Ótrúlegur endasprettur Fram | Öruggt hjá Val Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. febrúar 2015 15:18 Hulda Dagsdóttir tryggði Fram stig gegn Gróttu. vísir/vilhelm
Fram og Grótta skildu jöfn, 22-22, í toppslag Olís-deildar kvenna í handbolta í Safamýrinni í dag. Gróttukonur voru með unninn leik í höndunum en sex mínútur voru eftir var staðan 18-22, gestunum frá Seltjarnarnesi í vil. En Fram átti frábæran endasprett og tryggði sér annað stigið með því að skora fjögur síðustu mörk leiksins. Hulda Dagsdóttir skoraði jöfnunarmarkið á lokamínútunni en hún gerði alls fjögur mörk í leiknum. Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst í liði Fram með níu mörk. Leikurinn var jafn framan af en um miðjan fyrri hálfleik tóku Gróttukonur fram úr, skoruðu sjö mörk í röð og breyttu stöðunni úr 6-5 í 6-11. Grótta leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 11-15, og var jafnan 2-4 mörkum yfir í seinni hálfleik, eða allt þar til á lokamínútunum. Laufey Ásta Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með níu mörk en liðið er enn með þriggja stiga forystu á Fram á toppi deildarinnar. Framkonur eiga þó leik inni.Markaskorarar Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 9. Hulda Dagsdóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 3, Steinunn Björnsdóttir 3, Hekla Rún Ámundadóttir 1, Elva Þóra Arnardóttir 1, Guðrún Þóra Háldánsdóttir 1.Markaskorarar Gróttu: Laufey Ásta Guðmundsdóttir 9, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Guðný Hjaltadóttir 3, Anett Köbli 1. Á sama tíma vann Valur 10 marka sigur, 28-18, á botnliði ÍR í Vodafone-höllinni. Staðan í hálfleik var 16-5, Val í vil en liðið er í 6. sæti deildarinnar með 18 stig. Kristín Guðmundsdóttir var einu sinni sem oftar markahæst í liði Vals með átta mörk. Arna Grímsdóttir kom næst með fimm mörk. Auður Margrét Pálsdóttir, Sandra Ýr Geirmundardóttir og Þorbjörg Anna Steinarsdóttir skoruðu þrjú mörk hver fyrir ÍR.Markaskorar Vals: Kristín Guðmunsdóttir 8, Arna Grímsdóttir 5, Ragnhildur Hjartardóttir 4, Aðalheiður Hreinsdóttir 3, Morgan Marie Þorkelsdóttir 3, Sigurlaug Rúnarsdóttir 2, Sólveig Lóa Höskuldsdóttir 2, Alexandra Diljá Birkisdóttir 1.Markaskorarar ÍR: Auður Margrét Pálsdóttir 3, Sandra Ýr Geirmundardóttir 3, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 3, Sif Maríudóttir 2, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 2, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 2, Karen Tinna Demain 1, Anna Margrét Sigurðardóttir 1, Helena Jónsdóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Enski boltinn „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni Sjá meira