Albumm

Er þetta of líkt til að vera tilviljun?
Á dögunum barst Albumm ábending um ansi lík tónlistarmyndbönd sem komu út með stuttu millibili. Það eru Íslensku sveitirnar Kig & Husk og SOMA en þegar að er gáð eru myndböndin nánast eins, enda er notast við sama myndefni.

Mugison, Lay Low, Salóme Katrín og Supersport hita upp fyrir OMAM
Of Monsters and Men halda upp á 10 ára afmæli fyrstu plötu þeirra My Head is an Animal 9. 10., 11. og 12. nóvember. Þau hafa boðið til sín góðum vinum til að halda upp á áfangann með þeim í Gamla Bíó í miðbæ Reykjavíkur.

Slá í gegn á Spotify
Píanóleikarinn Magnús Jóhann og bassaleikarinn Skúli Sverrisson senda frá sér plötuna, Án tillits.

„Hálfnaður með lífið sem er dropi í tímans haf“
Tvö dónaleg haust hafa sent frá sér nýja smáskífu og myndband af breiðskífunni Miðaldra, sem kom út fyrir ári síðan en lagið heitir Bognum ekki í bráð.

„Hjólabretti er fyrir alla” – Frábær námskeið og æfingar
Hjólabrettafélag Reykjavíkur býður nú í fyrsta skipti upp á æfingar á hjólabrettum og má nefna t.d. námskeið fyrir krakka, unglinga og fullorðna en einnig er boðið upp á stelpunámskeið og fjölskyldunámskeið. Einnig eru æfingar tvisvar sinnum í viku fyrir þá sem eru ögn lengra komnir. […]

„Þetta er um kynferðisofbeldi sem ég varð fyrir sem barn“
Síðastliðið ár hefur tónlistar- og listakonan Sjana Rut unnið hörðum höndum að plötu sem er væntanleg á komandi mánuðum. Plötunni verður skipt í tvennt og kemur fyrri hlutinn út á þessu ári og síðari hlutinn eftir áramót.

Myndaveisla frá Extreme Chill-hátíðinni
Tónlistarhátíðin Extreme Chill fór fram í Reykjavík dagana 7. til 10. október en þetta er ellefta árið sem hátíðin er haldin.

Ég vil að þetta sé svona „fokk it“ lag
Til að gefa sýnishorn af fyrstu smáskífunni „Zzz“ gefur tónlistarkonan OWZA út óttalaust og skilaboð þungt lag sem ber nafnið THRILLS.

„Fyrir alla lygarana sem vilja dansa í gegnum sársaukann“
Á föstudaginn sem leið gaf tónlistarkonan Annalísa út lagið Ég er bara að ljúga er það ekki? (Party Edit).

„Mitt besta verk hingað til“
Föstudaginn, 15. október gaf Birnir út plötuna Bushido. Þetta fimmtán laga stórvirki hefur verið í vinnslu í þrjú ár.

Svala setur kærleikann í fyrsta sæti
Svala Björgvins lifir lífi sínu í kærleikanum og gaf hún út lag ásamt myndbandi á föstudaginn 15 okt, sem að heitir Birtunnar Brú og fjallar lagið um um að elska alla þá sem að þú elskar skilyrðislaust og taka þeim eins og þau eru, og öllu sem þeim fylgir.

„Þörfin fyrir að standa á sviði hefur alltaf verið mikil“
Popp Tónlistarmaðurinn Benedikt gaf út sitt annað lag, With My Girls, föstudaginn 15. október. Lagið er óður til allra frábæru vinkvenna hans, er hreint og grípandi popp sem er skemmtilegt að syngja hátt með í bílnum eða dansa við. Benedikt hefur verið sagður minna á Troye Sivan.

Við elskum OASIS!
Við elskum Oasis og vegna fjölda áskoranna þá býður Bíó Paradís upp á aukasýningar á heimildarmyndinni Oasis Knewborth 1996, Fyrstur kemur, fyrstur fær!

OMAM fagnar 10 ára afmæli My Head Is An Animal
Fagnaðu 10 ára afmæli plötunnar My Head Is An Animal með OMAM í Gamla bíói.

Gerir upp margra ára ofbeldissamband
ZÖE var að senda frá sér smáskífu af væntanlegri plötu sem mun líta dagsins ljós í nóvember. Lagið heitir Blood in the Water, og mun það spila stóra rullu í lokaþætti Apple+ seríunnar „Truth Be Told“ sem skartar stórstjörnum á borð við Octaviu Spencer, Kate Hudson, Aaron Paul og Lizzy Caplan.

Gerir upp æskuárin á nýrri plötu
Hljómsveitin Vök hefur látið til sín taka í útgáfumálum á þessu ári og sendir nú frá sér EP plötuna, Feeding on a Tragedy.

Samdi lagið í kjölfar me too frásagnanna
Tónlistarkonan MIMRA gaf út lagið Sister nú á dögunum. Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri stuttskífu sem lítur dagsins ljós snemma á næsta ári.

„Þetta var allt mjög lítið og heimabakað í byrjun“
Tilrauna- og raftónlistar hátíðin Extreme Chill verður haldin ellefta árið í röð helgina 7 – 10 október í Reykjavík. Á sunnudagskvöldinu mun enska rafhljómsveitin Plaid spila á Húrra og er ein sú þekktasta og áhrifamesta sveit síðan snemma tíunda áratugarinns.

Possimiste sigrar í European Emerging Bands keppninni
European Emerging Bands Contest er hljómsveitakeppni þar sem leitað er að efnilegustu evrópsku hljómsveitunum. Búið er að birta sex sigurvegara keppninnar, og er ein þeirra Possimiste, en hún hefur búið á Íslandi síðustu tíu ár.

Haki sendir frá sér sína aðra plötu
Haki sendir frá sér sína aðra hljóðversplötu. Platan heitir Undrabarnið og kom út 1. október á öllum helstu streymisveitum.

Vænstu skinn en sumir hrjúfir
Hljómsveitin Loftskeytamenn hefur sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið Einn á báti.

Hafið það nógu vel kæst
Hel Freðinn hrynjandi og rammar rímur á kjarnyrtri og góðri frónlensku. Hljómar sem hylli en heimamenn geta glaðst.

Fann bassastefið í draumi
Fríða Dís sendi á dögunum frá sér lagið The Key to My Future Heart en lagið verður að finna á væntanlegri breiðskífu hennar sem er í smíðum. Í laginu kveður við nýjan tón en aðstæðurnar sem lagið var samið við voru heldur óvenjulegar.

Opið hús hjá Hjólabrettafélagi Reykjavíkur – Kynning á vetrarstarfi og fjör
Hjólabrettafélag Reykjavíkur (HFR) ætlar að hafa opið hús á morgun, sunnudaginn 26. september kl 11:00 – 13:00.

Ný plata á vegum Interchill Records í Kanada
Stereo Hypnosis gefur út nýja plötu 8. Október næstkomandi á vegum hina sögulega útgáfufyrirtækis Interchill Records í Kanada.

New York / Tokyo straumar á Sjálandi
Dj Steinar Fjeldsted heldur uppi fjörinu á sjálandi í Garðabæ annaðkvöld, laugardag frá kl 19:00 – miðnættis.

„Fuglaskoðun er svo falleg myndlíking“
Nightjar in the Northern Sky er fyrsti singúll frá samnefndri plötu frá píanóleikaranum, söngkonunni og lagahöfundinum Önnu Grétu.

Kalla eftir heilindum stjórnmálamanna
Silkikettirnir voru að senda frá sér brakandi ferskt lag sem heitir Segið bara satt og er fyrsta lagið af EP plötu sem væntanleg er á næstu misserum.

„Ég flutti til Svíþjóðar fyrir ástina“
Föstudaginn 17. september kom út lagið Rainy Days með söngkonunni Rebekku Sif. Lagið er önnur smáskífan af annarri plötu Rebekku sem er væntanleg.

Nýtt lag frá GREYSKIES
Á föstudaginn kom út lagið Evil með GREYSKIES.