Arion banki
5 6 7 8 ›
Fresta vaxtahækkunum þar sem gleymdist að tilkynna viðskiptavinum Arion banki hefur ákveðið að vaxtahækkun óverðtryggðra neytendalána með breytilegum vöxtum sem taka átti gildi 29. júlí síðastliðinn muni ekki taka gildi fyrr en 25. september næstkomandi. Þetta sé vegna þess að bankanum hafi misfarist að tilkynna viðskiptavinum um breytinguna með beinum hætti. Viðskipti innlent 2.9.2022 12:02
Rúnar hættir í eigin viðskiptum hjá Arion banka Rúnar Friðriksson, sem hefur starfað í eigin viðskiptum Arion banka síðustu ár, er hættur hjá bankanum, samkvæmt heimildum Innherja. Hann sagði starfi sínu lausu í dag en það mun skýrast fljótlega hver verður fenginn til að taka við af honum innan bankans. Klinkið 31.8.2022 15:02
Hagnaður Stefnis minnkar um 16 prósent í „mjög krefjandi“ fjárfestingarumhverfi Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, hagnaðist um 529 milljónir króna á fyrri hluta ársins og dróst hann saman tæplega 16 prósent frá sama tímabili í fyrra þegar félagið skilaði 629 milljónum í hagnað. Eignir í virkri stýringu félagsins lækkuðu um 14 milljarða frá áramótum og eru nú um 274 milljarðar. Innherji 29.8.2022 18:00
Útlánavöxtur í hæstu hæðum, sýnir að hagkerfið „þolir hærra vaxtastig“ Mikið útlánaskrið hjá bönkunum, einkum drifið áfram af nýjum lánum til fyrirtækja síðustu mánuði, er til marks um mikinn þrótt í hagkerfinu og ætti að treysta þá skoðun peningastefnunefndar að vextirnir þurfi að hækka enn meira, að mati hagfræðinga. Innherji 23.8.2022 15:27
Hækkar verðmat á Arion og segir efnahagsumhverfið „vinna með bankastarfsemi“ Uppgjör Arion banka á öðrum ársfjórðungi, þar sem félagið skilaði rúmlega 9,7 milljarða króna hagnaði, var „allt samkvæmt áætlun“ en afkoman litaðist mjög af erfiðum aðstæðum á hlutabréfamörkuðum en á móti var yfir sex milljarða hagnaður af sölu eigna á fjórðungum. Innherji 8.8.2022 09:39
Þóknanatekjur Arion aldrei verið hærri og hagnaðurinn um 10 milljarðar Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi, sem var meðal annars drifin áfram af auknum vaxta- og þóknanatekjum, jókst um liðlega 1,9 milljarð króna á milli ára og var rúmlega 9,7 milljarðar króna. Mikil umsvif í fyrirtækjaráðgjöf og eignastýringu skilaði sér í því að þóknanatekjur hækkuðu um 27 prósent og námu um 4,54 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri á einum fjórðungi. Innherji 27.7.2022 17:34
Hagnaður Arion banka jókst í 9,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 9.712 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 7.816 milljónir á sama tímabili í fyrra. Heildareignir námu 1.383 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1.314 milljarða í árslok 2021. Sala á greiðslumiðlunarfyrirtækinu Valitor til Rapyd skilaði bankanum 5,6 milljarða króna söluhagnaði. Viðskipti innlent 27.7.2022 17:15
Hækkandi vaxtatekjur ættu að lita uppgjör stóru bankanna á markaði Útlit er fyrir að uppgjör stóru viðskiptabankanna í vikunni sem eru skráðir á markað, Arion banka og Íslandsbanka, muni verða sterk ef marka má afkomuspár greinenda. Hækkandi vaxtastig þýðir að hreinar vaxtatekjur bankanna, sem eru stærsti tekjuliður þeirra, munu aukast verulega á milli ára sem vegur á móti samdrætti í fjármunatekjum vegna erfiðra aðstæðna á fjármálamörkuðum. Innherji 26.7.2022 11:43
Innri endurskoðandi Kviku ráðinn yfir til Arion banka Anna Sif Jónsdóttir, sem hefur verið innri endurskoðandi Kviku banka í nærri áratug, hefur söðlað um og ráðið sig yfir til Arion banka. Þar mun hún gegna starfi forstöðumanns innri endurskoðunar Arion banka, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 4.7.2022 19:49