

Patrekur Andrés Axelsson komst ekki í úrslit í spretthlaupi á EM fatlaðra í frjálsum íþróttum eftir að fylgdarhlaupari hans tognaði í miðju hlaupi í undanrásunum í morgun.
Íslensku keppendurnir náðu góðum árangri á Manchester International frjálsíþróttamótinu í gær. Þau Guðni Valur Guðnason og Hafdís Sigurðardóttir settu bæði mótsmet og unnu sínar greinar.
Ísland mun eiga níu keppendur á Manchester International frjálsíþróttamótinu sem fer fram í dag.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er tvöfaldur Norðurlandameistari 19 ára og yngri í spretthlaupum. Hún vann 100 metra hlaup í gær og tók gullið í 200 metrunum í dag.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir varð i dag Norðurlandameistari 19 ára og yngri í 100 metra spretthlaupi en hún hljóp á tímanum 11,47 sekúndum.
Ísland sendir fjölmennan hóp á Norðurlandamótið í frjálsum íþróttum 19 ára og yngri sem fer fram um helgina.
Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 13. sæti í undankeppni spjótkasts kvenna á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Berlín.
Ásdís Hjálmsdóttir er að öllum líkindum úr leik í keppni í spjótkasti á EM í frjálsum í Berlín.
Aníta Hinriksdóttir fékk ekki skráðan tíma í undanúrslitahlaupi 800 metranna á EM í frjálsum í Berlín í gærkvöldi. Íslenska hlaupakonan var dæmd úr leik af dómara hlaupsins fyrir stimpingar við Svía.
Aníta Hinriksdóttir var dæmd úr keppni í 800 metra hlaupi á EM í Berlín. Aníta kláraði hlaupið en var dæmd úr keppni eftir hlaupið.
Sindri Hrafn Guðmundsson endaði í 20. sæti í undankeppninni í spjótkasti á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Berlín. Hann komst ekki áfram í úrslit og er því úr leik á EM.
Nicholas Bett skrifaði nýjan kafla í sögu HM í frjálsum fyrir þremur árum en nú er þessi 28 ára gamli Keníamaður allur.
Bretar nældu sér í tvö gullverðlaun í 100 metra spretthlaupi á EM í frjálsum íþróttum sem fer fram í Berlín í vikunni.
Vilhjálmur Einarsson bætti eigið Íslandsmet í þrístökki frá því í Melbourne 1956 er hann stökk 16,70 metra á frjálsíþróttamóti í Reykjavík og var það þá næstlengsta stökk í heimi.
Guðni Valur Guðnason er úr leik í keppni í kringlukasti á EM í frjálsum íþróttum. Hann var nokkuð frá sínu besta í undanriðlunum í morgun.
Aníta Hinriksdóttir er komin í undanúrslit í 800 metra hlaupi á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Berlín í Þýskalandi.
Fjórir íslenskir keppendur verða meðal keppenda á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem hófst í gær og stendur til sunnudagsins tólfta águst.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Tiana Ósk Whitworth hafa heldur betur stimplað sig inn í sögu íslenskra spretthlaupara þrátt fyrir ungan aldur. Þær eru nú spretthörðustu stelpur landsins og Frjálsíþróttsambandið leyfði landsmönnum að kynnast þeim aðeins betur í nýju myndbandi.
ÍR er bikarmeistari í frjálsum íþróttum annað árið í röð. Aðeins þremur stigum munaði á liðum ÍR og FH. Breiðablik varð í þriðja sæti.
Guðni Valur Guðnason verður í eldlínunni á Evrópumeistaramótinu í Berlín í ágúst.
Thelma Lind Kristjánsdóttir, kringlukastari úr ÍR, bætti í gær 36 ára gamalt Íslandsmet er hún kastaði kringlunni 54,69 metra á móti í Borgarnesi.
Kringlukastarinn Thelma Lind Kristjánsdóttir úr ÍR bætti í gærkvöld 36 ára gamalt Íslandsmet í greininni. Hún kastaði tæpum metra lengra en gamla metið.
Ásdís Hjálmsdóttir vann tvö gull og eitt silfur á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór á Sauðárkróki um helgina. Ásdís fagnar því að fá samkeppni á íslensku mótunum og er ánægð með þá kynslóð af ungum kvenkösturum sem eru að stíga upp á stóra sviðið.
Spjótkastdrottningin fagnar því að hafa tapað í kringlukasti á Meistaramótinu.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir kom fyrst í mark í úrslitum í 200 metra hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum.
Meistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram á Sauðakróki um helgina en nokkrum greinum er þegar lokið.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir varð um helgina Evrópumeistari 18 ára og yngri í 100 metra hlaupi. Hún náði einnig í bronsverðlaun í 200 metra hlaupi.
Andrea Kolbeinsdóttir var fyrsti Íslendingurinn til að keppa á HM unglinga í Finnlandi í ár og hún náði þar besta hlaupi íslenskrar konu í sinni grein.
Andrea Kolbeinsdóttir keppir á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum undir 20 ára sem hefst í Tampere í dag. Andrea bætti nýverið Íslandsmetið í 3.000 metra hindrunarhlaupi og langar að bæta það að nýju í dag.
Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason náði í kvöld lágmarki fyrir EM í frjálsum íþróttum með næst lengsta kasti Íslandssögunnar.