Skoðun

Í þágu unga fólksins og byggðanna

Einar K. Guðfinnsson skrifar
Það er rangt sem stundum er reynt að halda fram að sjávarútvegur og landbúnaður séu fyrst og fremst höfuðatvinnugreinar fortíðarinnar. Þessar atvinnugreinar verða um ókomin ár burðarásar í íslensku atvinnulífi, ekki síst á landsbyggðinni. Sannarlega eru margs konar breytingar að eiga sér stað í efnahagsumhverfi okkar. Við þekkjum ævintýralegan vöxt nýrra atvinnugreina sem hafa ekki síst sótt tekjur sínar og styrk til erlendrar starfsemi sem hefur flutt hingað mikinn auð og efnahagsleg áhrif. Það breytir því þó ekki að enn sem fyrr verður hlutur sjávarútvegs og landbúnaðar afgerandi í þjóðarbúinu í heild og á landsbyggðinni alveg sérstaklega.

Á hinn bóginn er alveg ljóst mál að þessar atvinnugreinar standa núna frammi fyrir mjög miklum breytingum. Einkanlega vegna þess að sú þróun sem hefur orðið í okkar efnahagslega umhverfi kallar á þessar breytingar. Sjávarútvegur jafnt og landbúnaður þurfa á öllu sínu að halda til að standast samkeppni við aðrar atvinnugreinar í landinu. Jafnframt verða þessar atvinnugreinar lykilþáttur í byggðaþróuninni af þeirri einföldu ástæðu að sú starfsemi sem þar fer fram, er að langmestu leyti á landsbyggðinni.

Stærðarhagkvæmnin í þessum greinum er mikil. Við sjáum þróun í landbúnaði sem markast af þessu. Það tekur til nánast allra búgreinanna. Ekki bara mjólkur- og sauðfjárframleiðslu þar sem þetta eru alþekktar staðreyndir. Heldur einnig í öðrum búgreinum, hvort sem við tölum um garðyrkjubúskap eða loðdýr, svo dæmi séu tekin. Tæknin og afkastaaukningin leiðir þetta af sér og er drifið áfram af hagræðingarkröfu og eðlilegri sókn í bætt lífskjör.

Sama á við í sjávarútvegi. Þar er framleiðniaukningin mikil og fer vaxandi. Við getum ekki slegið af í þeim efnum. Þessi þróun lýtur lögmálum hagræðingar og kröfunnar sem uppi er í þjóðfélaginu um stöðugt meiri verðmætasköpun og lægri tilkostnað til að standa undir bættum lífskjörum sem almenningur gerir réttmæta kröfu til. Og ef við ætlum að eiga möguleika til þess að takast á við samkeppnina í okkar þjóðfélagi þá verða sjávarútvegurinn og landbúnaðurinn að geta lagt af mörkum sambærileg lífskjör. Ella flýr fólkið þessar atvinnugreinar, unga fólkið hefur ekki áhuga á að hasla sér þar völl og við verðum einfaldlega undir.

Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarherra.




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×