Eins og þegar Barcelona og Real Madrid koma saman Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2016 06:00 Íris Mist Magnúsdóttir Mynd/FSÍ
Íris Mist Magnúsdóttir fór fyrir besta fimleikaliði Evrópu um nokkurra ára skeið. Hún varð tvöfaldur Evrópumeistari í hópfimleikum með Gerplu, tilnefnd sem íþróttamaður ársins og svo mætti áfram telja. Þrjú ár eru liðin frá því Íris hætti sjálf að keppa. Hún er samt enn viðloðandi hópfimleikana og ber núna hinn virðulega titil landsliðsþjálfari. „Ég er að þjálfa kvennaliðið í dag. Ég byrjaði að þjálfa meistaraflokkinn í Gerplu fyrir rúmu ári og fékk svo þann heiður að vera boðin landsliðsþjálfarastaða hjá kvennaliðinu sem er algjört draumalið, þar er ekkert nema eintómir snillingar og fagmenn,“ sagði Íris þegar blaðamaður Fréttablaðsins hitti hana að máli á liðshótelinu í slóvensku borginni Maribor þar sem EM í hópfimleikum fer fram.Fáir æfa jafn mikið Íris var 26 ára þegar hún lagði fimleikabúninginn á hilluna. Aðspurð af hverju hún og fleiri fimleikakonur hætti svona snemma, miðað við margar aðrar íþróttir, segir hún að æfingaálagið taki sinn toll. „Það æfa fáir jafn mikið og við og þú ert fljótari að verða saddur. Ég var sátt þegar ég hætti þótt ég héldi að ég gæti aldrei fengið nóg. Þú þarft að hafa svo rosalega mikla ástríðu fyrir þessu til að vera tilbúin að æfa 3-4 klukkutíma á dag.“Hársbreidd frá þriðja gullinu í röð Ísland, eða öllu heldur Gerpla, varð Evrópumeistari árin 2010 og 2012. Fyrir tveimur árum var EM haldið á Íslandi en þá þurftu stelpurnar að sætta sig við silfrið. En af hverju gekk gullið Íslandi úr greipum 2014? „Út af því að ég var ekki í liðinu,“ sagði Íris og skellti upp úr. „Þetta var ótrúlega hörð barátta milli Svía og Íslendinga 2014. Svíarnir áttu bara betri dag en bæði lið voru frábær.“ Það má til sanns vegar færa. Ísland fékk 23,216 stig fyrir gólfæfingarnar sem er met. Á endanum munaði aðeins 0,684 stigum á sænska liðinu og því íslenska.Tveir turnar Eins og áður sagði varð Gerpla Evrópumeistari 2010 og 2012 en í ár, líkt og 2014, sendir Ísland sameiginlegt lið til keppni. Uppistaðan í landsliðinu er úr tveimur félögum, Gerplu og Stjörnunni. „Ég keppti bara fyrir Gerplu og hef aldrei sjálf verið hluti af landsliði. Þetta er auðvitað öðruvísi upplifun, hún er ekkert betri eða verri, hún er bara öðruvísi. Svo fer þetta eftir liðunum, hvernig þau ná að tengja,“ sagði Íris sem segir það íþróttinni til góðs að hafa tvö svona sterk félagslið hérna heima. Það hjálpi landsliðinu. „Við æfum mikið saman, alveg í þrjá mánuði, þannig að þetta verður svolítið eins og félagslið. Landsliðið er eins og sambland af Barcelona og Real Madrid,“ bætti Íris við í léttum dúr en spænska fótboltalandsliðið er aðallega skipað leikmönnum frá þessum tveimur risafélögum.Einbeitum okkur að okkur sjálfum Erfitt er að hafa bein áhrif á frammistöðu andstæðingsins í hópfimleikum, öfugt við margar hópíþróttir. „Við einbeitum okkur aðallega að okkur sjálfum. Við breytum ekkert miklu þótt við sjáum andstæðinginn,“ sagði Íris og bætti við því að lið geri aldrei róttækar breytingar á sínum æfingum, jafnvel þótt andstæðingurinn bryddi upp á einhverju óvæntu. „Það er meira ef þau gera auðveldari æfingar, þá lækkum við kannski erfiðleikastigið og gerum auðveldara og öruggara í stað þess að spila út okkar helstu trompum,“ sagði Íris en einkunnin er sambland af erfiðleikastigi og framkvæmd æfinganna. Fjórir verðlaunapeningar Ísland sendir fjögur lið til keppni á EM; stúlknalið, kvennalið og blandað lið í unglinga- og fullorðinsflokki. Íris segir að markmiðið sé skýrt. „Það er að koma með fjóra verðlaunapeninga heim,“ sagði Íris sem fylgist með af hliðarlínunni þegar kvennaliðið stígur á svið í undankeppninni í dag.
Fimleikar Mest lesið Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug Körfubolti Adam Ingi í ótímabundið hlé frá knattspyrnu Fótbolti „Holan var of djúp“ Körfubolti „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Körfubolti „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ Körfubolti „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Handbolti Spiluðu óvart rangt lag fyrir stórleikinn á Villa Park Fótbolti „Gott að vera komin heim“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Körfubolti „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug Adam Ingi í ótímabundið hlé frá knattspyrnu „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri „Það sem klikkaði var að þær komust á lagið og gerðu vel“ Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 6-1 | Meistararnir byrja af krafti „Gott að vera komin heim“ Spiluðu óvart rangt lag fyrir stórleikinn á Villa Park Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Óvænt vandræði á Villa Park en PSG í undanúrslit Þrenna Guirassy ekki nóg gegn Barcelona Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Uppgjörið: Þróttur - Fram 3-1 | Nýliðarnir máttu þola tap í endurkomunni Hin næstum fertuga Sif fær félagaskipti í Víking Segir Real þurfa hug, hjarta og hreðjar gegn Arsenal „Komin ótrúlega langt miðað við hversu stutt er síðan hún átti sitt fyrsta barn“ Hafa rekið þrjá þjálfara síðan Durant kom til Phoenix Suns „Vorum að veita fría sálfræðihjálp fyrir heilt samfélag“ Varar Arsenal menn við: „Real Madrid er Real Madrid“ „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ „Það verður alltaf talað um hana“ „KA búið að leggja það í vana sinn að bregðast mjög seint við“ „Taka hringi á jörðinni og öskra eins og þú sért að fæða barn“ Rory McIlroy vildi ekki tala við DeChambeau Besta spáin 2025: Skjöldurinn fer ekki neitt Van Dijk býst við mjög viðburðaríku sumri hjá Liverpool Sjá meira