
Veður

Gular viðvaranir í kvöld og éljagangur á morgun
Gular viðvaranir eru í gildi á landinu í kvöld og nótt vegna úrkomu og vinds. Suðvestan 15-25 m/s og mikil úrkoma á vestanverðu landinu í dag. Talsverð hlýindi en hægari vindur á Austurlandi fram á kvöld.

Áfram mikil rigning á Austfjörðum en dregur úr vætu síðdegis
Spáð er norðaustan 10 til 15 metrum á sekúndu í dag en 15 til 23 metrum norðvestantil. Rigning eða slydda með köflum norðan- og austanlands, talsverð eða mikil rigning á Austfjörðum og snjókoma til fjalla.

Vaxandi norðanátt og áframhaldandi rigning og slydda fyrir austan
Veðurstofan spáir vaxandi norðanátt í dag, tíu til átján metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður norðvestantil og við suðausturströndina. Dálítil rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi og mikil rigning á Austfjörðum í fyrst. Síðan verður heldur úrkomuminna um tíma, en bætir aftur í rigningu seinni partinn. Hins vegar verður þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi.

Von á enn meiri rigningu á Austfjörðum í kvöld
Áfram má reikna með norðaustanátt í dag en að vind lægi þó aðeins. Spáð er lítilsháttar úrkomu norðan- og austanlands, rigningu eða slyddu við ströndna en snjókomu í innsveitum. Í kvöld má svo aftur búast við talsverðri rigningu á Austfjörðum.

Ágætlega milt miðað við árstíma en víða rigning og hvassviðri
Útlit er fyrir austan- og norðaustanátt á landinu, víða átta til fimmtán metra á sekúndu. Víða má búast við dálítilli rigningu af og til, en austanlands verður rigningin samfelldari og í meira magni.

Víða þurrt og frost á landinu
Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan 3 til 10 metrum á sekúndu og víða þurru veðri í dag. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig þar sem kaldast verður í innsveitum norðaustantil.

Lægir ekki að ráði fyrr en eftir hádegi á morgun
Áfram eru veðurviðvaranir í gildi um land allt nema á höfuðborgarsvæðinu vegna norðanstorms. Á Suðausturlandi er appelsínugul viðvörun í gildi en annars staðar á landinu eru viðvaranir gular.

Stormur, stórhríð og hörkufrost í kortunum
Í dag, á morgun og fram á föstudag er útlit fyrir fyrsta alvöru norðanáhlaup vetrarins með stormi, stórhríð og ísköldu heimskautalofti sem herðir á frostinu.

Fyrsti alvöru norðanáttarkaflinn og hörkufrost í vændum
Útlit er fyrir hvassa suðvestanátt í dag og jafnvel storm á stöku stað. Yfirleitt verður hægari vindur norðvestantil á landinu. Þó má búast við skúrum eða slydduéljum, en að það stytti upp og rofi til norðaustan- og austanlands. Hitiinn verður á bilinu 2 til 7 stig.

Stinningskaldi og snjókoma í kortunum
Það er spáð norðaustanátt í dag, víða kalda og stinningskalda, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Kröpp lægð á leiðinni „með tilheyrandi snúningum í veðri“
Nú í morgunsárið er spáð fremur hægum vindi og úrkomulitlu veðri en í dag gengur svo „nokkuð kröpp lægð austur fyrir land með tilheyrandi snúningum í veðri“.

Snjókoma í kortunum
Það verður fremur hægur vindur í dag og víða léttskýjað framan af degi. Þá verður frost yfirleitt á bilinu tvö til tíu stig að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Léttskýjað og allt að þrettán stiga frost
Hæðarhryggur gengur inn á landið í dag með hægri breytilegri átt og léttskýjuðu veðri.

Spá allt að tólf stiga frosti
Það verður norðlæg átt í dag, víða fimm til tíu metrar á sekúndu en átta til þrettán metrar á sekúndu norðvestantil og með austurströndinni.

Norðankaldi og él norðan- og austanlands
Spáð er norðan- og norðaustankalda og éljum norðan- og austanlands í dag og jafnvel skúrum eða éljum við suðurströndina til hádegis, en annars úrkomulaust að kalla. Hiti víða í kringum frostmark í dag.

Gul viðvörun á Vestfjörðum vegna hvassviðris og snjókomu
Á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að viðvörunin hafi tekið gildi klukkan þrjú í nótt og gildi til klukkan 15 í dag.

Gul stormviðvörun á Suðurlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi vegna hvassviðris eða storms sem spáð er undir Eyjafjöllum.

Suðlæg átt og víða él
Því er spáð að það dragi úr vindi og ofankomu á norðaustanverðu landinu með morgninum. Þá verður suðlæg átt, víða fimm til tíu metrar á sekúndu og él en það á að rofa til á Norðurlandi.

Víða dálitlar skúrir eða slydduél
Veðurstofan spáir suðlægri eða breytilegri átt í dag, 3 til 10 metrum á sekúndu og dálitlar skúrir eða slydduél. Bjart verður með köflum norðanlands. Hiti á landinu verður á bilinu 1 til 7 stig.

Mildur og rakur loftmassi berst yfir landið úr suðri
Mildur og rakur loftmassi berst yfir landið úr suðri í dag þar sem víða er útlit fyrir suðaustan strekking,8 til 15 metrar á sekúndu, með skýjuðu veðri og súld eða rigningu með köflum.

Óveðurslægðin fjarlægist og önnur lægð á leiðinni
Óveðurslægð gærdagsins er komin norður fyrir land og fjarlægist. Íbúar sunnan- og vestantil á landinu sitja þó eftir í stífri suðvestanátt, 10 til 18 metrum á sekúndu og með éljagangi.

Alldjúp lægð fer yfir og gular viðvaranir um mest allt land
Alldjúp lægð fer norðaustur fyrir vestan land í dag og fylgir henni vaxandi suðvestanátt, víða hvassviðri eða stormur eftir hádegi og sums staðar rok.

Gular viðvaranir víðast hvar vegna vinds
Veðurstofan spáir suðvestan hvassviðri eða stormi á norðan- og austanverðu landinu í dag, en heldur hægari vindi suðvestantil. Víða verður rigning og talsverð sums staðar á norðvestan- og vestanverðu landinu, en styttir upp austantil er líður á daginn.

Gular viðvaranir í gildi og rysjótt veður næstu daga
Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi á Austurlandi að Glettingi, á Austfjörðum og á Suðausturlandi auk Miðhálendisins og verða þær í gildi flestar fram eftir degi.

Gular viðvaranir enn í gildi fram eftir morgni
Veðurstofan spáir allhvassri eða hvassri austanátt og sums staðar stormi syðst og víða dálítilli rigningu eða slyddu. Þó er gert ráð fyrir heldur hægari suðaustanvindi og eftir hádegi.

Austan belgingur og stormur syðst
Það er spáð austan belgingi í dag og stormi syðst á landinu þar sem gul viðvörun er í gildi.

Djúp lægð stjórnar veðrinu næstu daga
Djúp lægð sem er suðvestur af landinu stjórnar veðrinu hér næstu daga að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Leifar fellibylsins Epsilon nálgast landið
Það verður fremur hæg austlæg eða norðaustlæg átt í dag, þó allt að tíu metrar á sekúndu norðvestantil.

Engin lognmolla í veðrinu í dag
Stormur mældist á nokkrum stöðvum á sunnanverðu landinu í nótt, en nú í morgunsárið er mesti vindurinn afstaðinn og hafa gular vindviðvaranir runnið sitt skeið á enda.

Djúpar lægðir í kortunum næstu sex daga
Veðurspár gera nú ráð fyrir að djúpar lægðir verði tíðir gestir fyrir sunnan og suðaustan land næstu sex dagana og jafnvel lengur.