Kjaraviðræður 2022-23

Þungbært skref að boða verkbann
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segir stöðuna sem upp er komin vera ömurlega. Hann segir það hafa verið þungbært skref að boða atkvæðagreiðslu um beitingu verkbanns. Svona gerist þó þegar forysta Eflingar neiti að starfa eftir leikreglum vinnulöggjafarinnar.

Boða verkbann á félagsfólk Eflingar
Atkvæðagreiðsla um boðun verkbanns á félagsfólk Eflingar hefst í dag meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins. Verði verkbannið samþykkt mega SA banna öllu félagsfólki Eflingar sem starfar eftir samningum við samtökin að mæta til vinnu og fær það þá engin laun.

Ísland á „grafalvarlegum stað“ eftir tvær vikur af verkföllum
Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs, segir það gríðarleg vonbrigði að verkfall hefjist aftur í nótt. Á föstudaginn og laugardag hefði tónninn í deiluaðilum verið jákvæður og hann var vongóður um að deilan myndi leysast.

Kröfur Eflingar hafi verið umtalsvert út fyrir rammann
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir vonbrigði að samningar hafi ekki náðst. Hann segir kröfur Eflingar vera umtalsvert út fyrir ramma sem samtökin hafa markað í samningum við önnur stéttarfélög.

„Ég get nú kannski ekki sagt að þetta komi mikið á óvart“
Viðræðum Eflingar og SA er lokið og því ljóst að verkfall mun hefjast á miðnætti. Framkvæmdastjóri Olís þetta ekki koma mikið á óvart. Fyrirtækið búi sig undir að verkfallið gæti dregist á langinn.

Viðræðum slitið án samnings: Efling segir SA hafa siglt viðræðunum í strand
Viðræðum milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hefur verið slitið. Verkfall hefst aftur í kvöld en samninganefnd Eflingar sakar SA um að sigla viðræðunum í strand.

Bílstjórum og hótelstarfsfólki sagt að búa sig undir verkfall
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sent skilaboð til hótelstarfsmanna og bílstjóra í félaginu, um að vera í viðbragðsstöðu til að hefja verkfallsaðgerðir að nýju á miðnætti í kvöld.

Segir Guðrúnu gera lítið úr störfum opinberra starfsmanna
Formaður BSRB segir þingmann Sjálfstæðisflokksins gera lítið úr opinberum starfsmönnum með orðræðu sinni um of mikinn fjölda þeirra og of háan launakostnað hins opinbera.

Herra, má ég fá meiri graut?
Það er óhætt að segja að á síðustu mánuðum hafi athygli landsmanna beinst í átt til kjarasamninga og auðvitað full ástæða til, samtalið milli atvinnurekenda og launafólks um réttláta umbun fyrir vinnuframlag er yfirleitt fréttnæmt, þar sem að um er að ræða hagsmuni stórra hópa í hvert sinn.

„Dagurinn í dag skilaði mjög litlu“
Viðræður milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hafa ekki skilað neinum árangri í dag. Fundað verður aftur í fyrramálið en Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari, segir að búið sé að vinna að útfærslu samnings en í lok dags sé ljóst að vinnan hafi ekki þokast mikið.

Hafna samningum SA við Eflingu og Matvís
Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) hafna samningum Samtaka atvinnulífsins (SA) við Eflingu og Matvís. Framkvæmdastjóri samtakanna segir það skjóta skökku við að fyrirtæki á veitingamarkaði fái ekki að koma að samningsborðinu.

Von er á tilkynningu á sjötta tímanum
Von er á tilkynningu frá settum ríkissáttasemjara varðandi samningaviðræður Samtaka atvinnulífsins. Framkvæmdastjóri SA er aftur kominn á kreik og hefur tekið þátt í fundarhöldum dagsins.

Kjaradeila SA og Eflingar um lágmarkslaun í velsældarsamfélaginu Íslandi
Nú stendur yfir mikilvæg kjaradeila milli SA og Eflingar þar sem tekist er á um taxtahækkanir lágmarkslauna. Krafa Eflingar er að lágmarkstaxti verði 408 þúsund krónur á mánuði. Hvort sú krafa næst fram í þessari lotu liggur ekki fyrir þegar þessi grein er skrifuð en umræðan og harkan sem birst hefur í fjölmiðlum undanfarnar vikur vegna kröfugerðar Eflingar vekur upp spurningar um hvort þessi barátta er háð á réttum vígvelli.

Upp úr slitnað milli flugmálastarfsmanna og SA
Fundir samninganefnda Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Samtaka atvinnulífsins um gerð nýrra kjarasamninga, sem hafa verið lausir um lengri tíma, hjá ríkissáttasemjara hafa ekki borið árangur. Félagsmenn funduðu í kvöld og blikur eru á lofti varðandi vinnudeiluaðgerðir.

Eiginlegar kjarasamningsviðræður hafnar
Settur ríkissáttasemjari segir góðan tón vera í samningsaðilum í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að samninganefndirnar hafi hafið eiginlega vinnu við gerð nýs kjarasamnings.

Sólveig Anna segir aðgerðir Eflingar hafa skilað árangri
Forystufólk Eflingar og Samtaka atvinnulífsins kom nokkuð jákvætt til leiks hjá ríkissáttasemjara í morgun í upphafi þriggja daga samningalotu í skjóli frá verkfallsaðgerðum og vona að þessir dagar dugi til að komast langt. Formaður Eflingar segir aðgerðir félagsins hafa skilað árangri.

Myndi aldrei ná að þrífa jafnmörg herbergi sjálfur
Framkvæmdastjóri Íslandshótela segir að frestun verkfalla hafi afstýrt hættuástandi hér á landi. Hann bindur vonir við að það leysist úr kjaradeilunni um helgina en býr sig þó undir það versta.

Eldræða um forstjóralaun: „Ekki grundvöllur til að tala um sammannleg gildi eða siðferði“
„Þetta eru orðin svo ofboðslega bjöguð viðmið í samfélaginu í dag. Ef við erum að normalísera þessar tölur, að þetta sé möguleiki, þá erum við ekki með grundvöll til að tala um sammannleg gildi eða siðferði. Að mínu mati.“

Fundir hafnir hjá ríkissáttasemjara
Fundarhöld eru hafin í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni þar sem fulltrúar Eflingar og Samtaka atvinnulífsins freista þess að ná saman um kjarasamning um helgina.

Alls ekki auðveld ákvörðun að fresta aðgerðum
Formaður Eflingar segir það hafa verið erfiða ákvörðun að fresta verkfallsaðgerðum stéttarfélagsins. Ákvörðunin sé þó útpæld og nú er búist við „raunverulegum kjarasamningsviðræðum“.

Vinna áfram með ramma fyrri kjarasamninga
Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins segir samtökin telja að nú sé meiri forsendur til að ræða um gerð kjarasamnings á grundvelli þeirra sem meginþorri launafólks hefur þegar samþykkt eftir að samkomulag náðist við Eflingu um frestun verkfalla í kvöld.

Verkfallsaðgerðum frestað
Verkfallsaðgerðum Eflingar hjá starfsmönnum Íslandshótela, Berjaya Hotels, Reykjavík Edition, Skeljungs, Samskipa og Olíudreifingu hefur verið frestað á meðan samningaviðræður Eflingar og SA halda áfram. Fulltrúar beggja aðila hafa fundað í húsnæði ríkissáttasemjara í kvöld og tókst að finna flöt til að halda viðræðunum gangandi.

Segir leiðsögumönnum að láta dæluna ganga
Dagsferðir frá höfuðborginni verða fyrstar til að falla vegna verkfallsaðgerða segir rekstrarstjóri ferðaþjónustufyrirtækis. Allir leiðsögumenn hafa verið beðnir um að fylla á tankinn eins oft og þeir mögulega geta.

Sólveig segist komin til að halda viðræðum áfram
Ríkissáttasemjari segir að það muni liggja fyrir seinna í kvöld hvort alvöru viðræður muni hefjast milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins eða hvort viðræðum verður slitið. Formaður Samtaka atvinnulífsins segist þurfa „andrými“ til að halda viðræðunum áfram. Við fylgjumst með gangi mála í vakt hér neðst í fréttinni.

Bílstjórar þyrftu að vinna í 42 mánuði til að ná mánaðarlaunum forstjóra
Bílstjórar hjá Skeljungi þyrftu að vinna í 42 mánuði á grunnlaunum til að ná upp í mánaðarlaun forstjóra SKEL. Grunnlaun bílstjóra eru um og yfir fjögur hundruð þúsund á mánuði en nýr forstjóri SKEL fékk að meðaltali 19 milljónir á mánuði í fyrra.

Ekki bara samviskan sem mun stöðva bensínþyrstan almenning
Tvær bensínstöðvar Orkunnar eru nú lokaðar almenningi vegna verkfallsins. Forstjóri Orkunnar segir þó að nóg eldsneyti sé til sem stendur og hvetur almenning til að halda ró sinni.

Bensínstöð Orkunnar í Skógarhlíð aðeins opin fyrir neyðaraðila
Vegna verkfalls olíubílstjóra er Orkustöðin í Skógarhlíð nú aðeins opin fyrir neyðaraðila. Skeljungur dreifir nú eldsneyti á stöð Orkunnar í Skógarhlíð í samræmi við samþykkt undanþágunefndar Eflingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkunni.

„Þessum viðræðum verður allavega ekki slitið af sáttasemjara“
Settur ríkissáttasemjari vonar að lausn náist í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA). Hann segir miðlunartillöguna sem forveri hans lagði fram ekki vera uppi á borðinu í augnablikinu.

Segir raunverulegan möguleika á að opna þurfi fjöldahjálparstöðvar
Þúsundir ferðamanna sem sem von er á til landsins munu ekki geta nýtt sér þá gistingu sem þeir hafa keypt sér vegna verkfallsaðgerða á hótelum. Raunverulegur möguleiki á að opna þurfi fjöldahjálparstöðvar segir talsmaður ferðaþjónustunnar. Verkföllin hafa áhrif á allt samfélagið.

Krefjast þess að verkföllum verði frestað, eða hvað?
Svo virðist sem Samtök atvinnulífsins ætli að gera það sem forsendu fyrir frekari kjaraviðræðum við Eflingu að verkfallsaðgerðum verði frestað. Formaður Eflingar segir frestun ekki á borðinu nema þá SA komi með eitthvað bitastætt fyrir Eflingarfólk á borðið.