
Formúla 1

Naoki Yamamoto keyrir fyrir Toro Rosso í Japan
Japanski ökuþórinn Naoki Yamamoto mun fá tækifæri til að prófa Formúlu 1 í fyrsta skiptið er hann mun aka fyrir Toro Rosso á fyrstu æfingu Suzuka kappakstursins um helgina.

Uppgjör: Hamfarir Vettel tryggðu Hamilton sigur
Lewis Hamilton tryggði sér sinn níunda sigur á tímabilinu er hann kom fyrstur í mark í rússneska kappakstrinum um helgina.

Sjáðu uppgjörsþáttinn eftir sigur Hamilton í Rússlandi
Heimsmeistarinn Lewis Hamilton stóð uppi sem sigurvegari í rússneska kappakstrinum í Formúlu 1 í dag.

Hamilton aftur á sigurbraut
Eftir þrjá sigra Ferrari í röð vann Mercedes Rússlandskappaksturinn.

McLaren gerir samning við Mercedes
McLaren mun aka með Mercedes vélar til ársins 2024, samningurinn tekur gildi fyrir tímabilið 2021.

Leclerc fyrsti Ferrari-ökuþórinn í 19 ár sem er fjórum sinnum á rásspól í röð
Charles Leclerc verður á rásspól í Rússlandskappakstrinum á morgun.

Upphitun: Hamilton segir líkur á sigri litlar
Lewis Hamilton leiðir heimsmeistaramótið í Formúlu 1 með 65 stiga forskot á liðsfélaga sinn. Hann segir þó ólíklegt að Mercedes muni ná að vinna eitthverja þeirra keppna sem eftir eru á tímabilinu.

Allar Hondurnar með refsingar um helgina
Báðir bílar Red Bull og Toro Rosso munu fá refsingar í Rússneska kappakstrinum sem fram fer um helgina. Ástæðan er sú að Honda ætlar að uppfæra vélarnar í bílum beggja liða til að undirbúa sig fyrir heimakeppni vélarframleiðandans á Suzuka brautinni eftir þrjár vikur.

Uppgjör: Langráður sigur hjá Vettel
Ferrari ökuþórarnir Sebastian Vettel og Charles Leclerc komu í fyrsta og öðru sæti í mark í Singapúr kappakstrinum um helgina.

Drama hjá Ferrari er Vettel batt enda á þrettán mánaða bið eftir sigri
Sebiastan Vettel vann sinn fyrsta Formúlu 1 kappakstur í þrettán mánuði er hann kom fyrstur í mark í Singapúr kappakstrinum í dag.

Ricciardo dæmdur brotlegur og ræsir síðastur
Daniel Ricciardo mun ræsa síðastur þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Singapú verður ræstur í hádeginu.

Þriðji ráspóll Leclerc í röð
Charles Leclerc verður á ráspól þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Singapúr verður ræstur á morgun eftir frábæran lokakafla í tímatökunni í dag.

Correa kominn úr dái
Formúlu Tvö ökuþórinn Juan Manuel Correa er kominn úr dái eftir þrjár vikur. Hann hafði verið í dái í þrjár vikur eftir alvarlegt slys.

Upphitun: Formúlan snýr aftur til Asíu
Ekið verður um götur Singapúr í Formúlunni um helgina. Brautin hefur ætíð reynst Mercedes liðinu erfið og virðist vera að Red Bull bílarnir séu þeir hröðustu á brautinni.

Kubica hættir hjá Williams
Pólverjinn Robert Kubica mun ekki aka fyrir Williams liðið á næsta ári. Það eru allar líkur á að Kubica er því að hætta í Formúlu 1 en árangur Pólverjans hefur ekki verið á pari í ár.

Williams áfram með Mercedes vélar
Formúlu 1 lið Williams hefur gert samning til ársins 2025 um að halda áfram nota Mercedes vélar í bílum sínum. Claire Williams, stjóri liðsins, er sátt með samningin og telur samstarfið eiga eftir að vera betra í framtíðinni.

Gunnar Karl og Ísak unnu Haustrallið
Mikil rigning og bleyta mætti keppendum í síðustu keppni Íslandsmótsins í ralli um helgina. Eftir talsverð afföll voru það Gunnar Karl Jóhannesson og Ísak Sigfússon sem stóðu uppi sem sigurvegarar.

Atli Jamil Noregsmeistari í torfæru
Atli Jamil Ásgeirsson tryggði sér Noregsmeistaratitilinn í torfæruakstri um helgina þegar síðustu tvær umferðir mótsins fóru fram í Skien í Noregi.

Sást til Schumacher koma á sjúkrahús í París
Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlunni, Michael Schumacher, er mættur til Parísar þar sem hann dvelur á sjúkrahúsi í borginni en Le Parisien greinir frá.

Uppgjör: Leclerc með magnaðan heimasigur
Hinn 21 árs gamli Charles Leclerc hefur nú unnið tvær keppnir í röð fyrir Ferrari. Sigur hans um helgina kom eftir magnaðan varnarakstur gegn Mercedes ökuþórunum.

Leclerc tryggði Ferrari fyrsta sigurinn á heimavelli í níu ár
Hinn 21 árs Charles Leclerc vann sína aðra keppni í röð.

Leclerc á rásspól í fjórða sinn á tímabilinu
Charles Leclerc á Ferrari varð fyrstur í tímatökunni fyrir Monza-kappaksturinn.

Upphitun: Ferrari á heimavelli um helgina
Fjórtándi Formúlu 1 kappakstur ársins fer fram á Monza brautinni á Ítalíu um helgina. Ferrari verða á heimavelli og eftir sigur í Belgíu er liðið vongott um góð úrslit á sunnudaginn.

Verstappen ræsir aftastur um helgina
Max Verstappen mun ræsa aftastur í kappakstri helgarinnar á Monza brautinni í Ítalíu. Ástæða þess er að Red Bull ætlar að skipta um vél í bíl Verstappen og er liðið því búið að nota of margar vélar á árinu.

Uppgjör: Leclerc tileinkaði Anthoine sigurinn
Charles Leclerc tryggði sér sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 um helgina. Eftir kappaksturinn var lítið um fagnaðarlæti eftir sorglega helgi í Belgíu.

Baldur og Heimir Íslandsmeistarar í ralli
Lengsta og erfiðasta rallkeppni ársins, Rallý Reykjavík, fór fram um helgina. Baldur Arnar Hlöðversson og Heimir Snær Jónsson stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar eftir þriggja daga keppni.

Leclerc vann fyrsta sigurinn í Formúlu 1
Charles Leclerc vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum í dag.

Lést eftir árekstur í Formúlu 2
Hætt var við Formúlu 2 keppni í Belgíu í dag eftir alvarlegan árekstur. Keppnin var fyrst um sinn stöðvuð tímabundið en síðar var ákveðið að hefja ekki keppni á nýjan leik.

Occon til Renault á næsta ári
Frakkinn Esteban Occon mun aka fyrir Renault á næsta ári. Occon gerði tveggja ára samning við liðið og verður því í herbúðum þeirra til ársins 2022.

Upphitun: Formúlan snýr aftur eftir sumarfrí
Þrettánda umferðin í Formúlu 1 fer fram um helgina á einni mögnuðustu kappakstursbraut í heimi, Spa Francorchamps í Belgíu.