Nainggolan skaut Inter í Meistaradeildina en AC Milan situr eftir Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. maí 2019 20:28 Radja skaut Inter í Meistaradeildina vísir/getty
Það verða Atalanta og Inter sem verða fulltrúar Ítalíu í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð auk Juventus og Napoli sem höfðu fyrir löngu tryggt sér efstu tvö sætin en lokaumferð deildarinnar fór fram í dag og áttu fjögur lið möguleika á 3. og 4.sæti. AC Milan situr eftir með sárt ennið þrátt fyrir að hafa unnið 2-3 sigur á SPAL þar sem Franck Kessie tryggði sigurinn skömmu fyrir leikslok. AC hafnar í 5.sætinu og fer því í Evrópudeildina líkt og AS Roma sem hafnar í 6.sæti en Rómverjar áttu mjög veika von á að ná fjórða sætinu fyrir lokaumferðina en 2-1 sigur þeirra á Parma dugði ekki til. Atalanta og Inter unnu nefnilega sína leiki en Atalanta vann öruggan 3-1 sigur á Sassuolo á meðan Inter marði 2-1 sigur á Empoli en staðan var 1-1 fram á 81.mínútu þegar belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan kom Inter í forystu. Atalanta og Inter ljúka því keppni með 69 stig en AC Milan með 68 og Roma 66. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Atalanta sem félagið öðlast keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu. Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson lék allan leikinn á miðju Udinese þegar liðið lagði Cagliari 1-2 en Emil skoraði fyrra mark Udinese í leiknum. Emil og félagar ljúka keppni í 12.sæti. Úrslit kvöldsins þýða jafnframt að Empoli er fallið niður í B-deildina en Genoa lyfti sér úr fallsæti með því að gera jafntefli við Fiorentina.
Ítalski boltinn Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Olga ætlar ekki í slag við Willum Sport Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Fótbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Eygló Fanndal Evrópumeistari Sport Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti „Hugur minn er bara hjá henni“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Íslenski boltinn Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Sport Fleiri fréttir Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United „Hér er allt mögulegt“ Van Dijk fær 68 milljónir á viku Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Solanke skaut Tottenham í undanúrslit Chelsea í undanúrslit þrátt fyrir tap Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Albert og félagar í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Neymar fór grátandi af velli Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn Tevez vill að Ronaldo og Messi spili saman í kveðjuleiknum hans Sjá meira