Markasúpa í jafntefli Celtic og City | Sjáðu mörkin Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. september 2016 20:30 David Silva í baráttunni í Skotlandi. vísir/getty
Celtic og Manchester City gerðu jafntefli, 3-3, í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld í alveg frábærum leik þar sem Celtic komst þrisvar sinnum yfir en City jafnaði í þrígang. Moussa Dembélé hefur farið á kostum með Celtic eftir komu sína frá Fulham í sumar en hann kom skosku meisturunum yfir strax á þriðju mínútu. Dembélé er aðeins tvítugur en hann spilaði í þrjú ár með Fulham og skoraði fimmtán mörk í 56 leikjum eftir komu sína úr unglingaliðum Paris Saint-Germain. Skotarnir voru yfir í níu mínútur eða þar til Fernandinho jafnaði metin eftir stungusendingu inn fyrir vörnina. Aðeins átta mínútum síðar varð Raheem Sterling fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Celtic aftur komið yfir, 2-1. Sterling bætti upp fyrir sjálfsmarkið og jafnaði metin öðru sinni fyrir toppliðið á Englandi, 2-2. Sterling fékk sendingu inn fyrir vörnina, fíflaði Craig Gordon í markinu og renndi boltanum í netið. Staðan 2-2 í hálfleik. Það tók Celtic aðeins 72 sekúndur að komast yfir eftir að seinni hálfleikurinn var flautaður á. Þar var að verki Moussa Dembélé með sitt annað mark í leiknum, en eins og alltaf jafnaði Manchester City metin. Að þessu sinni var það Nolito sem skoraði eftir að Craig Gordon varði skot beint út í teiginn. Staðan 3-3 en þriðja jöfnunarmark City kom átta mínútum eftir að Celtic náði forystunni í þriðja sinn. Lokatölur urðu 3-3. Manchester City er með fjögur stig í öðru sæti riðilsins á eftir Barcelona sem er með sex stig en Celtic er með eitt stig. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.Moussa Dembele kemur Celtic í 1-0: Fernandinho jafnar fyrir City 1-1: Raheem Sterling skorar sjálfsmark, 2-1: Raheem Sterling skorar í rétt mark 2-2: Moussa Dembélé kemur Celtic í 3-2: Nolito jafnar í 3-3 fyrir Man. City
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Íslenski boltinn Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Francis páfa Fótbolti Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Körfubolti Fleiri fréttir „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Francis páfa Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Olmo hetja Börsunga Dramatík í Manchester Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum Leggja til að byggja nýjan San Siro neðanjarðar Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Maður leiksins fékk lifandi lamb í verðlaun Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Sjá meira