Veður

Hlýjast á Norðurlandi og rigning sunnan- og vestantil
Landsmenn mega eiga von á vaxandi suðaustanátt í dag, víða þrettán til tuttugu metrar á sekúndu eftir hádegi. Það verður rigning um landið sunnan- og vestanvert, og sums staðar talsverð rigning, einkum á Suðausturlandi.

Skýjað með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif
Gera má ráð fyrir fremur suðlægri átt í dag þar sem skýjað verður með köflum og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bjart veður verður um landið norðaustanvert. Hiti víða fimm til tíu stig.

Vindur gæti náð 40 metrum á sekúndu í hviðum
Lægðin og snjókomubakkinn sem henni fylgdi er nú á leið austur og fjarlægist landið en skilur eftir hjá okkur norðan strekking eða allhvassann vind. Á Suðausturlandi og á Austfjörðum verður norðvestan hvassviðri eða stormur, 18 til 25 metrar á sekúndu.

Vaxandi austanátt og snjókoma eða él
Veðurstofan gerir ráð fyrir hægt vaxandi austlægri átt með snjókomu eða él í dag. Má reikna með að í kvöld verði tíu til fimmtán metrar á sekúndu, en á Norðvesturlandi verður norðaustan hvassviðri með éljum og skafrenningi. Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum og við Breiðafjörð frá síðdegis í dag og til morguns.

Yfirleitt þurrt og bjart sunnan- og vestanlands
Landsmenn mega reikna með hægri, breytilegri átt í dag, en norðvestan strekkingi austast á landinu fram eftir degi. Það verður yfirleitt þurrt og bjart veður á sunnan- og vestanverðu landinu, og eftir hádegi rofar einnig til norðaustanlands.

Lægð beinir til okkar hlýju lofti
Suðvestur af landinu er 1037 millibara lægð sem beinir til okkar hlýrri suðvestanátt. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að í dag verði víða vindur á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu en norðan- og norðvestanlands verði fimmtán til tuttugu metrar á sekúndu. Í kvöld mun svo hvessa á Austfjörðum.

Léttskýjað í öllum landshlutum
Þrýstingur á landinu hefur hækkað nokkuð ört í nótt og er myndarleg hæð að byggjast upp yfir landinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Norðanáttin ríkjandi á landinu
Norðanáttin verður ríkjandi á landinu í dag þar sem reikna má með éljagangi og skafrenningi norðan- og austantil fram yfir hádegi. Má reikna með átta til fimmtán metrum á sekúndu í dag og frosti yfirleitt núll til fimm stig.

Gular viðvaranir vegna yfirvofandi hríðarveðurs
Nú er hann lagstur í vaxandi norðanátt og fer að snjóa víða á landinu í dag. Það gengur á með hríðarveðri á norðurhelming landsins eftir hádegi og verða gular veðurviðvaranir vegna hríðar í gildi til hádegis á morgun.

Róleg suðvestanátt með éljum
Það er spáð rólegri suðvestanátt með éljum í dag en væntanlega mun létta til á Norðaustur- og Austurlandi síðdegis. Hitinn ætti að skríða yfir frostmark víðast hvar en í nótt má svo búast við núll til fimm stiga frosti.

Hægur vindur og dálítil él
Suðvestanáttin er að ganga niður á landinu og í eftirmiðdaginn verður yfirleitt fremur hægur vindur og dálítil él en þurrt austanlands.

„Litlar líkur á öðrum eins sumardegi á Austfjörðum“
Það hefur kólnað talsvert yfir landinu „og eru litlar líkur á öðrum eins sumardegi á Austfjörðum þrátt fyrir að veðrið sé í stórum dráttum svipað,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

„Ákaflega hlýtt loft“ yfir landinu
Það er ákaflega hlýtt loft yfir landinu nú og í nótt hefur verið allt að fimmtán stiga hiti í hnjúkaþey á Tröllaskaga og á Austfjörðum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Gul viðvörun og allt að fimmtán stiga hiti
Víðáttumikil hæð sem er skammt vestur af Írlandi beinir hlýjum og rökum vindum til okkar en á Norður- og Austurlandi verður úrkomulítið auk þess sem þar munu jafnframt mælast hæstu hitatölurnar.

Spá allt að fjórtán stiga hita
Víðáttumikil hæð á Biscayaflóa stýrir veðrinu í augnablikinu og beinir votum og mildum sunnanáttum að landinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Áfram norðanátt og hvassast undir Vatnajökli
Áfram er norðanátt í dag, tíu til átján metrar á sekúndu, þar sem hvassast verður undir Vatnajökli. Búast má við snjókomu norðan- og austanlands en annars bjart með köflum.

Djúp lægð nálgast sem veldur hvassri norðanátt
Djúp 958 millibara lægð er nú í morgunsárið stödd milli Íslands og Færeyja. Hún nálgast landið enn frekar í dag og veldur hvassri norðanátt á landinu ásamt ofankomu sem einkum verður bundin við norðurhelming landsins.

Ný vika heilsar með suðaustanátt og rigningu
Eftir hægviðri helgarinnar heilsar ný vika okkur með suðaustanátt og rigningu, víða átta til fimmtán metrum á sekúndu. Búast má við talsverðri rigningu fram eftir degi á Suðausturlandi en lengst af úrkomulítið norðaustanlands.

Lægð færir með sér vaxandi suðaustanátt og rigningu
Í dag er útlit fyrir breytilega átt, þrjá til átta metra á sekúndu og bjartviðri en lítilsháttar vætu vestan- og norðvestanlands fram undir hádegi. Þá mun bera á vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands seint í kvöld.

Veðrinu stjórnað af hæðum yfir Bretlandseyjum og Grænlandi
Í dag er spáð suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu en austan átta til þrettán við norðausturströndina. Gera má ráð fyrir dálítilli vætu með köflum en lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðaustantil fram eftir degi. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig, bjart með köflum og milt veður. Léttir til um sunnanvert landið í kvöld.

Hæð milli Íslands og Færeyja heldur lægð fjarri
1.038 millibara hæð milli Íslands og Færeyja stjórnar nú veðrinu hér á landi. Víðáttumikil og djúp lægð gengur nú yfir nærri Nýfundnalandi, en hún kemur ekki við sögu í veðrinu hér á Íslandi þar sem hæðin heldur henni fjarri. Veður verður því með rólegra móti út vikuna.

Von á suðaustanátt og víða dálítilli vætu
Útlit er fyrir suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu á Suður- og Vesturlandi með dálítilli vætu. Hiti verður þar víðast á bilinu tvö til sex stig.

Víða strekkingur eða allhvasst og rigning
Búast má við austan- og norðaustanátt í dag, víða strekkingi eða allhvössum vindi, átta til fimmtán metrar á sekúndu, en heldur hægari á Norðaustur- og Austurlandi. Talsverð rigning suðaustantil á landinu og rigning eða slydda með köflum í öðrum landshlutum eftir hádegi, en snjókoma norðaustanlands.

Hægir vestanvindar en sums staðar snjór
Landsmenn mega búast við fremur hægum vestanvindum í dag og þar sem mun snjóa sums staðar norðvestan til. Annars staðar verður lítilsháttar slydda eða rigning og mun létta smám saman til á Suðausturlandi.

Breytileg átt og rigning, slydda eða snjókoma
Spáð er breytilegri átt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, og rigningu, slyddu eða snjókomu. Hiti verður um eða yfir frostmarki.

Allt að 9 stiga frost en mildara veður á næstunni
Í dag er spáð suðaustan- og austanátt, 5 til 10 metrum á sekúndu en 10 til 15 við suðurströndina. Él sunnan- og austanlands, en víða bjartviðri á Norðvestur- og Vesturlandi. Heldur hægari vindur allra syðst seint á morgun. Hiti í kringum frostmark en frost 0 til 9 stig norðan- og austantil.

Suðaustlægar áttir ríkja enn um sinn
Suðaustlægar áttir ríkja á landinu enn um sinn með strekkingi eða allhvössu við suður- og vesturströndina og stöku él með hita kringum frostmark á þeim slóðum.

Hæð norður af Jan Mayen heldur lægðunum fjarri
Öflug hæð norður af Jan Mayen stjórnar veðrinu næstu daga og heldur lægðunum fjarri landinu.

Austan og suðaustan kaldi og víða frost
Veðurstofan gerir ráð fyrir austan og suðaustan kalda eða stinningskalda í dag með stöku éljum við suðurströndina og einnig vestast á landinu. Þó má búast við hægari vindi og bjartviðri norðan- og austanlands.

Víða allhvöss austan- og norðaustanátt
Veðurstofan spáir austan og norðaustanátt í dag, víða allhvassri eða hvassri, tíu til átján metrar á sekúndu, en mun hægari austan til. Dálítil él verða á landinu norðanverðu, en bjart með köflum syðra. Lægir heldur suðvestantil í kvöld.