Úkraína
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 84 ›
Úkraínumenn halda sókn sinni handan landamæranna áfram Ekkert lát er á sókn Úkraínumanna inn í rússnesk landamærahéruð. Þeir segjast hafa sótt lengra inn í Kúrsk og tekið á annað hundrað hermenn til fanga. Neyðarástandi var lýst yfir í nágrannahéraðinu Belgorod. Erlent 14.8.2024 15:37
„Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og fjölmiðlamaður hefur verið búsettur í Úkraínu um árabil. Hann segir ljóst að hermenn úkraínska hersins séu ekki að fara frá Kúrsk-héraði í Rússlandi. Þeir séu með þúsund ferkílómetra undir sinni stjórn og á því svæði séu þeir að grafa sig niður, að mynda birgðalínu og ætli sér að halda áfram. Óskar ræddi áhrif og merkingu innrásarinnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Erlent 14.8.2024 08:22
Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Þjóðverjar hafa gefið út handtökuskipun innan evrópska efnahagssvæðisins á hendur úkraínskum köfunarkennara sem er sakaður um að hafa verið hluti af teymi sem sprengdi upp Nord Stream gasleiðsluna á sínum tíma. Erlent 14.8.2024 07:56
Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Úkraínsk stjórnvöld segjast ekki ætla sér að halda landsvæðum í Rússlandi eftir óvænta innrás í síðustu viku. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir herinn hafa hrundið frekari sókn Úkraínumanna dýpra inn í landið. Erlent 13.8.2024 15:49
Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Hershöfðinginn Oleksandr Syrski greindi Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta frá því í gær að hersveitir landsins hefðu lagt um það bil þúsund ferkílómetra undir sig í Kursk í Rússlandi. Erlent 13.8.2024 06:28
Pútín hótar hefndum fyrir innrásina í Kúrsk Úkraínumenn eiga von á „verðugum viðbrögðum“ frá Rússlandi vegna innrásar þeirra inn í Kúrsk-hérað, að sögn Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Fleiri en hundrað þúsund manns hafa flúið heimili sín í þessari stærstu innrás í Rússland frá lokum seinna stríðs. Erlent 12.8.2024 14:36
Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Rússneska ríkisfréttastofan Tass hefur greint frá því að búið sé að slökkva eldinn sem kviknaði í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu í gær. Kæliturn er sagður hafa skemmst í eldinum en hann var óvirkur fyrir. Erlent 12.8.2024 06:23
Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Eldur braust út í kæliturni Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í suðurhluta Úkraínu í dag. Um er að ræða stærsta kjarnorkuver Evrópu og hafa Rússar og Úkraínumenn kennt hvor öðrum um atvikið. Erlent 11.8.2024 21:05
Úkraínumenn vilji valda upplausn Úkraínuforseti vill með skyndisókn Úkraínuhers innan landamæra Rússlands knýja fram réttlæti og beita Rússa þrýstingi. Aðgerðirnar ná nú þrjátíu kílómetra inn fyrir landamæri Rússa. Úkraínumenn eru sagðir vilja valda Rússum sem mestum skaða og veikja getu þeirra til árása í Úkraínu. Erlent 11.8.2024 20:17
Úkraínski herinn kominn um 30 kílómetra inn í Rússland Úkraínski herinn hefur komist um 30 kílómetra inn í Rússland. Gagnárás Úkraínumanna hófst fyrr í vikunni og hefur Rússland lýst yfir neyðarástandi vegna hennar. Erlent 11.8.2024 17:07
Rússar lýsa yfir neyðarástandi Rússar hafa lýst yfir neyðarástandi vegna gagnárásar Úkraínumanna innan landamæra Rússlands sem hófst fyrr í vikunni. Mikil leynd virðist hvíla yfir aðgerðum Úkraínumanna að sögn íslensks blaðamanns í Úkraínu. Árásin hafi komið Rússum í opna skjöldu. Erlent 9.8.2024 23:18
Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Hvorki bandarísk né þýsk stjórnvöld gera athugasemdir við Úkraínumenn noti vopn frá þeim til þess að ráðast inn í Rússlandi. Bardagar halda áfram í landamærahéraðinu Kúrsk þar sem Úkraínumenn hafa náð þorpum og bæjarhluta á sitt vald. Erlent 9.8.2024 11:39
Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Volodomír Selenskí Úkraínuforseti hefur loks tjáð sig um fregnir þess efnis að úkraínskir hermenn hafi ráðist inn í Kursk hérað í Rússlandi í vikunni. Erlent 9.8.2024 06:49
Fregnir af áhlaupi Úkraínumanna í Rússlandi enn óljósar Bardagar halda áfram í Kúrskhéraði í Rússlandi eftir að úkraínskar hersveitir réðust þangað inn í vikunni. Vladímír Pútín Rússlandsforseti, sem tók ákvörðunina um að ráðast inn í Úkraínu, lýsti hernaðaraðgerðinni sem „meiriháttar ögrun“. Erlent 8.8.2024 11:37
Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Úkraínumenn hafa tekið á móti fyrstu F-16 herþotunum. Þetta staðfesti Volódómír Selenskí Úkraínuforseti á blaðamannafundi þar sem tvær slíkar þotur voru í bakgrunni. Erlent 4.8.2024 21:52
Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Úkraínumenn segjast hafa átt þátt að málum þegar aðskilnaðarsinnar og jíhadistar í Malí sátu fyrir og drápu fjölda málaliða Wagner. Fram kom á Telegram rás tengdri forystu Wagner í gær að fjöldi liðsmanna hópsins hefði verið drepinn í síðustu viku. Erlent 30.7.2024 06:55
Fyrrverandi þingkona skotin til bana Fyrrverandi þingkona á úkraínska þinginu var skotinn til bana á götum Lvív-borgar í gær. Lögregla leitar að banamanninum en hann er enn ófundinn. Erlent 20.7.2024 12:34
Selenskí tilbúinn að vinna með Trump Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir það gæti orðið erfitt að vinna með Donald Trump, verði hann endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, en hann óttist ekki erfiði. Hann kveðst tilbúinn til að vinna með hverjum sem er við völd í Bandaríkjunum. Erlent 18.7.2024 23:52
Biden kynnti Selenskí sem „Pútín forseta“ Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti Volodímír Selenskí Úkraínuforseta sem „Pútín forseta“ við athöfn á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í kvöld. Erlent 11.7.2024 22:12
Stjórnvöld í Kína harðlega gagnrýnd í ályktun Nató-fundarins Stjórnvöld í Kína eru með virkum hætti að greiða fyrir hernaði Rússa í Úkraínu, segja leiðtogar Atlantshafsbandalagsins í ályktun eftir fund þeirra í Washington. Erlent 11.7.2024 06:55
Umfangsmikill aðstoðarpakki á leiðinni Jens Stoltenberg, fráfarandi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, segist ætla að bandalagsþjóðir samþykki að veita Úkraínumönnum umfangsmikinn aðstoðarpakka á afmælisfundi bandalagsins sem hófst í Washington í gær og stendur yfir. Innlent 10.7.2024 15:40
Biden heitir Úkraínu nýjum loftvarnarkerfum Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í ræðu sinni í tilefni af 75 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins að Bandaríkin myndu í samstarfi við aðrar bandalagsþjóðir sjá Úkraínumönnum fyrir fimm loftvarnarkerfum. Erlent 9.7.2024 23:21
Eldflaugin greinilega úr rússnesku vopnabúri Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri. Erlent 9.7.2024 19:10
„Rússnesku hryðjuverkamennirnir verða að svara fyrir þetta“ Í það minnsta 41 er látinn eftir sprengjuárás Rússlands í Úkraínu í gær. Einn stærsti barnaspítali borgarinnar varð fyrir sprengjum. Um er að ræða eina banvænustu sprengjuárás síðustu mánaða en hún átti sér stað um miðjan dag. Erlent 9.7.2024 06:29
Byrjaði að öskra við fyrstu sprengingu Að minnsta kosti 36 almennir borgarar létust í árásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í dag. Árásirnar eru einar þær mannskæðustu frá upphafi stríðs. Fimm létust og fólks er enn leitað í rústum stærsta barnaspítala Úkraínu, sem Rússar sprengdu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á neyðarfundi á morgun vegna árásarinnar. Erlent 8.7.2024 21:07
Gerðu loftárás á barnaspítala í Kænugarði Minnst tuttugu almennir borgarar létust í loftárásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í dag. Meðal skotmarka Rússa var barnaspítali í Kænugarði. Erlent 8.7.2024 11:26
Evrópa og myrkrið framundan Úkraínustríðið hefur nú staðið yfir í hér um bil tvö og hálft ár ef miðað er við innrás Rússneska hersins í Úkraínu 24. febrúar 2022, en í rúm 10 ár sé miðað er við yfirtöku Rússlands á Krímskaganum árið 2014. Skoðun 4.7.2024 10:00
Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Búist er við því að Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands heimsæki Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í vikunni. Orban hefur verið sá leiðtogi innan Evrópusambandsins sem hefur haft mestar efasemdir um fjárstuðning sambandsins við Úkraínu í stríði þeirra við Rússland. Erlent 1.7.2024 23:50
Áróður Kremls gegn Úkraínu og NATO Á undanförnum árum hafa átökin í Úkraínu og afstaða Vesturlanda gagnvart Rússlandi leitt til þess að Kreml hefur stundað umfangsmikla áróðursherferð. Skoðun 1.7.2024 11:31
Þrír látnir og tugir særðir eftir loftárás á Karkív Að minnsta kosti þrír létu lífið eftir rússneska loftárás á borgina Karkív í austurhluta Úkraínu í dag. Þar að auki særðust 52. Erlent 22.6.2024 23:30