Borgarstjórn

102 Reykjavík orðið að veruleika
Póstnúmerið 102 Reykjavík verður að veruleika í Vatnsmýri. Frá þessu greinir borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson en staðfesting þess efnis var lögð fyrir borgarráð í dag.

Þriggja manna nefnd tekur afstöðu til kæru Vigdísar
Dómsmálaráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að vísa frá kæru Vigdísar Hauksdóttir, borgarfulltrúa Miðflokksins, um gildi borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík. Lagt hefur verið fyrir sýslumann að skipa þriggja manna nefnd til að úrskurða um kæruefni.

Áskorun um áfengi í búðir send til umsagnar í borgarnefndum
Tillögu borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins um að skora á Alþingi að afnema einokun ríkisins á áfengissölu var vísað til umsagnar í borgarstjórn í gær.

Borgarstjórn samþykkti varanlegan regnboga í Reykjavík
Áætlað er að regnboginn komi til framkvæmda í sumar.

Hátt í 400 milljónir án útboðs hjá borginni
Umhverfis- og skipulagssvið hefur keypt sérfræðiþjónustu fyrir hátt í 400 milljónir króna án útboðs á fyrstu þremur mánuðum ársins. Innri endurskoðun hefur ítrekað bent á mikilvægi rammasamninga til að lækka kostnað.

Borgin bregðist ekki við athugasemdum
Umhverfis- og skipulagssvið hefur ekki brugðist við athugasemdum Heilbrigðiseftirlitsins frá árinu 2018.

Borgin geti ekki borið ábyrgð á viðskiptasögu samningsaðila
Nýtt félag sem heldur utan um tónlistarhátíðina Secret Solstice fær 8 milljóna króna styrk frá Reykjavíkurborg sem fer upp í nítján milljóna króna skuld fyrri aðstandenda hátíðarinnar. Forsvarsmenn beggja félaganna tengjast fjölskylduböndum.

Borgin og fyrirtæki hennar fjárfesta fyrir tvö hundruð milljarða næstu ár
Reykjavíkurborg og fyrirtæki í hennar eigu hyggjast fjárfesta í innviðum fyrir tæpa tvö hundruð milljarða næstu fimm ár. Meðal verkefna er nýr hafnarbakki við Klepp, íþróttauppbygging ÍR og nýjar höfuðstöðvar Strætó. Borgarstjóri segir meiri slaka í efnahagslífinu auka þrýsting á fjárfestingar hjá hinu opinbera.

Óheppilegt að álitið hafi ekki legið fyrir
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins telur afar óheppilegt að álitsgerð Trausta Fannars Valssonar, sérfræðings í sveitarstjórnarlögum, hafi ekki verið birt fyrir undirritun ársreiknings borgarinnar á þriðjudaginn.

Halldóra ráðin sviðsstjóri hjá borginni
Borgarráð hefur samþykkt að ráða Halldóru Káradóttur í starf sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar.

Ársreikningur veldur harðvítugum deilum
Borgarfulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins skrifuðu undir ársreikning Reykjavíkurborgar með fyrirvara. Forseti borgarstjórnar sakar fulltrúana um lélega niðurrifspólitík.

Raunhæfara að fækka bensínstöðvum í borginni um helming á tíu árum
Það er eðlileg þróun að fækka bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu að sögn forstjóra félagsins Festi, sem á meðal annars N1 bensínstöðvarnar. Hann telur tímaramma borgarráðs þó vera of knappan, líklegra sé að það taki tíu ár en ekki sex að fækka bensínstöðvum í borginni um helming.

Óumdeilt að bensínstöðvar séu of margar
Það er mat olíufélagsins Skeljungs að fjöldi bensínstöðva í Reykjavík sé of mikill, það sé óumdeilanlegt.

Þykir bensínstöðvafækkunin brött
Þrátt fyrir að hafa vitað af stefnu borgarinnar um nokkurt skeið segir forstjóri Olís að fréttir gærdagsins, um að til standi að fækka bensínstöðvum í Reykjavík um helming fyrir árið 2025, hafi komið sér nokkuð á óvart.

Setja fyrirvara við ársreikning borgarinnar
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins setja fyrirvara um að skrifa undir ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir árið 2018.

Bensínstöðvar í þéttri íbúðabyggð fyrstar til að fara
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags-og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, segir að bensínstöðvar sem staðsettar eru inni í þéttri íbúðabyggð verði fyrstar til að fara en þær sem eru staðsettar við stofnbrautir aftur á móti síðastar.

Ætla að fækka bensínstöðvum í borginni um helming á sex árum
Borgarráð vill bensínstöðvar úr borginni. Einhugur í borgarstjórn.

Deildu um ársreikning
Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna, segir að með ársreikningnum sé verið að senda borgarstjórn gula spjaldið.

Skrifuðu ekki undir bókun um þjónustu við flóttafólk
Borgarráð hefur staðfest samning borgarinnar við Útlendingastofnun um þjónustu við skjólstæðinga stofnunarinnar. Marta Guðjónsdóttir og Vigdís Hauksdóttur sátu einar hjá við afgreiðslu bókunar.

Fá lóðir undir fjölda íbúða í Skerjafirði
Borgarráð samþykkti í liðnum mánuði að veita félagi í eigu meðal annars Hauks Guðmundssonar og Péturs Marteinssonar lóðavilyrði til uppbyggingar á íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur í Skerjafirði.

Friður og frelsi lundans í Akurey
Friðlýsing Akureyjar er í sjónmáli í þessum skrifuðu orðum. Eftir daginn í dag lýkur formlegum auglýsingatíma og þá á bara eftir að ganga frá formsatriðum.

Minni afgangur af rekstri borgarinnar
Afgangur af rekstri Reykjavíkurborgar dróst saman á milli ára.

Vonar að útilistaverkið Pálmatré rísi í Vogabyggð
Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur vonar að útilistaverkið Pálmatré rísi í nýju hverfi í Vogabyggð og spáir að það verði það mikill gleðigjafi. Hún segir að oft skapist mikil umræða og jafnvel gagnrýni um útilistaverk en umræðan um þetta verk í vetur hafi verið sérlega harkaleg.

Hægt væri að stækka selalaugina innan árs með fjármagni frá borginni
Selalaugin í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum er alltof lítil og barn síns tíma að sögn deildarstjóra garðsins. Ef fjármagn fáist frá borginni væri hægt að stækka hana og dýpka innan árs.

Selirnir í óásættanlegri stöðu í Húsdýragarðinum
Aðstaða selanna í Húsdýragarðinum er óásættanleg að sögn borgarfulltrúa Pírata. Til skoðunar er að stækka laugina og endurskoða stefnu garðsins varðandi fjölgun dýranna. Óþarft sé að dýrin geti af sér afkvæmi sem leidd eru til slátrunar á haustin.

Telja borgina fara offari í uppbyggingu við Sjómannaskólann
Íbúar í Háteigshverfi telja borgina fara offari í uppbyggingu á nýju húsnæði í hverfinu án þess að huga að nauðsynlegum innviðum þess.

Tókust á um göngugötur í borgarstjórn: „Hatrið á fjölskyldubílnum“
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagði að göngugatnavæðing meirihlutans í borginni einkenndist af hatri á fjölskyldubílnum.

Yfirlýsing meirihluta sögð ljót og taktlaus
Mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar varar við mýtum og fordómum í garð geðfatlaðra í yfirlýsingu vegna undirskriftasöfnunar íbúa í Seljahverfi. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir viðbrögðin taktlaus.

Ekki stendur til að fækka opnum leikskólum í sumar þrátt fyrir dræma aðsókn
Áætlað er að kostnaður við sumaropnanir sex leikskóla í Reykjavík sé um þrjátíu og tvær milljónir króna. Ekki stendur til að fækka opnum leikskólum þrátt fyrir litla aðsókn. Varaformaður skóla- og frístundaráðs segir að verkefnið verði endurmetið í haust.

Lítil aðsókn í sumaropnanir leikskóla í Reykjavík
Leikskólastjóri segir að tilraunaverkefni um sumaropnanir í sex leikskólum í Reykjavík hafi eingöngu verið pólitískt loforð. Það hafi ekki verið gert í samráði við leikskólastjóra.