Neytendur

Dropp stal efsta sætinu af bensíninu hjá Costco
Póstþjónustufyrirtækið Dropp er sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar 2023. Fyrirtækið fékk hæstu einkunnina frá neytendum eða 83,9. Íslandsbanki hlaut lægstu einkunn ársins 53,9.

Segir neytendur ósátta með miklar breytingar á rafrettureglum
Reglur um rafrettur taka gífurlegum breytingum um mánaðamótin. Neytendur eru alls ekki sáttir að sögn verslunareiganda sem vill meina að breytingarnar séu slæmar fyrir alla sem koma að viðskiptunum, sem og umhverfið.

Bein útsending: Ný leiguvísitala kynnt til leiks
Hús- og mannvirkjastofnun efnir til kynningarfundar um nýja vísitölu leiguverðs og upplýsingar úr nýrri leiguskrá sem stofnunin hefur sett á laggirnar. Fundinum er streymt í beinni og hefst klukkan 10.

Leggjast yfir umdeilt gjald sem færðist aftur yfir á almenning
Hæstiréttur ætlar að leggjast yfir deilur Landsvirkjunar við Landsnet um innheimtu Landsnets á svonefndu aflgjaldi. Héraðsdómur og Landsréttur hafa þegar úrskurðað gjaldið ólögmætt.

Segja þeim upp sem hækka verð verulega
Samkaup, sem reka um sextíu verslanir á landinu á borð við Nettó og Krambúðina, segjast hafa fengið jákvæð viðbrögð frá ýmsum samstarfsaðilum um aðgerðir gegn verðbólgu. Á næstu misserum muni fyrirtækið ræða við alla sína birgja með það að markmiði að verðlækkanir skili sér í vöruverði til almennings. Hætt verði sölu á þeim vörum sem hækkað hafi óhóflega og ódýrari sambærilegar vörur valda til sölu.

Karamelluskyrið rýkur upp í verði
Verð á mjólkurvörum hækkaði í mörgum verslunum milli fyrstu og annarrar viku ársins samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Heildsöluverð á mjólk hækkaði um 1,6 prósent þann 8. janúar sem er strax farið að skila sér í meiri kostnaði fyrir neytendur. Áhugafólk um karamelluskyr finnur sérstaklega fyrir hækkun.

Fresta gjaldtökunni umdeildu
Stjórnendur og stjórn Isavia Innanlandsflugvalla hafa ákveðið að fresta gjaldtöku á bílastæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum þar til síðar á þessu ári.

Fær geymsluna á bílnum og þrifin endurgreidd að fullu
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur komist að því að fyrirtæki sem sér um geymslu og þrif bifreiða á meðan fólk ferðast þarf að endurgreiða manni 38.900 krónur og greiða 35 þúsund krónur í málskostnaðargjald.

Tónninn gjörbreyttist þegar „eiginkonan“ hafði samband
Smiður sem tók að sér að smíða fallegan skáp fyrir um hálfa milljón króna tilkynnti kaupanda að vegna heilsufarsbrests gæti hann ekki lokið við verkið eins og samið var um. Þegar kaupandi hafði samband í nafni eiginkonu sinnar og ætlaði að kaupa annað verk tók smiðurinn vel í það erindi.

Bréfpokar undir matarleifar ekki lengur í verslunum
Frá og með morgundeginum mun Sorpa hætta dreifingu bréfpoka undir matarleifar í verslunum. Áfram geta íbúar sótt bréfpokana endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum Sorpu og í verslun Góða hirðisins.

„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs
„Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu.

Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi
„Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“

Skordýr í kryddi og glerbrot í súpu
Krydd sem var flutt inn af Krónunni og selt í verslunum hennar hefur verið innkallað vegna þess að skordýr fannst í því. Þá hefur Sælkerabúðin ákveðið að innkalla súpu því að í henni fundust glerbrot.

Icelandair skýri betur fjárhæð skrópgjalds og fleira til
Neytendastofa hefur beint þeim fyrirmælum til Icelandair að tilgreina í flutningsskilmálum sínum með hvaða hætti farþegar skuli senda félaginu tilkynningar um að þeir hyggist ekki nýta einhvern hluta flugmiða og fyrir hvaða tímamark.

Opna nýja flöskumóttöku í Reykjavík
Endurvinnslan hf hefur opnað nýja flöskumótöku við Köllunarklettsveg 4 í Reykjavík, beint á móti Góða hirðinum. Í stöðinni eru tvær talningarvélar sem telja og flokka heilar umbúðir og geta afkastað um þrettán milljónum eininga á ári.

Gjafakort virki svo sannarlega á útsölum
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir gjafakort svo sannarlega virka á útsölum. Hann hafi farið með rangt mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun þegar hann fullyrti hið gagnstæða. Rætt var um jólaverslunina í ár í þættinum í morgun.

Dýrara í Strætó á nýju ári
Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Hækkunin nemur að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 kr. í 630 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4500 kr. í 5.200 kr. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr.

Letrið of smátt og lýsingarorðin of jákvætt hlaðin
Mat Neytendastofu er að GS Verslanir ehf, rekstraraðila GS Búlluna, hafi brotið gegn auglýsingarbanni með því að birta myndir og myndbönd af nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær á samfélagsmiðlum. Hefur félaginu verið bannað að birta auglýsingarnar.

Skanna strikamerki og sjá verðið í öðrum verslunum
Alþýðusamband Íslands hefur frá því síðsumars safnað miklu magni gagna um vöruverð í öllum mögulegum matvöruverslunum. Úr þessu hefur verið þróað app svo neytendur geti borið saman vöruverð með því einu að skanna strikamerki með símanum.

Drykkjarvörur og konfekt hækka mest
Dæmi eru um að verð á jólamatvörum hafi hækkað um tugi prósenta á milli ára. Samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ hefur jólamaturinn hækkað um allt að 17 prósent. Landsmenn finna misvel fyrir hækkuninni.

Banna Arnarlaxi að notast við „sjálfbærni“ í markaðssetningu
Neytendastofa hefur bannað Arnarlaxi að notast fullyrðingar um sjálfbærni í markaðssetningu og vörumerkjum félagsins. Fullyrðingarnar séu taldar villandi fyrir neytendur.

Lifandi vísindi skýri betur hvernig skuli segja upp áskriftinni
Rekstraraðila tímaritsins Lifandi vísinda hefur verið gert að bæta upplýsingagjöf til neytenda varðandi það hvernig skuli segja upp áskrift að tímaritinu. Verði ekki gerð bragarbót á innan tveggja vikna skal rekstraraðilinn, Elísa Guðrún ehf., sæta dagsektum.

Engar bætur vegna seinkunar vélar sem varð fyrir eldingu
Viðskiptavinir Play fá engar bætur vegna aflýsingar á flugi flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli til Alicante í desember á síðasta ári eftir að eldingu hafði lostið niður í vélina.

Mikilvægt að kynna sér „falinn kostnað“ skammtímalána
Fólk getur sparað allnokkrar fjárhæðir með því að horfa ekki bara á vexti þegar það tekur skammtímalán, heldur einnig svokallaða „árlega hlutfallstölu kostnaðar“, eða ÁHK.

Þriðjudagstilboðið heldur áfram að hækka í verði
Þriðjudagstilboð Domino's á Íslandi hefur hækkað í verði úr 1200 krónum upp í 1300 krónum. Um er að ræða þriðju verðhækkunina á tilboðinu frá árinu 2021, sem áður hafði kostað þúsund krónur í ellefu ár. Síðasta verðhækkun var í janúar á þessu ári.

Verðskrá fyrir magnpóst lögð niður
Frá og með 1. janúar 2024 verður sérstök verðskrá fyrir magnpóst lögð niður og flokkarnir almenn bréf og magnpóstur sameinaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Platinum-tryggingin dekkaði ekki hurð sem fauk upp undir Hafnarfjalli
Kona fær ekki endurgreitt frá bílaleigu þrátt fyrir að hafa verið með „Platinum-tryggingu“ sem hún taldi dekka tjón sem hún lenti í. Fær hún því ekki endurgreiddar 230 þúsund krónurnar sem hún óskaði eftir.

Ítali fær íslenska ullarpeysu sem passaði ekki endurgreidda
Ónefndri vefverslun hér á landi hefur verið gert að greiða ítölskum viðskiptavini rúmar 50 þúsund krónur eftir að hann hafði skilað ullarpeysu sem hann hafði keypt en aldrei fengið endurgreitt.

Olíufélögin fjarlægjast Costco
Það munar fimmtán krónum á bensínlítranum hjá ódýrustu bensínstöðinni og þeirri næstódýrustu. Formaður félags íslenskra bifreiðaeigenda segir fákeppni á markaði skýra aukinn verðmun.

Hopp hækkar verðið
Hopp Ísland hækkaði í dag startgjald í fyrsta sinn síðan rafhlaupahjólaleigan var opnuð árið 2019. Þá hækkar mínútugjald einnig. Framkvæmdastjóri segir hækkunina beina afleiðingu verðbólgu.