Þýski boltinn

„Gaman að fá að vera partur af stóru skrefi í íslenskri fótboltasögu“
Glódís Perla Viggósdóttir segist vera stolt af því að vera valin besti miðvörður heims en að sama skapi ekki hrifin af einstaklingsverðlaunum í knattspyrnu. Fótbolti sé hópíþrótt.

Glódís Perla besti miðvörður í heimi
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir varð í 22. sæti í Ballon d'Or kjörinu en úrslitin voru kunngjörð í gær. Það er líka hægt að líta á niðurstöðuna á annan hátt.

Bæjarar svöruðu fyrir Meistaradeildartapið með stórsigri
Eftir að hafa mátt þola 4-1 tap gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í miðri viku komst þýska stórveldið Bayern München aftur á sigurbraut með stórsigri í þýsku deildinni í dag.

Ísak skoraði og lagði upp í óvæntu tapi
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrsta mark toppliðs Fortuna Düsseldorf er liðið mátti þola óvænt 3-4 tap gegn Kaiserslauten í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Fékk þýskan mótherja til að giska á þýðingu íslenskra fótboltaorða
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir verður líklega í sviðsljósinu í nótt þegar íslenska kvennalandsliðið mætir Bandaríkjunum í vináttulandsleik í Texas.

Stjarna Leverkusen á spítala eftir árekstur við vörubíl
Victor Boniface, leikmaður Þýskalandsmeistara Bayer Leverkusen, var fluttur á spítala eftir að bíll sem hann var farþegi í lenti í árekstri við vörubíl.

Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“
Jürgen Klopp var elskaður og dáður hjá liðunum sínum í Þýskalandi eftir að hafa gert frábæra hluti með bæði Borussia Dortmund og Mainz á sínum tíma. Sú ást hefur dofnað mikið eftir að hann réði sig í starf hjá Red Bull.

Harry Kane með þrennu í stórsigri Bayern
Bayern Munchen er enn taplaust í þýsku úrvalsdeildinni eftir góðan 4-0 sigur á Stuttgart í kvöld.

Bætti fyrir vítaklúðrið með því að skora sigurmarkið
Victor Boniface breyttist úr skúrki í hetju þegar Bayer Leverkusen vann 2-1 sigur á Eintracht Frankfurt í þýsku Bundesligunni í dag.

Ísak reiddist dómaranum og lagði þá bara upp mark í staðinn
Ísak Bergmann Jóhannesson félagar í Düsseldorf eru áfram í toppsæti þýsku b-deildarinnar eftir 3-0 útisigur á Regensburg í dag.

Jón Dagur út í hálfleik en upp um þrjú sæti
Eftir flotta frammistöðu með landsliðinu gegn Wales var Jón Dagur Þorsteinsson mættur í slaginn með Herthu Berlín í kvöld þegar liðið vann 3-1 sigur gegn Braunschweig í þýsku B-deildinni í fótbolta.

Stjóri Stuttgart hafnaði United
Sebastian Hoeness, knattspyrnustjóri Stuttgart, var upp með sér yfir áhuga Manchester United en var ekki tilbúinn að taka við liðinu.

Jafnt í spennandi Íslendingaslag
Íslendingaliðin Göppingen og Gummersbach áttust í dag við í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Liðin skildu jöfn eftir spennandi leik þar sem Göppingen var nálægt því að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni.

Sveindís hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna
Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í þýska liðinu Wolfsburg höfðu betur gegn liði Bayern í sannkölluðum Íslendingaslag í þýska boltanum í dag.

Svekkelski Karólínu fyrir leik við liðið sem á hana
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í fótbolta, var í liði Leverkusen sem gerði svekkjandi 1-1 jafntefli við Werder Bremen í efstu deild Þýskalands.

Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni
Í morgun var tilkynnt að Jurgen Klopp myndi taka við sem alþjóða yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull fyrirtækinu í upphafi nýs árs. Fyrrum aðdáendur Klopp eru þó ekki á eitt sáttir með nýja starfið.

Klopp gæti ekki verið spenntari: „Lít á mig sem leiðbeinanda“
Forráðamenn Red Bull binda miklar vonir við ráðningu Jürgens Klopp í starf alþjóða yfirmanns fótboltamála hjá samsteypunni. Sjálfur kveðst hann ekki geta verið spenntari.

Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum
Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, er búinn að finna sér nýtt starf og það er hjá orkudrykkjaframleiðandanum Red Bull, sem á knattspyrnufélög í nokkrum löndum.

Ótrúlegir vítadómar í Þýskalandi: Tóku boltann upp tvisvar í sama leiknum
„Þetta er handboltadeildin,“ grínaðist Gummi Ben á Twitter þegar hann deildi myndbandi af hreint ótrúlegum leik í þýsku 2. deildinni í fótbolta. Tvö víti voru dæmd í leiknum vegna þess að menn tóku boltann upp með höndum.

Karólína Lea og stöllur enn taplausar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur í Bayer Leverkusen eru enn taplausar í þýsku efstu deild kvenna í knattspyrnu.

Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur
Albert Guðmundsson skoraði sigurmark Fiorentina í 2-1 sigri á AC Milan í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Markvörðurinn David De Gea átti stórleik í marki heimaliðsins þar sem hann varði tvær vítaspyrnur og önnur góð færi gestanna. Þá varði Mike Maignan einnig vítaspyrnu en alls fóru þrjár slíkar forgörðum í leiknum.

Cole Campbell á bekknum hjá Dortmund
Cole Campbell er á varamannabekk Borussia Dortmund sem sækir Union Berlin heim í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Sveindís Jane og Sædís Rún á skotskónum
Knattspyrnukonurnar Sveindís Jane Jónsdóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir skoruðu báðar í öruggum sigra liða sinna í kvöld.

Klopp heiðraður af Þýskalandsforseta
Fótboltaþjálfarinn Jürgen Klopp var í dag heiðraður af forseta Þýskalands vegna vinnu hans í þágu þýska ríkisins.

Tap hjá Frey gegn liðinu sem vildi hann | Lið Sveindísar steinlá
Kortrijk, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar, varð að sætta sig við 3-0 tap á útivelli gegn silfurliði síðasta tímabils, Union St. Gilloise, í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Emilía Kiær skoraði og Glódís Perla sá rautt í öruggum sigri
Framherjinn Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði annað marka Nordsjælland í góðum sigri í efstu deild kvenna í Danmörku. Þá fékk Glódís Perla Viggósdóttir tvö gul spjöld og þar með rautt þegar Bayern München vann öruggan 4-0 sigur á Werder Bremen.

Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli
Leverkusen stöðvaði sigurgöngu Bayern München í stórleik þýsku 1. deildarinnar í fótbolta í dag, þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.

Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar
Ísak Bergmann Jóhannesson reyndist hetja Fortuna Düsseldorf þegar liðið lagði Greuther Fürth í þýsku B-deild karla í knattspyrnu.

Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar
Þýska knattspyrnusambandið er með til athugunar borða sem stuðningsmenn Magdeburgar voru með til sýnis á leik liðsins við Karlsruhe í þýsku 2. deildinni um helgina. Borðinn er sagður hafa verið af nasískum toga.

Fertugasti leikur Glódísar og félaga í röð án taps
Bayern München vann öruggan 5-1 sigur á Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið er eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar.