Innlent

Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun
Í hádegisfréttum fjöllum við um nýjustu verðbólgutölurnar sem bárust í morgun.

Eldur í gámi við Sundabakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 11:20 í dag eftir að eldur kom upp í gámi á gámasvæði við Sundabakka í Reykjavík.

Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben
„Við skulum átta okkur á því að það er auðvitað unnið að fjöldamörgum málum og forsætisráðherrann kemur nú ekkert að þeim öllum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, í Pallborðinu í gær.

Lætur staðar numið í pólitíkinni
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarstjórnarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ, hefur óskað eftir því að vera leyst frá störfum bæjarstjórnar með vorinu.

Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti
Mikill reykur myndaðist á byggingarsvæði við Sigtún, á Blómavalsreitnum svo kallaða, þegar það kviknaði í einangrunarplasti í morgun. Vel gekk að slökkva eldinn en starfsmenn byggingarsvæðisins voru að mestu búin að slökkva þegar slökkvilið kom á vettvang.

Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning
Stjórn Félags leikskólakennara tekur ekki undir yfirlýsingar stjórnmálafólks þar sem boðaðar eru „skyndilausnir sem engu skila“. Í nýrri ályktun stjórnar félagsins segir að engin formleg vinna í tengslum við kjarasamninga sé í gangi varðandi skipulagningu skólastarfs í leikskólum og því síður vinna í gangi að skoða að taka fimm ára börn í grunnskóla.

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?
Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga fer fram í dag frá klukkan tíu til fimm í Norræna húsinu.

Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“
Þátttaka reykvískra grunnskólabarna í mótmælum á opinberum vettvangi á skólatíma skal afgreidd sem „óheimil fjarvist“ og vera skráð sem slík. Á sama tíma er eitt af leiðarljósum menntastefnu borgarinnar „barnið sem virkur þátttakandi“ þar sem virkni barna og lýðræðisleg þátttaka í leik og starfi er talin mikilvæg leiðarljós í menntastefnu.

Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman
Stór meirihluti fagfólks sem vinnur að skipulagsmálum í íslenskum sveitarfélögum þekkir dæmi um það að fyrirgreiðsla, eða spilling, hafi haft áhrif á skipulagsákvarðanir sveitarfélaga síðustu þrjú ár. Þetta sýna niðurstöður Ásdísar Hlakkar Theódórsdóttur, aðjúnkts við Háskóla Íslands og fyrrverandi forstjóra Skipulagsstofnunar.

Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar
Tilkynningum um alvarleg ofbeldisbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um áttatíu og fimm prósent á síðustu tíu árum á sama tíma og lögreglumönnum hefur fækkað um fjörutíu. Lögreglustjóri kallar eftir breytingum.

Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar
Ellefu landeigendur við bakka Þjórsár hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu og Landsvirkjun og freista þess að fá felld úr gildi með dómi leyfi Fiskistofu og heimild Umhverfisstofnunar fyrir Hvammsvirkjun frá því fyrr í þessum mánuði. Hafa þeir fengið flýtimeðferð í málinu.

Fannst hennar tími vera kominn
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að henni hafi fundist hennar tími kominn í íslenskum stjórnmálum. Hún vill enn gera gagn til góðs og telur sig geta gert það í embætti forseta.

Sakar ríkisstjórnina um að ætla að afhenda fiskeldinu firðina til eilífðar
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir engan frið verða um frumvarp Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra um lagareldi. Hann segir ótímabundinn rekstrarleyfi til fiskeldis fara í þveröfuga átt við Noreg og að ákvæði í frumvarpinu veiti erlendum hagsmunaaðilum rétt á að braska með heimildir.

Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn
Samfylkingin nýtur mesta fylgis flokka á Alþingi og er marktækur munur á fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins fjórtánda mánuðinn í röð, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Miðflokkurinn er að festa sig í sessi sem þriðji stærsti flokkurinn.

Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“
Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd.

Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur móður sem grunuð er um að hafa orðið syni sínum að bana í Kópavogi. Hún hefur setið í gæsluvarðhaldið vegna málsins síðan í lok janúar.

Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur
Tilkynningum um alvarleg ofbeldisbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um áttatíu og fimm prósent á síðustu tíu árum á sama tíma og lögreglumönnum hefur fækkað um fjörutíu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við lögreglustjóra sem kallar eftir breytingum.

„Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gefur lítið fyrir ummæli Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Í dag lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins 1600 vettlinga á gólf Ráðhússins sem þau sögðu svipað marga og börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni.

Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og utanríkisráðherra fer ófögrum orðum um orðræðu Jóns Gnarr um framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta. Jóni hefur verið tíðrætt um að honum finnist óvenjulegt að sitjandi forsætisráðherra skuli bjóða sig fram og hefur kallað framboð hennar „steikt og absúrd.“

Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga
Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Suðurland um að úrskurða tvo karlmenn í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti sem varð í Kiðjabergi um helgina.

Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins
Aðalfundur Landsambands veiðifélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af efni frumvarps um lagareldi, sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra, mælir nú fyrir á þingi. En þar er tekist á af hörku um málið.

Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun
Bíl var ekið á húsnæði Útlendingastofnunnar í dag. Slökkviliðið var kallað út vegna málsins, vegna vatnsleka, en svo virðist sem lögn hafi rofnað við áreksturinn.

Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara
Húsfélag fjölbýlishúss nokkurs hefur verið gert afturreka með kröfu sína um að einum íbúa hússins, sem er rafvirkjameistari, yrði bannað að nota einkatengil til hleðslu á bifreið hans í bílakjallara hússins. Húsfélagið krafðist þess einnig að því yrði eftir atvikum heimilt að klippa á tengilinn héldi eigandinn notkun hans áfram.

Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi
Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni.

Enn kröftugt gos úr einum gíg
Enn gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Frá 5. apríl hefur aðeins gosið úr einum gíg í eldgosinu sem hófst þann 16. mars síðastliðinn. Myndatökumaðurinn Björn Steinbekk var á vettvangi í vikunni og myndaði gosið.

Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands
Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum.

Velkomin í Verbúðina II
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um lagareldi nú rétt í þessu. Það nær til sjókvíaeldis, landeldis, hafeldis og þörungaræktar. Fyrir liggur að málið er gríðarlega eldfimt.

Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna
Halla Hrund Logadóttir mælist með sextán prósent fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í fyrri Þjóðarpúlsi mældist hún aðeins með fjögur prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi og bætir lítillega við sig, fer úr 30 í 31 prósent.

Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag
Þrír karlmenn hafa verið ákærðir vegna skotárásar sem átti sér stað á aðfangadag, 24 desember, í fyrra. Einn þeirra er grunaður um að hafa framið sjálfa árásina og er ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot. Hinir tveir eru ákærðir fyrir hlutdeild í brotunum.

Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann.