

Hvernig sköpum við samfélag þar sem öll börn sitja við sama borð? Fátækt hefur varanleg áhrif á börn. Fátækt hefur áhrif á þroska, skerðir lífsgæði, bjagar sjálfsmynd og skaðar framtíðarmöguleika barna.
Það eru til fátæk börn í Reykjavík, og fátækar fjölskyldur. Þær fjölskyldur sem verst standa eru einstæðir foreldrar. Og einstæðir foreldrar búa í þeim hverfum þar sem húsnæði er ódýrast. Húsnæðiskreppa höfuðborgarsvæðisins bitnar verst á tekjulágum hópum.
Af hverju ég - Mun eitthvað breytast með tilkomu minni? Já, ég treysti mér til þess að svara þessari spurningu játandi.
Eitt af því sem mér finnst mikilvægt að beita mér fyrir sem leiðtogi kennara á Íslandi, hljóti ég brautargengi sem varaformaður Kennarasambands Íslands, er að efla valdeflingu kennarastéttarinnar hér á landi.