Skoðun

KSÍ og kvennaboltinn

Árni Guðmundsson skrifar

Stundum á maður varla orð. Ung kona með víðtæka og góða reynslu í kvennaboltanum. Þrátt fyrir ungan aldur þá er hún hokin af reynslu, bæði sem iðkandi og ekki síður sem sjálfboðaliði árum saman. Hún hefur gengið í öll þau fjölmörgu verk sem þarf að inna af hendi í kringum kvennaboltann til þess að allt gangi upp. Leggur svo sannarlega sitt af mörkum. Hún gjör þekkir málefnið og veiti sem er að það er margt sem má bæta. Hún fer í það metnaðarfullar verk að skrifa handbók „Fjölgum áhorfendum – Upplifunarbók“ sem snýst um það hvernig má fjölga áhorfendum í kvennaboltanum. Bók sem byggist ekki bara á reynslu höfundar heldur er hér á ferðinni handbók sem stenst bæði fag- og fræðileg viðmið.

Markmið handbókarinnar er að stuðla að aukinni þátttöku og bættu umhverfi á knattspyrnuleikjum kvenna og þar með að fjölga áhorfendum. Með því að efla upplifun áhorfenda er vonast til að skapa meiri stemningu og áhuga á kvennaknattspyrnu á hérlendis.

Handbókin er hagnýtur leiðarvísir fyrir íþróttafélög, skipuleggjendur og aðra hagsmunaaðila sem vilja bæta upplifun áhorfenda á leikjum og auka sýnileika kvennafótbolta.

Handbókin byggist á fræðilegum bakgrunni og miðar að því að bæta umgjörð leiksins, markaðssetningu og upplifun á vellinum. Í handbókinni er lögð áhersla á að greina og skilgreina þá þætti sem geta haft áhrif á aðsókn, svo sem markaðssetningu, stemningu á leikdegi, tónlist, aðgengi og samfélagstengsl. Sá sem þetta ritar gegndi um margra ára skeið ýmsum störfum innan kvennaboltans hjá FH og mikið hefði þá verið gott að hafa bók af þessu toga við hendina.

Mér er tjáð að KSÍ sjái sér ekki fært að styrkja útgáfu á þessari frábæru handbók, eftir Guðbjörgu Ýr Hilmarsdóttur verðandi tómstunda- og félagsmálafræðing, um nokkra 10 þúsund kalla, sem er alveg stór furðulegt. Upphæð sem er bara brota brot af þeirri vinnu og kostnaði sem höfundur hefur lagt á sig og staðið undir. Að grípa ekki tækifærið og stökkva til þegar að svona bók rekur á fjörur KSÍ er ekki boðlegt. Þetta er bók sem öll knattspyrnufélög í landinu ættu að eiga.

Ef KSÍ getur ekki styrkt svona verkefni þá er mitt ráð að fækka snittum og hætta vínveitingum á VIP svæði sambandsins og láta þá þúsund kalla sem þar sparast renna til útgáfunnar á þessari metnaðarfullu handbók og eða sambærilegar verkefna í framtíðinni. KSÍ og kvennaknattspyrnan, þar er svo sannarlega verulegt rými til framfara.

Höfundur er félagsuppeldisfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×