Mikel var neyddur til að spila landsleikinn 10. febrúar 2007 12:51 John Obi Mikel sést hér ásamt félaga sínum hjá Chelsea, Michael Ballack. MYND/Getty
Nígeríski miðjumaðurinn hjá Chelsea, John Obi Mikel, kveðst hafa neyðst til að spila fyrir landsliðið sitt sl. þriðjudag þegar Nígería mætti Ghana í vináttuleik. Ástæðan voru hótanir í garð fjölskyldu sinnar sem búsett er í Nígeríu. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hafði bannað Mikel að spila landsleikinn þar sem hann var lítillega meiddur. Mikel lék allar 90 mínútur leiksins, Mourinho til lítillar ánægju en um síðustu helgi tognaði Mikel lítillega aftan í læri og vildi portúgalski stjórinn að hann fengi undanþágu frá því að spila landsleikinn. Mikel vonar að Mourinho skilji aðstöðuna sem hann var í. "Stuðningsmenn landsliðsins hótuðu fjölskyldu minni heima öllu illu ef ég spilaði ekki þennan leik. Þessir menn trúa því að ég geri upp á milli leikja landsliðsins og spili eftir eigin hentisemi. Það er ekki rétt. En ég var neyddur til að spila þennan leik," sagði hinn 19 ára gamli Mikel, sem er lykilmaður á miðju nígeríska liðsins. "Þetta var einfaldlega of mikið álag til að ég gæti höndlað það. Aðeins Guð veit hvað hefði getað komið fyrir fjölskyldu mína hefði ég sleppt því að spila þennan leik." "Var Jose Mourinho óánægður með að ég skyldi spila? Vissulega. Hann var algjörlega miður sín. En vonandi skilur hann hvað ég gekk ég gegnum," sagði Mikel að lokum.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik lokið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Enski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Newcastle upp í þriðja sætið Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Sjá meira