Þorsteinn Siglaugsson

Gervigreind í skólastarfi – hvað getum við lært af Eistlandi?
Eistland hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að stafrænum lausnum og nýsköpun í menntakerfinu. Nýjasta frumkvæði þeirra, AI Leap 2025 (e. TI-Hüpe 2025), er metnaðarfullt átak sem miðar að því að innleiða markvissa notkun gervigreindar í menntakerfi landsins.

„Löngum var ég læknir minn ...“
Gervigreind er að umbreyta vinnumarkaðnum á algerlega nýjan hátt.

Kosningaloforðið sem gleymdist?
Nýverið kynnti ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar nýja aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum gervigreindar.


Gervigreindin og atvinnulífið
Veturinn 2022/23 markaði mikilvæg tímamót, en þá tók mannkynið að uppgötva möguleika spunagreindarinnar (e. generative AI). Nú er ljóst að þessi tækni er komin til að vera og fyrirtæki um allan heim eru tekin að nýta hana á markvissan hátt í rekstri.

Er „Stem“ áherslan í skólakerfinu tímaskekkja?
Fyrir skemmstu las ég frásögn af áhyggjum ástralskra háskólakennara yfir því að erlendir nemendur, sem ekki töluðu ensku að neinu gagni væru að ná að útskrifast úr háskólanámi, jafnvel meistaranámi með því að nota gervigreind til að vinna fyrir sig verkefni.

Gervigreind og máttur tungumálsins
Fyrir fáeinum dögum sagði Jamie Dimon forstjóri JPMorgan Chase bankans að tilkomu gervigreindar mætti líkja við uppgötvun rafmagnsins, svo umfangsmiklar yrðu samfélagsbreytingarnar sem hún leiddi af sér.

Hin endanlega lausn
„Hin mikla frásögn samfélags okkar er frásögn vélhyggjunnar, frásögn þar sem maðurinn er smættaður niður hreina líffræðilega tilvist. Frásögn sem hunsar algerlega sálræna og táknræna vídd manneskjunnar. Þessi sýn á manninn er kjarni vandans.”

Babelsturninn nýi
Ég fór á fund um daginn hjá alþjóðlegu hugbúnaðarfyrirtæki. Þar var fólk víðsvegar að úr heiminum að tala, allir á ensku. Enska er fyrirtækismálið. En enginn ræðumanna hafði ensku að móðurmáli, sem heyrðist auðvitað vel.

„Ég er ekki ég, ég er annar“
Ég rakst um daginn á auglýsingu frá ansi hreint sniðugu sænsku fyrirtæki, sem hefur þróað gervigreindarlausn sem sendir út tölvupósta og skilaboð, svarar og bókar sölufundi, allt í nafni nafngreindra sölufulltrúa. Þetta fyrirtæki virðist fara vel af stað og mikill áhugi á þjónustunni. Það kemur ekki á óvart, enda mikill ávinningur af sjálfvirkninni.

Gervigreind eða ekki - þar er efinn
Um það bil 99% af færslum sem tengjast gervigreind á samfélagsmiðlum eru af tvennum toga: Annars vegar fyndnar frásagnir af röngum svörum mállíkana við illa orðuðum fyrirspurnum. Hins vegar sniðugar myndir búnar til af gervigreind. Miðað við þetta gæti virst rétt að líta á stóru mállíkönin sem tískufyrirbrigði sem fljótt muni hverfa af sjónarsviðinu. En ekkert er fjær sannleikanum.

Gervigreind og hröð og hæg hugsun
Samkvæmt gervigreindarbloggaranum Alberto Romero var upphafið að þeirri atburðarás sem átti sér stað innan OpenAI fyrirtækisins, sem þróar ChatGPT mállíkanið, fyrir um 10 dögum síðan líklega tengt ágreiningi varðandi nýja Q* (Q-Star) líkanið sem er talið geta leyst flókin stærðfræðileg vandamál, eitthvað sem núverandi stóru tungumálalíkön geta ekki gert.

Yfirgefum bergmálshellana og tölum saman
„Ég segi alltaf færri og færri orð / enda hafði ég lengi á þeim illan bifur,“ segir skáldið Sigfús Daðason í þekktu kvæði.

Atlagan að kjarna frelsisins
Við getum í grófum dráttum greint frelsi okkar í þrjú lög. Ysta lagið er athafnafrelsi; frelsi til að eiga viðskipti, til að velja sér starf, til að nota sjálfsaflafé sitt. Stjórnmálaumræða dagsins hverfist yfirleitt að mestu um þetta lag frelsisins, hversu víðtækt hlutverk ríkisvaldsins eigi að vera og hversu miklar skorður megi reisa einstaklingsfrelsinu. Það er þarna sem hægri og vinstri takast á.

Gagnrýnin hugsun er eina vopnið gegn heimsendaspámönnunum
Um daginn átti ég spjall við einn þeirra sem enn trúa því að hin fordæmalausa ofsahræðsla sem greip um sig vegna kórónuveirunnar hafi verið réttlætanleg.

Roald Dahl og afneitun veruleikans
Um síðastliðna helgi bárust af því fregnir að verið væri að endurútgefa bækur barnabókahöfundarins vinsæla, Roald Dahl, með verulega breyttum texta. Dahl er meðal annars höfundur Kalla og súkkulaðiverksmiðjunnar en samnefnt leikrit var sett upp hérlendis fyrir fáum árum.

Tjáningarfrelsið stendur á krossgötum
Félagasamtökin Málfrelsi – samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi, voru stofnuð af litlum en samheldnum hópi fólks sem ég tel nú meðal bestu vina minna. Við kynntumst í gegnum baráttu gegn þöggun og ritskoðun gagnvart þeim sem hafa lýst efasemdum um réttmæti margra þeirra aðgerða sem var gripið til á síðustu þremur árum.