
Hermundur Sigmundsson

Íslenskt menntakerfi - stórar áskoranir
Það hefur sjálfsagt aldrei átt betur við en nú í kjölfar slakra niðurstaðna íslenskra nemenda í PISA að segja áskoranir vera stórar í íslensku menntakerfi. Niðurstöðurnar þarf að taka alvarlega og nauðsynlegt að bregðast við með breyttum áherslum.

Kveikjum neistann - Leikskólinn er einn af lyklum að leið til árangurs
Lítið barn er lífsins stærsta gjöf, augasteinn foreldra sinna. Það eru merk skil þegar barn byrjar í leikskóla og þurfa bæði foreldrar og barn aðlögun að þeim breytingum.

Þjálfunartíminn
Forsvarsmönnum rannsóknar og þróunarverkefnisins Kveikjum neistann er umhugað um velferð og velgengni allra barna. Verkefnið er skipulagt með það í huga að efla bæði árangur og líðan þeirra. Það varð ekki lengur við það búið að fjöldi barna útskrifist eftir tíu ár í grunnskóla með miður góða lestrarfærni.

Eflum ástríðu hjá börnum
Talið er að yfir eitt þúsund börn glími við svokallaða skólaforðun hér á landi, sem þýðir að þau treysta sér ekki til að mæta í skólann. Þau voru sláandi orð 21 árs Jóhönnu Birtu Bjartmarsdóttur á ráðstefnu Barna- og unglingageðdeildar í janúar á þessu ári en þar sagði hún að ekki væri rétt að tala um skólaforðun, heldur ætti að tala um skólakerfi sem bregðist börnum.

Bætt kennsla - betri árangur og minni kostnaður við sérkennslu
Kostnaður samfélagsins vegna sérkennslu í grunnskólum er hár á Íslandi og með því að setja fjármuni í slík úrræði viljum við líklega að nemendur nái betri árangri á sinni skólagöngu.

Finnum ástríðu okkar og þróum hana
Það er ekki alltaf allt eins og best verður á kosið og fyrir því eru margar og mismunandi ástæður. Kulnun verður sífellt algengari, einstaklingar komast í þrot og þurfa jafnvel í veikindaleyfi frá vinnu. Fólk í álagsstörfum er útsettara fyrir því að greinast með kulnun og má nefna að hér á landi hafa allt að 30% kennara fallið í þann flokk.

Eflum mannauð með bættri lestrar- og félagsfærni barna og unglinga
Samfélag án menntakerfis er óhugsandi. Skólar stuðla að jöfnuði og menntun er mikilvægur grunnur. Á Íslandi er grunnskólinn skylda og nemendur eiga að fá þar sama möguleika á grunnnámi og allir skipta þeir máli.

Ég get!
-Ég tók áskorun og ég náði henni. Ég er geggjað jákvæður! Þetta eru orð tíu ára drengs sem sigrast á hverri áskoruninni á fætur annarri í lestrarnámi sínu og upplifir um leið tilfinninguna, „Ég get!“ -

Bætum líðan, bætum árangur og eflum áhugahvöt barna
Kveikjum neistann er rannsóknar og þróunarverkefni, sem Grunnskóli Vestmannaeyja tekur þátt í hefur verið í gangi með nemendum í næstum tvö ár. Verkefnið hefur farið afar vel af stað og árangur nemenda lofar góðu. Það er einmitt árangur nemenda sem er skýrt leiðarljós þeirra sem að verkefninu koma og mjög ánægjulegt að sjá mælanlegan góðan árangur í færni jafnt sem líðan undanfarin tvö ár.