Landsbankinn „
6 7 8 9 ›
„Kærkomin“ kólnun á fasteignamarkaði Fyrstu greinilegu merki um kólnun á fasteignamarkaði sjást nú. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,4% á milli júlí og ágúst en slík lækkun hefur ekki átt sér stað síðan árið 2019. Forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans segir hin kælandi áhrif vera kærkomin en þau urðu meðal annars til þess að verðbólguspá hagfræðideildarinnar gerir nú ráð fyrir enn meiri hjöðnun verðbólgu. Viðskipti innlent 21.9.2022 11:38
Íbúðaverð lækkar á milli mánaða í fyrsta sinn í þrjú ár Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4 prósent á milli mánaða í ágúst. Er það í fyrsta sinn síðan í nóvember 2019 sem vísitalan lækkar. Hagfræðideild Landsbankans telur að þetta sé skýrt merki um að fasteignamarkaðurinn sé farinn að kólna. Viðskipti innlent 21.9.2022 10:08
Sjálfbærni felur í sér ótal tækifæri Sjálfbærni, og þá ekki síst loftslagsmál og samfélagsleg málefni, verður meðal aðalviðfangsefna okkar næstu áratugina. Samfélög gera sífellt ríkari kröfur á að fyrirtæki sýni samfélagslegan ávinning af starfsemi sinni, ekki síður en fjárhagslegan. Skoðun 21.9.2022 09:01
Bankastjóri Landsbankans segir samkeppni um innlán vera að aukast Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að ekki hægt sé að skoða innlánavexti banka í tómarúmi heldur þurfi að setja þá í samhengi við útlánavexti sem eru almennt lægri hjá Landsbankanum en öðrum íslenskum fjármálastofnunum. Samkeppnin um innlán sé hins vegar að aukast og bankinn muni taka kjör á bankareikningum til skoðunar. Innherji 21.9.2022 07:00
Aðflutt starfsfólk nauðsynlegt til að mæta aukinni eftirspurn Skráð atvinnuleysi á Íslandi heldur áfram að lækka og stendur nú í 3,1 prósenti miðað við 3,2 prósent í síðasta mánuði. Á sama tíma telur rúmlega helmingur fyrirtækja á Íslandi að skortur sé á starfsfólki. Frá 2007 hafa aldrei fleiri fyrirtæki talið vanta starfsfólk. Viðskipti innlent 20.9.2022 11:56
Sjálfvirkni rekur fleyg milli innlánsvaxta bankanna Nýir og sjálfvirkir innlánsreikningar Íslandsbanka, sem hafa gert bankanum kleift að stórbæta vaxtakjörin í samanburði við Arion banka og Landsbankann, varpa ljósi á hversu mikill ávinningur er fólginn í sjálfvirknivæðingu og samkeppni í fjármálakerfinu. Vextirnir eru komnir í nánd við vextina á óbundnum reikningum Auðar, fjármálaþjónustu Kviku banka, sem hefur um nokkurt skeið boðið mun betri kjör en keppinautarnir. Innherji 20.9.2022 06:10
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. Innlent 16.9.2022 19:21
Reikna með að verðbólgan mjakist niður á við Hagfræðideild Landsbankans spáir því að ársverðbólga muni mælast 9,6 prósent í september. Gangi það eftir telur hagfræðideildin að það sé frekari staðfesting þess að verðbólga hafi náð hámarki hér á landi. Viðskipti innlent 15.9.2022 10:36
Landsbankinn fyrstur til að hækka vextina Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,75 prósentustig og verða þeir eftir breytingu sjö prósent. Viðskipti innlent 1.9.2022 07:41
Landsbankinn vill keppa við SaltPay og Rapyd í greiðslumiðlun Landsbankinn vinnur markvisst að því, samkvæmt heimildum Innherja, að fara í samkeppni við SaltPay og sameinað fyrirtæki Valitors og Rapyd á sviði greiðslumiðlunar. Gangi áform bankans eftir verður hann þriðji nýi keppinauturinn á markaðinum ásamt Kviku banka og Sýn. Innherji 12.7.2022 11:27
Óbeinn hlutur Landsbankans í Marel lækkað í virði um sex milljarða á árinu Mikið verðfall á gengi hlutabréfa Marels, sem hefur lækkað um 26 prósent frá áramótum, þýðir að óbeinn eignarhlutur Landsbankans í félaginu hefur fallið í virði úr 23,5 milljörðum króna í 17,3 milljarða á fjórum og hálfum mánuði, eða um liðlega 6,2 milljarða. Meira en 250 milljarðar hafa samtals þurrkast út af markaðsvirði Marels frá því í lok ágúst í fyrra þegar hlutabréfaverð félagsins var hvað hæst. Innherji 17.5.2022 07:00