Félagarnir Halli og Heiðar úr rokksveitinni Botnleðju hafa gefið út barnaplötuna Pollapönk. Þetta er fyrsta barnaplatan sem þeir gera í sameiningu en áður hafði Halli gefið út plötuna Hallilúja þar sem hann naut aðstoðar ýmissa tónlistarmanna, þar á meðal Heiðars.
Að sögn Halla var platan hluti af lokaverkefni þeirra félaga við Kennaraháskóla Íslands en þaðan útskrifuðust þeir sem leikskólakennarar í vor. „Við tókum þetta eins og hvert annað verkefni. Við hittumst á morgnana og byrjuðum að semja lög sem við fullunnum svo í framhaldinu,“ segir Halli.
Þeir félagar voru í hálft ár að vinna plötuna, auk þess sem þeir skiluðu líka inn skýrslu um barnamenningu á Íslandi. „Við tengdum þessa plötu bæði námskeiðinu sem við vorum í og því sem við höfðum lært í skólanum. Þetta var ótrúlega skemmtileg reynsla. Við erum vanir að búa til lög á æfingum allir saman, spilandi á bassa, trommu og gítar í bölvuðum hávaða en fyrir þessa plötu vorum við bara saman með kassagítarinn. Þetta var alveg ný reynsla.“
Raggi, bassaleikari Botnleðju, spilar jafnframt á bassa á plötunni og má því segja að Botnleðja eigi þarna ákveðna endurkomu. „Botnleðja hefur legið í dvala eins og björn í híði og safnað forða. Við ætlum að byrja æfa bráðum og semja plötu og gera eitthvað skrítið,“ segir Halli.