Fimmtíu skæruliðar felldir 18. júní 2005 00:01
Bandarískar og írakskar hersveitir héldu í dag áfram stórsókn sinni gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta landsins. Fimmtíu skæruliðar voru felldir þar í gær. Orrustuþotur og orrustuþyrlur eru notaðar til að styðja um eitt þúsund bandaríska landgönguliða og írakska hermenn sem taka þátt í hernaðaraðgerð sem gefið var nafnið „Rýtingur“. Orrustuþoturnar hafa varpað sprengjum á víghreiður uppreisnarmanna og þyrlurnar hafa skotið á þau eldflaugum. Tilgangurinn með þessum aðgerðum er að finna falin vopnabúr og fella eins marga uppreisnarmenn og unnt er. Fimmtíu eru sagðir hafa verið felldir í gær en ekki hefur verið getið um mannfall í röðum Bandaríkjamanna og Íraka. Harðar árásir hafa verið gerðar í grennd við bæinn Qaim sem er um tuttugu kílómetra frá sýrlensku landamærunum. Talið er að Qaim hafi verið miðstöð vopnasmyglara og skæruliða síðastliðin tvö ár. Læknar í bænum segja að tuttugu lík hafi verið flutt á sjúkrahús þeirra og margir tugir særðra manna. Þegar hermennirnir voru að kanna hús eitt í bænum fundu þeir fjóra Íraka sem hafði verið rænt og haldið í gíslingu. Þeim hafði verið misþyrmt og voru hlekkjaðir í dýflissu sinni.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Erlent Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum Innlent Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Erlent „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Innlent Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Innlent Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi Innlent Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Innlent Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Innlent Fleiri fréttir Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Yngsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi heims endurkjörinn Áfrýjar í von um að geta boðið sig fram til forseta Sjá meira