Opna bandaríska

Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV
Opna bandaríska risamótið í golfi mun taka inn kylfinga af LIV mótaröðinni þegar mótið fer fram í ár.

McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð
Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy hefur greint frá því að hann hafi óafvitandi hunsað sjálfan Tiger Woods í mánuð.

DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn
Bryson DeChambeau er með þriggja högga forystu fyrir lokadag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi sem fram fer á Pinehurst-vellinum í Norður Karólínu. Rory McIlroy, Patrick Cantley og Matthieu Pavon eru jafnir í öðru sæti.

Åberg með eins höggs forskot
Hinn sænski Ludvig Åberg leiðir US Open mótið þegar tveimur umferðum er lokið. Hann lék hring gærdagsins á 69 höggum líkt og heimamaðurinn Bryson DeChambeau en er alls á 135 höggum, höggi minna en næstu þrír kylfingar.

Fór fyrst í stöngina en síðan holu í höggi
Það gengur á ýmsu hjá Austurríkismanninum Sepp Straka á US Open í dag.

Rory og Cantlay leiða á US Open
Norður-Írinn Rory McIlroy og Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantlay deila efsta sætinu á US Open en fyrsti hringurinn var spilaður í gær.

Woods segir að Opna bandaríska muni reyna líkamlega á kylfinga
Opna bandaríska meistaramótið í golfi stærir sig af því að vera ein erfiðasta prófraun kylfinga og Tiger Woods tekur svo sannarlega undir það.

Sýking í litlu tá heldur Jon Rahm frá keppni á opna bandaríska
Áttundi efsti kylfingur heimslistans, Jon Rahm, hefur dregið sig frá keppni á opna bandaríska meistaramótinu í golfi.

„Þurfum að fylgjast betur með andlegri heilsu annarra“
Mikil umræða á sér stað innan golfheimsins eftir að þrítugur kylfingur svipti sig lífi á dögunum.

Ótrúlegt gengi Scott í hættu og eina sem hann getur gert er að bíða
Adam Scott er ef til vill ekki nafn sem íþróttaunnendur almennt kannast við en fólk sem fylgist vel með golfi hefur eflaust heyrt nafnið enda hefur kylfingurinn ekki misst af risamóti síðan árið 2001. Hann hefur tekið þátt á 91 móti í röð en ótrúlegt gengi hans er nú í hættu.

Komin sjö mánuði á leið á risamóti í golfi
Amy Olson hlakkar til að skapa ógleymanlegar minningar á US Open risamótinu í golfi en hún mun spila á mótinu þrátt fyrir að vera ólétt og komin sjö mánuði á leið.

Clark hélt McIlroy í skefjum og tryggði sér sinn fyrsta sigur á risamóti
Wyndham Clark tryggði sér sigur á Opna bandaríska risamótinu í golfi, US Open, í nótt. Hann kláraði fjórða og seinasta hringinn á pari og endaði því samtals á tíu höggum undir pari, einu höggi á undan Norður-Íranum Rory McIlroy sem hafnaði í öðru sæti.

Fowler og Clark bítast um forystuna á US Open | Báðir 10 undir pari
Það er hart barist á toppnum á US Open þar sem fjórum höggum munar á 1. og 4. sæti. Wyndham Clark og Rickie Fowler eru áfram efstir en þeir eru báðir 10 höggum undir pari. Þriðji hringurinn af fjórum var leikinn í gær þar sem Clark lék á 69 höggum en Fowler á 70.

Fowler áfram í forystu á US Open
Rickie Fowler er enn í forystu á US Open, 11 undir pari þegar þetta er skrifað, en hann hefur spilað átta holur af öðrum hring sínum á mótinu. Wyndham Clark og Rory McIlroy gera sig þó líklega til að ógna honum.

Methafarnir Fowler og Schauffele með tveggja högga forystu
Þeir Ricky Fowler og Xander Schauffele eru með tveggja högga forystu eftir fyrsta hring Opna bandaríska risamótsins í golfi, US Open.

128 ára met slegið tvisvar með 22 mínútna millibili á US Open
Bandaríski kylfingurinn Rickie Fowler átti sannkallaðan draumahring á US Open í kvöld þegar hann fór völlinn á 62 höggum. Var þetta í fyrsta sinn í 128 ára sögu mótsins sem kylfingi tekst að klára völlinn á færri en 63 höggum.

Risamót í skugga samruna: Ringulreið og ruglingur fyrir þriðja risamót tímabilsins
Þriðja risamót tímabilsins fer af stað í dag þegar Opna bandaríska, US Open, fer fram á The Los Angeles Country Club's North Course-vellinum í Los Angeles um helgina. Mótið er raunar nú þegar hafið, en það er ekki mótið sjálft sem hefur stolið fyrirsögnum golfheimsins undanfarna daga, heldur óvæntur samruni PGA- og LIV-mótaraðanna.

Lefty þögull sem gröfin um samrunann
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur ekkert viljað tjá sig um samrunann stóra í golfheiminum.

Fagnaði loksins sigri á risamóti eftir 40 ár sem kylfusveinn
Englendingurinn Matt Fitzpatrick kom, sá og sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi um helgina, en sigurinn var ekki síst ánægjulegur fyrir kylfusveininn Billy Foster sem hefur verið í bransanum í 40 ár.

Morikawa og Dahmen leiða á Opna bandaríska
Bandaríkjamennirnir Collin Morikawa og Joel Dahmen leiða Opna bandaríska mótið í golfi eftir uppgjör dagsins.

Daffue með tveggja högga forystu á Opna bandaríska
Nú þegar um helmingur kylfinga er lagður af stað á annan hring Opna bandaríska meistaramótsins í golfi er Suður-Afríkumaðurinn MJ Daffue með tveegja högga forystu á keppinauta sína.

Hadwin leiðir eftir fyrsta hring | Mickelson meðal neðstu manna á afmælisdaginn
Kanadamaðurinn Adam Hadwin er í forystu eftir fyrsta dag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi. Hann lék holurnar 66 höggum í dag, eða fjórum höggum undir pari vallarins. Afmælisbarnið Phil Mickelson átti hins vegar afleitan dag og lék á átta höggum yfir pari.

Liðhlauparnir mæta til leiks á US Open
Opna bandaríska meistaramótið, US Open, hefst á Brookline-vellinum í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum í dag. Margir af bestu kylfingum heims mæta til leiks, þar á meðal kylfingar af LIV-mótaröðinni. Bein útsending frá mótinu hefst klukkan 15:00 á Stöð 2 Golf.

Eru Sádar að eyðileggja golfið?
Þó að Sádi-Aröbum hafi ekki tekist að lokka Tiger Woods yfir á hina nýju LIV-mótaröð í golfi, alla vega ekki enn, stendur golfheimurinn nú klofinn eftir að stór hópur kylfinga úr fremstu röð hefur þegið þær himinháu fjárhæðir sem þar eru í boði.

Segir LIV fyrir eldri kylfinga og þá sem kjósi auðveldu leiðina
Rory McIlroy hélt áfram að gagnrýna þá kylfinga sem gengið hafa til liðs við hina umdeildu LIV-mótaröð í golfi þegar hann sat fyrir svörum á fjölmiðlafundi, í aðdraganda þess að hann mætir þeim á US Open risamótinu sem hefst á morgun.

Tiger Woods ekki með á Opna bandaríska: „Líkaminn þarf meiri tíma“
Tiger Woods, einn besti kylfingur allra tíma, hefur staðfest að hann muni ekki taka þátt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem hefst í næstu viku.

Grátlega nálægt því að komast á Opna bandaríska meistaramótið
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús var hársbreidd frá því að tryggja sér keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi er hann keppti á úrtökumóti í New York á sunnudag.

Vann sitt fyrsta risamót tveimur vikum eftir að hafa greinst með veiruna
Jon Rahm hrósaði sigri á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Þetta var fyrsti sigur hans á risamóti á ferlinum.

Þeim gamla fataðist flugið en McIlroy fór mikinn
Þrír kylfingar deila forystunni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, US Open, fyrir lokahringinn sem leikinn verður á Torrey Pines-vellinum í San Diego í Kaliforníu í dag. Staðan er gríðarjöfn á toppnum.

Óvænt í forystu eftir tvo hringi
Hinn 48 ára gamli Breti, Richard Bland, er með forystu á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi, US Open, þegar tveir hringir eru búnir af mótinu. Russell Henley deilir með honum toppsætinu.