Hreyfum okkur saman

Hreyfum okkur saman: Flæðandi styrktarþjálfun
Í sjöunda þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks góða styrktaræfingu. Hörkugóð æfing þar sem unnið er með eitt handlóð eða ketilbjöllu.

Hreyfum okkur saman: Styrktaræfingar með ketilbjöllu
Í sjötta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu með ketilbjöllu. Það er þó auðvitað líka hægt að gera æfinguna með handlóði eða annari þyngd ef þú átt ekki ketilbjöllu á heimilinu.

Hreyfum okkur saman: Styrktaræfingar með teygju
Í fimmta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu með teygju. Það er þó auðvitað líka hægt að gera æfinguna án teygjunnar ef þú átt ekki slíka á heimilinu.

Fullkominn lagalisti fyrir þá sem vilja hreyfa sig
Anna Eiríksdóttir þjálfari og þáttastjórnandi Hreyfum okkur saman hérna á Lífinu hefur tekið saman lög fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig.

Hreyfum okkur saman: Eftirbruni
Í fjórða þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu sem gefur góðan eftirbruna.

Hreyfum okkur saman: Styrkjandi jógaflæði
Í þriðja þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu sem hún kallar fitnessjóga. Um er að ræða einstaklega styrkjandi jógaflæði.

Hreyfum okkur saman: Kviður og bak
Í öðrum þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks heimaæfingu fyrir kvið og bak. Rólegar og góðar æfingar sem einblína á að styrkja kvið- og bakvöðva.

„Gerir mér kleift að lifa lífinu mínu til hins ítrasta“
„Hreyfum okkur saman eru stuttir fimmtán mínútna æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Æfingarnar eru fjölbreyttar og er markmiðið með þessu þáttum klárlega að fá sem flesta landsmenn til að hugsa betur um heilsuna og hreyfa sig smá á hverjum degi,“ segir Anna Eiríksdóttir þáttastjórnandi æfingaþáttanna.

Hreyfum okkur saman: Styrkur og liðleiki
Anna Eiríksdóttir fór af stað með nýja þætti hér á Lífinu á Vísi í dag. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á Stöð 2+ efnisveitunni. Um er að ræða heimaæfingar sem allir geta gert þar sem þeim hentar. Þættirnir koma út tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.