Elizabeth Holmes og Theranos

Stofnandi Theranos hefur afplánun
Elizabeth Holmes, stofnandi fallna blóðrannsóknafyrirtækisins Theranos, hefur afplánun á ellefu ára fangelsisdómi í kvennafangelsi í Texas í dag. Henni var hafnað um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar dómnum.

Holmes sleppur ekki við fangelsið og þarf að greiða háar bætur
Bandarískur áfrýjunardómstóll hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna blóðprufufyrirtækisins Theranos, um að fá að ganga laus gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sínum í gær. Holmes og meðstjórnandi hennar þurfa að greiða milljarða króna í miskabætur.

Forstjóri Theranos frestar fangelsisvist með áfrýjun
Elizabeth Holmes, forstjóri fallna tæknifyrirtækisins Theranos, hefur ekki afplánun á meira en ellefu ára fangelsisdómi í dag þar sem hún áfrýjaði niðurstöðu alríkisdómstóls. Samverkamaður Holmes seinkaði afplánun sinn um mánuð með sams konar áfrýjun í síðasta mánuði.

Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist
Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik.

Fyrrverandi forseti Theranos dæmdur til fangelsisvistar
Ramesh Balwani, fyrrum forseti og framkvæmdastjóri rekstrar hjá bandaríska frumkvöðlafyrirtækinu Theranos hefur verið dæmdur til tólf ára og ellefu mánaða fangelsisvistar.

Holmes dæmd í ellefu ára fangelsi
Elizabeth Holmes, stofnandi Theranos, hefur verið dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Holmes var sakfelld í upphafi árs en refsingin ekki ákveðin fyrr en nú.

Hrapaði af stjörnuhimninum og gæti átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi
Frumkvöðullinn Elizabeth Holmes var í vikunni sakfelld fyrir fjársvik en hún var lengi álitin ein skærasta stjarna Sílíkondals í Bandaríkjunum.

Elizabeth Holmes fundin sek um fjársvik
Dómstóll í Bandaríkjunum sakfelldi í gær Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos, af ákæru um að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Réttarhöld í máli Holmes hafa staðið yfir í Kaliforníu síðustu mánuði.

Saksóknarar lýstu stofnanda Theranos sem gráðugum svikahrappi
Réttarhöld yfir Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos sem átti að umbylta blóðrannsóknum, hófust í Kaliforníu í gær. Saksóknarar lýstu Holmes þar sem gráðugum svikahrappi en verjendurnir sögðu hana ástríðufullan lítilmagna.

Lofaði tæknibyltingu en svarar til saka fyrir svik og pretti
Búast má við fjölmiðlasirkus þegar réttarhöld yfir Elizabeth Holmes, stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Theranos, hefjast í Kaliforníu í dag. Holmes boðaði byltingu í tækni við blóðprufur en gæti nú átt yfir höfði sér áralangt fangelsi fyrir stórfelld svik og blekkingar.

Stofnandi Theranos segist hafa verið beittur andlegu ofbeldi
Elizabeth Holmes, stofnandi blóðrannsóknafyrirtækisins Theranos, heldur því fram að forseti fyrirtækisins og þáverandi kærasti hennar hafi beitt hana andlegu ofbeldi. Þau eru bæði ákærð fyrir stórfelld svik og blekkingar.

Hluti af ákærum á hendur stofnanda Theranos felldur niður
Stjórnendur nýsköpunarfyrirtækisins umdeilda sæta enn ákæra fyrir svik í tengslum við blóðprufubúnað.

Lögmenn stofnanda Theranos vilja losna við hann
Holmes var stjórstjarna í nýsköpunarbransanum á sínum tíma en stjarna hennar féll í skugga ásakana um meiriháttar svik og pretti hjá Theranos.

Blóði drifnar blekkingar þeirrar sem sögð var næsti Steve Jobs
Saga Elizabeth Holmes er um margt ótrúleg. 19 ára stofnaði hún fyrirtæki sem metið var á níu milljarða dollara árið 2014 en í dag er hún alræmd í frumkvöðla- og tæknigeiranum enda sætir hún ákæru fyrir fjársvik.

Sú sem var sögð næsti Steve Jobs greiðir sekt vegna blekkinga
Frumkvöðlar sem ætla sér að breyta iðnaði verða að segja fjárfestum sannleikann, segir sú sem fór fyrir málinu gegn þessum frumkvöðli.