Logi: Rakið hugleysi hjá dómaranum að sleppa þessu Smári Jökull Jónsson skrifar 16. júlí 2017 22:17 Logi var ósáttur með Ívar Örn dómara eftir leik. vísir/stefán
Logi Ólafsson þjálfari Víkinga var ósáttur með Ívar Orra Kristjánsson dómara í lok leiks sinna manna gegn Val í kvöld. Valsmenn unnu 1-0 sigur og eru komnir með þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildarinnar. „Ég held að það sé alveg klárt. Þetta er rakið hugleysi hjá dómaranum að sleppa þessu. Það hefði verið annað gula og þá er maðurinn útaf. Það breytir auðvitað öllu í leikjum, þegar svona mikið er eftir að vera einum fleiri,“ sagði Logi í samtali við Vísi eftir leikinn á Víkingsvelli í kvöld. Atvikið sem hann á við var á 62.mínútu þegar Bjarni Ólafur Eiríksson leikmaður Vals virtist brjóta á Milos Ozegovic og hefði þá líklega átt að fá sitt annað gula spjald. Fyrri hálfleikur var fremur daufur og liðin gáfu fá færi á sér. Sá síðari var öllu fjörugri en varnir liðanna stóðu vel og stundum á kostnað sóknarleiksins. „Ég get nú ekki sagt að þetta hafi verið tilþrifalítið. Mér fannst þetta ágætis leikur og við vorum að spila gegn mjög góðu liði. Mér fannst leikurinn kaflaskiptur, þeir pressuðu mikið og við líka og þegar öllu er á botninn hvolft held ég að jafntefli hefði verið sanngjörn niðurstaða.“ Mark Vals kom á 76.mínútu eftir mistök hjá Ívari Erni Jónssyni. Andri Adolphsson var nýkominn inn sem varamaður hjá Val og fór illa með Ívar áður en hann lagði boltann á Nicolas Böglid sem skoraði. „Við gerum mistök í markinu og gefum frá okkur boltann illa. Það getum við ekki leyft okkur á móti þeim,“ bætti Logi við. Þetta var fyrsti tapleikur Víkinga í deildinni undir stjórn Loga en liðið hafði leikið sex leiki í Pepsi-deildinni án þess að tapa. „Við einbeitum okkur bara að næsta verkefni og erum ekki að velta neinu öðru fyrir okkur,“ sagði Logi hinn rólegasti. Félagaskiptaglugginn opnaði á ný þann 15.júlí og hefur Óttar Magnús Karlsson, fyrrum leikmaður Víkinga, verið orðaður við endurkomu til liðsins. Logi sagði ekkert í gangi í þeim málum. „Það er ekkert ljóst hvað verður í leikmannamálum. Glugginn verður galopinn og við fylgjumst með hvað gerist þar,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari Víkings að lokum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Bögild hetja Valsmanna í baráttuleik Nicolas Bögild skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Vals gegn Víking í 11. umferð Pepsi-deild karla en með sigrinum nær Valur þriggja stiga forskoti á toppi Pepsi-deildarinnar á Grindvíkinga sem eiga leik til góða. 16. júlí 2017 23:00 Mest lesið Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“ Íslenski boltinn Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Enski boltinn Chelsea meistari sjötta árið í röð Enski boltinn Sá besti íhugaði að hætta: Þeir litu öðruvísi á mig Sport Allt jafnt eftir ótrúlega sýningu í Barcelona Fótbolti Ronaldo klúðraði í lokin og eyðimerkurgangan heldur áfram Fótbolti Orri sá farmiðann til Kölnar enda í tætaranum Handbolti Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Enski boltinn Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool Enski boltinn Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“ Sjáðu sjálfsmarkið sem skipti sköpum og fyrstu mörk Lífar Fylki og Keflavík spáð sigri í Lengjudeildunum Stokke í raðir Aftureldingar Bikarvörnin hefst gegn Fram „Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“ Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“ Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni „Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Uppgjörið: Víkingur R. - Þróttur R. 0-1 | Óheppilegt sjálfsmark skilaði gestunum sigri Hin þaulreynda Anna Björk heim í KR Henríetta lánuð til Þór/KA Aftur heim í Stjörnuna eftir dvöl hjá FH Gylfi valdið mestum vonbrigðum Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Sjá meira
Leik lokið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Bögild hetja Valsmanna í baráttuleik Nicolas Bögild skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Vals gegn Víking í 11. umferð Pepsi-deild karla en með sigrinum nær Valur þriggja stiga forskoti á toppi Pepsi-deildarinnar á Grindvíkinga sem eiga leik til góða. 16. júlí 2017 23:00