Hlín og Dagný skoruðu í íslenskum sigri í Espoo Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júní 2019 17:15 Hlín kom Íslandi á bragðið gegn Finnum í dag. vísir/getty
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann 0-2 sigur á því finnska í vináttulandsleik í Espoo í dag. Þetta var annar leikur liðanna á fimm dögum. Á fimmtudaginn gerðu þau markalaust jafntefli í Turku. Hlín Eiríksdóttir og Dagný Brynjarsdóttir skoruðu mörk Íslands í dag. Ísland fór rólega af stað í Espoo en eftir um stundarfjórðung færðist meira líf í íslensku sóknina. Á 21. mínútu kom Hlín Íslendingum með frábæru skoti upp í markhornið. Þetta var annað landsliðsmark Hlínar. Íslenska liðið hélt áfram að þjarma að því finnska og á 32. mínútu jók Dagný forystuna í 0-2. Glódís Perla Viggósdóttir átti þá laglega sendingu inn fyrir finnsku vörnina, Dagný tók vel við boltanum og skoraði sitt 23. landsliðsmark. Finnar voru nokkrum sinnum nálægt því að skora í leiknum, þá aðallega Linda Sällström sem fór illa með færin sín í dag. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka átti Heidi Kollanen svo skalla í stöng íslenska marksins. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á í sínum fyrsta landsleik eftir rúman klukkutíma. Hún fékk gott færi til að skora þriðja mark Íslands en skaut beint á Tinju-Riikka Korpela, markvörð Finnlands. Fleiri urðu mörkin í leiknum ekki og 0-2 sigur Íslands staðreynd. Þetta var síðasti leikur Íslands áður en undankeppni EM 2021 hefst í haust. Ísland mætir Ungverjalandi og Slóvakíu á heimavelli 29. ágúst og 2. september. Auk þessara liða eru Svíþjóð og Lettland í riðlinum.Byrjunarlið Íslands:Markvörður: Guðbjörg GunnarsdóttirHægri bakvörður: Ásta Eir ÁrnadóttirMiðverðir: Ingibjörg Sigurðardóttir (67. Guðný Árnadóttir) og Glódís Perla ViggósdóttirVinstri bakvörður: Áslaug Munda GunnlaugsdóttirMiðjumenn: Dagný Brynjarsdóttir (46. Alexandra Jóhannsdóttir), Sara Björk Gunnarsdóttir, Elín Metta Jensen (67. Sandra María Jessen)Hægri kantmaður: Hlín Eiríksdóttir (61. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir)Vinstri kantmaður: Agla María Albertsdóttir (46. Fanndís Friðriksdóttir)Framherji: Berglind Björg Þorvaldsdóttir (39. Margrét Lára Viðarsdóttir)
EM 2021 í Englandi Fótbolti Tengdar fréttir Elín Metta næst því að skora í markalausu jafntefli við Finna Ekkert mark var skorað í vináttulandsleik Íslands og Finnlands í Turku í dag. 13. júní 2019 17:15 Fimm breytingar á milli leikja | Áslaug Munda í byrjunarliðinu í fyrsta sinn Ísland og Finnland mætast í vináttulandsleik í Espoo í dag. 17. júní 2019 14:34 Mest lesið Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Albert sagður á óskalista Everton og Inter Fótbolti Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers Körfubolti Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Fótbolti Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf gervifætur til þess að geta gengið eðlilega Fótbolti Lena Margrét til Svíþjóðar Handbolti Dagskráin í dag: Nágrannaslagur í Njarðvík, Jókerinn og Íslendingalið Fortuna Sport Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Fótbolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf gervifætur til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Bellingham í efsta sæti listans en Ísak Bergmann er áttundi Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United „Hér er allt mögulegt“ Van Dijk fær 68 milljónir á viku Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Solanke skaut Tottenham í undanúrslit Chelsea í undanúrslit þrátt fyrir tap Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Albert og félagar í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Neymar fór grátandi af velli Sjá meira
Elín Metta næst því að skora í markalausu jafntefli við Finna Ekkert mark var skorað í vináttulandsleik Íslands og Finnlands í Turku í dag. 13. júní 2019 17:15
Fimm breytingar á milli leikja | Áslaug Munda í byrjunarliðinu í fyrsta sinn Ísland og Finnland mætast í vináttulandsleik í Espoo í dag. 17. júní 2019 14:34