Dagur Sigurðsson er þjálfari ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2016 20:31 Dagur Sigurðsson fagnar Evrópumeistaratitlinum. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson, þjálfari karlalandsliðs Þjóðverja í handbolta, var í kvöld kosinn þjálfari ársins af Samtökum íþróttafréttamanna en kjörið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Dagur hafði betur en þeir Guðmundur Guðmundsson og Heimir Hallgrímsson sem voru einnig tilnefndir eftir að hafa lent í þremur efstu sætunum í kjöri meðlima Samtaka íþróttafréttamanna. Dagur Sigurðsson stýrði þýska landsliðinu í verðlaunasæti á báðum stórmótum ársins. Liðið varð Evrópumeistari í janúar og vann síðan bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó. Evrópumeistaratitill þýska landsliðsins á EM í Póllandi var mikið afrek ekki síst vegna þess að liðið missti út hvern lykilmanninn á fætur öðrum í aðdraganda mótsins. Degi tókst að vinna titilinn án hálfgerðu varaliði en eftir tap í fyrsta leik vann þýska liðið sjö síðustu leiki sína á mótinu þar á meðal sjö marka sigur á Spánverjum í úrslitaleik. Dagur varð í kjölfarið algjör þjóðhetja í Þýskalandi en þetta var fyrsti titill þýska handaboltalandsliðsins síðan að Heiner Brand gerði liðið að heimsmeisturum 2007 og jafnframt fyrsti Evrópumeistaratitill Þjóðverjar síðan 2004. Þýska liðið vann einnig til verðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst. Liðið vann sjö af níu leikjum sínum á leikunum þar á meðal sex marka sigur á Pólverjum í leiknum um þriðja sætið. Frakkar komu í veg fyrir að Dagur og lærisveinar hans léku um gullverðlaunin með því að vinna eins marks sigur í undanúrslitaleik liðanna. Dagur Sigurðsson er 43 ára gamall en hefur starfað sem þjálfari undanfarin sextán ár eða síðan að hann gerðist spilandi þjálfari japanska liðsins Wakunaga Hiroshima árið 2000. Dagur er nú á leið til Japans á ný en hann hætti með þýska landsliðsins eftir HM í Frakklandi í janúar og tekur við japanska landsliðinu.Þjálfari ársins Á fundi Samtaka íþróttafréttamanna þann 14. desember 2012 var samþykkt breyting á reglugerð fyrir kjör íþróttamanns ársins til að bæta við kosningu á þjálfara ársins. Gjaldgengir eru þjálfarar sem eru íslenskir ríkisborgarar sem þjálfa keppnislið í íþróttum. 2012 - Alfreð Gíslason 2013 - Alfreð Gíslason 2014 - Rúnar Páll Sigmundsson 2015 - Heimir Hallgrímsson 2016 - Dagur Sigurðsson
Fréttir ársins 2016 Handbolti Mest lesið Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Fótbolti „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ Handbolti „Þeir spila mjög fast og komast upp með það“ Körfubolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Golf „Hann er langbesti varnarmaðurinn í þessari deild“ Körfubolti Uppgjörið: Valur-Grindavík 75-86 | Grindvíkingar í lykilstöðu Körfubolti Markvörður Frankfurt átti stórleik á móti Tottenham Fótbolti Fleiri fréttir „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sænsku stelpurnar voru 28-8 yfir í hálfleik Handboltastjarna hættir 31 árs: Með tilboð en langar að gera eitthvað annað „Gekk vel að þjappa hópnum saman“ „Stelpurnar hafa mátt þola margt ósanngjarnt“ Uppgjörið: Ísland - Ísrael 39-27 | Reynt að sparka upp hurðum er stelpurnar pökkuðu Ísrael saman Strákarnir hans Guðmundar með frábæran stórsigur á GOG Allir Íslendingarnir skoruðu þegar Kolstad byrjaði úrslitakeppnina með stæl Utan vallar: Með harpix á höndunum – ekki blóð Sniðganga var rædd innan HSÍ Afturelding mætir Val í undanúrslitum Óðinn Þór byrjaði úrslitakeppnina með stæl „Við völdum okkur ekki andstæðinga“ Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Tekjur Handboltapassans tvöfaldist: „Mjög raunhæf áætlun“ Gæti HSÍ orðið gjaldþrota: „Okkar að sjá til þess að svo verði ekki“ „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Íslandsmeistararnir örugglega í undanúrslit Uppgjörið: Haukar - Fram 25-28 | Framarar í undanúrslit Ekki með gegn Ísrael þar sem hún er ólétt Ísland - Ísrael: Aðgengi fjölmiðla að íslenska liðinu til skoðunar „Höfum orðið þess áskynja að það sé mikil ólga útaf leiknum“ „Ferli sem fer í gegnum yfirvöld en ekki íþróttahreyfinguna“ Lögreglan bannar áhorfendur á leikjum Íslands gegn Ísrael Stórleikur Andra Más dugði ekki gegn Magdeburg Jón Halldórsson kjörinn formaður HSÍ Sjá meira