

Ísraelar gerðu áhlaup á leynilega vopnaverksmiðju í Sýrlandi
Samhliða umfangsmiklum loftárásum Ísraela á fjölda skotmarka í Sýrlandi síðastliðinn sunnudag gerðu ísraelskir sérsveitarmenn áhlaup á eldflaugaverksmiðju Hezbollah. Verksmiðjan er sögð hafa verið reist af Írönum við landamæri Sýrlands og Líbanon.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar hefja gagnsókn í Kúrsk
Á meðan Rússar sækja fram í austurhluta Úkraínu og reyna að ná tökum á öllu Donbas-svæðinu, hafa Úkraínumenn sótt fram í Kúrsk-héraði í Rússlandi. Hægt hefur á sóknum Rússa í Donbas en úkraínskir hermenn eru í mjög varhugaverðri stöðu þar, vegna yfirburða Rússa varðandi mannafla og skotfæri fyrir stórskotalið.

Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers
Átján eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á skóla í Gasa, þar af sex starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands ræða nú við forseta Úkraínu um notkun langdrægra flugskeyta til þess að verjast árásum Rússa sem Úkraínumenn hafa kallað eftir. Biden Bandaríkjaforseti segir unnið að því að veita heimildina.

Hafa fengið skotflaugar frá Íran
Klerkastjórn Íran hefur sent skammdrægar skotflaugar til Rússlands, sem nota á til árása í Úkraínu. Fregnir af þessum sendingum hafa verið á kreiki undanfarna daga en ráðamenn í Evrópu og Bandaríkjunum segja að vopnasendingarnar hafi verið í undirbúningi um langt skeið.

Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela
Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum.

Enn ein „lokatilraun“: Samkomulag sagt stranda á tveimur atriðum
Yfirvöld í Egyptalandi og Katar vinna nú að breytingum á tillögum um vopnahlé á Gasa og eiga í samráði við Bandaríkjamenn. Enn er talað um „lokatilraun“ til að brúa bilið milli Ísrael og Hamas.

Segja yfirburði Bandaríkjanna ógn við stöðugleika í heiminum
Tveir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum segja hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna og bandamanna þeirra gagnvart Kína og Rússland mögulega ógn við stöðugleika í heiminum.

Stærsta aðgerð gegn ISIS í Írak í nokkur ár
Bandarískir og írakskir sérsveitarmenn gerðu í síðustu viku áhlaup á nokkra staði í vesturhluta Íraks og felldu þeir minnst fjórtán vígamenn Íslamska ríkisins. Aðgerðin er sögð sú umfangsmesta gegn ISIS í Írak um nokkurra ára skeið en hún var framkvæmd á sama tíma og yfirvöld Bandaríkjanna og Íraks ræða það hvernig binda eigi enda á viðveru bandarískra hermanna í Írak eða draga verulega úr henni.

Sjö látnir í árásum Rússa á Lviv og utanríkisráðherrann að hætta
Að minnsta kosti sjö létu lífið, þeirra á meðal þrjú börn, þegar Rússar gerðu loftárás á borgina Lviv í Úkraínu í nótt. Lviv er í vesturhluta landsins, nálægt landamærunum að Póllandi, og hefur að miklu leyti sloppið við átökin undanfarin misseri.

Fjörutíu og sjö fallnir og rúmlega tvö hundruð særðir í skotflaugaárás
Að minnsta kosti 47 féllu og 206 eru særðir eftir að tvær skotflaugar hæfðu skóla, þar sem nýir hermenn fá þjálfun, og sjúkrahús í Poltava í Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir marga hafa lent undir braki húsa sem skemmdust í árásinni.

Bretar afturkalla sum leyfi fyrir vopnaútflutningi til Ísrael
Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að afturkalla heimildir til vopnaútflutnings til Ísrael, vegna hættunnar á því að vopnin verði notuð við brot á alþjóðalögum.

Eldflaugum frá Norður-Kóreu skotið að Úkraínu
Rússar sendu í nótt fjölda dróna og eldflauga að skotmörkum í Úkraínu. Notast var við 35 stýri- og skotflaugar auk 26 Shahed-dróna, samkvæmt Úkraínumönnum, og segjast þeir hafa skotið niður níu skotflaugar, þrettán stýriflaugar og tuttugu dróna.

Hóta að breyta kjarnorkuvopnastefnu vegna stuðnings við Úkraínu
Stjórnvöld í Kreml hóta því nú að breyta stefnu sinni um hvenær þau eru tilbúin að beita kjarnavopnum vegna stuðnings vestrænna ríkja við Úkraínu. Þau saka Vesturlönd um að „ganga of langt“ í stríði sem Rússland hóf.

Rekur yfirmann flughersins
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið yfirmann úkraínska flughersins eftir að ein af herþotum flughersins fórst. Flugmaður F-16 herþotu, sem Úkraínuher fékk nýlega að gjöf, lést þegar vélin hrapaði.

Hefðu getað komið í veg fyrir árásina með leyfi bandamanna
Forseti Úkraínu segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannskæða sprengjuárás Rússa á Kharkív í dag ef vestrænir bandamenn leyfðu Úkraínumönnum að gera árásir á rússneska herflugvelli. Börn létust og særðust í árásinni.

Láta af átökum í þrjá daga til að greiða fyrir bólusetningum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir Ísrael og Hamas hafa samþykkt að láta af átökum á Gasa til að greiða fyrir bólusetningu barna gegn mænusótt. Bólusetningar eiga að hefjast á sunnudag.

Aukin spenna vegna aðgerða Ísraelshers á Vesturbakkanum
Ísraelsher segist hafa drepið fimm „hryðjuverkamenn“ sem voru „í felum“ á Vesturbakkanum. Aðgerðir Ísraelsmanna hafa meðal annars beinst gegn Tulkarm, þar sem herinn segir mennina hafa falið sig í mosku.

Tíu drepnir í árásum Ísraelshers á Vesturbakkanum
Minnst tíu Palestínumenn voru drepnir í áhlaupum og loftárásum ísraelska hersins á Vesturbakkann í nótt. Þetta fullyrðir talsmaður Rauða hálfmánans í Palestínu.

Fjórir látnir eftir aðra umferð loftárása Rússa í nótt og morgun
Íbúar víðsvegar um Úkraínu voru hvattir til að leita skjóls í morgun, annan daginn í röð, vegna umfagnsmikilla loftárása Rússa. Tveir létust í árás á hótel í borginni Kryvyi Rih í nótt og tveir til viðbótar í drónaárásum á Zaporizhzhia.

Vopnahlésviðræðum lokið án niðurstöðu
Viðræðum sem stóðu yfir í síðustu viku um vopnahlé á Gasa er lokið án niðurstöðu. Bandaríkjamenn segjast þó ekki hafa gefist upp og munu halda áfram að eiga samtöl við aðila.

Stærsta drónaárásin á Moskvu til þessa
Rússnesk stjórnvöld segjast hafa skotið niður 45 úkraínska dróna á nokkrum stöðum í nótt, þar á meðal við höfuðborgina Moskvu. Þetta hafi verið umfangsmesta drónaárás Úkraínumanna á Moskvu frá upphafi stríðsins fyrir tveimur og hálfu ári.

Viðræður sagðar stranda á kröfum Hamas um algjört brotthvarf Ísrael frá Gasa
Friðarviðræður milli Ísrael og Hamas eru sagðar stranda á kröfum Hamas um að Ísraelar yfirgefi Gasa alfarið, þar sem stjórnvöld í Ísrael eru sögð hafa hafnað kröfunni.

Trump gerði lítið úr æðstu heiðursorðu bandarískra hermanna
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lýsti heiðursorðu sem hann sæmdi fjárhagslegan bakhjarl sinn sem betri en æðstu heiðursorðu sem bandarískir hermenn geta hlotið. Hermenn fá orðuna fyrir að hætta lífi sínu við hetjudáðir í stríði.

Úkraínumenn halda sókn sinni handan landamæranna áfram
Ekkert lát er á sókn Úkraínumanna inn í rússnesk landamærahéruð. Þeir segjast hafa sótt lengra inn í Kúrsk og tekið á annað hundrað hermenn til fanga. Neyðarástandi var lýst yfir í nágrannahéraðinu Belgorod.

Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk
Úkraínsk stjórnvöld segjast ekki ætla sér að halda landsvæðum í Rússlandi eftir óvænta innrás í síðustu viku. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir herinn hafa hrundið frekari sókn Úkraínumanna dýpra inn í landið.

Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran
Skrifstofa Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sendi frá sér yfirlýsingu í gær eftir að fregnir bárust af því að varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefði kallað yfirlýst markmið Netanyahu um að tortíma Hamas „vitleysu“.

Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra
Hershöfðinginn Oleksandr Syrski greindi Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta frá því í gær að hersveitir landsins hefðu lagt um það bil þúsund ferkílómetra undir sig í Kursk í Rússlandi.

Pútín hótar hefndum fyrir innrásina í Kúrsk
Úkraínumenn eiga von á „verðugum viðbrögðum“ frá Rússlandi vegna innrásar þeirra inn í Kúrsk-hérað, að sögn Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Fleiri en hundrað þúsund manns hafa flúið heimili sín í þessari stærstu innrás í Rússland frá lokum seinna stríðs.

Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu
Rússneska ríkisfréttastofan Tass hefur greint frá því að búið sé að slökkva eldinn sem kviknaði í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu í gær. Kæliturn er sagður hafa skemmst í eldinum en hann var óvirkur fyrir.